Skutull - 22.02.1952, Blaðsíða 2
2
S K U T U L L
Opið bréf til stjórnar
H.f. Djúpbáturinn.
Heiðraða Djúpbátsstjórn!
Það sló óhug á fólk hér í Djúp-
inu er það kvisaðist að Djúpbáts-
stjómin hefði tekið þá ákvörðun
að skipta um Djúpbát, leggja
Fagranesinu, en taka m.b. Ver til
ferðanna. Er Fagranesið var keypt
lögðu bændur við Djúp hart að sér
með hlutafjárframlög í þeirri von
að eignast góðan og öruggan far-
kost og að þeir fengju að njóta
hans. Misbrestur er nú að verða á
því. Þetta hefur í för með sér
margskonar óþægindi og jafnvel
tjón.
Hún er talsverð mjólkurfram-
leiðslan hér í Djúpinu og einnig í
vestursýslunni. Það skiptir því
miklu' máli að samgöngur séu ör-
uggar, og þeirri viðkvæmu vöru,
mjólkinni, sé eftir því sem tök eru
á varin fyrir ofkælingu (frostum ).
Komi hún gaddfrosin á sölustað
er hún ekki I. flokks vara, heldur
í II. flokki og jafnvel III. flokki.
Verðið sem bændur fá fer svo
eftir því í hvaða flokk mjólkin fer.
Getur þar munað á verðflokkum
0,20 aur. pr. líter, og færi hún í
minnsta verðflokk tapast einnig
niðurgreiðsla, sem nemur 0,42 aur.
pr. líter. Það er því augljóst, að
séu mikil brögð að því að mjólkin
frjósi á leiðinni, veldur það bænd-
um stórtjóni. Við öðru er ekki að
búast sé farkosturinn svo lítill að
mjólkin sé ávalt dekklest. Auk
þess sem mikil hætta er á, sé vont
í sjóinn, að brúsana taki út. Ligg-
ur mikið verðmæti í þeim, ekki
sízt séu þeir fullir af mjólk.
Það hefur líka verið bændum á-
hyggjuefni hvernig fer um mjólk-
ina sumarmánuðina eftir að rútan
hefur göngu sína. Á föstudögum
bíður Djúpbáturinn oft lengri tíma
á Arngerðareyri og mjólkin sól-
bakast þar 4—5 klst. og er þá
mest öll III. og IV. flokks vara er
hún kemur á sölustað. Og eftir því
sem nú horfir er mjólkin undir
stórskemmdum ca. 6 mán. ársins,
vænti ég því að Djúpbátsstjórnin
sjái í hvern voða er stemt með
framleiðslu bændana og einnig
notagildi neitenda á þessari lífs-
nauðsynlegu vöru.
Verði ekki betur hlynnt að með-
ferð mjólkurinnar með Djúpbátn-
um, dregur að því að bændur neyð-
ast til að hverfa frá þeirri frem-
leiðslu.
Mér er sagt að þessi ákvörðun
Djúpbátsstjórnar sé gerð í sparn-
aðarskyni. Ég tel það vafasaman
sparnað. Á þessum litla báti eru 4
menn, auk þess leiga, máske við-
hald m.m. Rétti þessi mismunur á
úthaldi þessara skipa hallann, ,þá
er hann ekki stórvægilegur.
Nú hefur alþingi hækkað styrk-
inn til Djúpbátsins (Fagranes) í
340 þús. kr. Mér finnst það stork-
un, að á sama tíma er Fagranes
bundið í höfn, en í þess stað tek-
inn lítill bátur, og það um hávetur
í rysjutíð.
Fyrir hönd okkar bænda og
sveitafólksins í Djúpinu bið ég
Djúpbátsstjórnina endurskoða
þessa ákvörðun sína og setja
Fagranesið í ferðimar sem fyrst
aftur, með sínu ágætu skipshöfn.
Væri ekki hægt að fækka manna-
haldi í landi ? Séu 3 menn að mestu
á föstum launum, og skrifstofan
með 50—60 þúsund þá virðist mér
að þar mætti spara sem svaraði
mismuninum á rekstrarkostnaði
m.b. Vers og Fagraness.
Þetta vænti ég að stjórnin at-
hugi vel. Verði þrátt fyrir það ekki
hægt að reka Fagranesið þá mætti
hugsa sér að bjóða það út til leigu
til ferðanna með fullum ríkisstyrk.
Heldur væri það engin goðgá að
leita tiP sýslufélaganna og ísa-
fjarðarbæjar með nokkurn rekst-
ursstyrk. — Síðast af öllu stöðvun
Fagraness.
Melgraseyri, 23/1 1952.
Vinsamlegast,
Jón H. Fjalldal.
<►
Á fundi sem haldinn var í Verka-
lýðsfélaginu Baldri þann 4. þ.m.
voru þessar samþykktir m.a. gerð-
ar:
Um leið og fundur í V.l.f. Baldri
á ísafirði, haldinn 4. febr. 1952
þakkar ríkisstjórn Islands fyrir
þann fjárhagsstuðning, sem hún
hefir lagt fram til eflingar at-
vinnulífsins á Isafirði og sem ein-
göngu varð að nota til styrktar
hinum aðþrengda vélbátaútvegi, og
sem hvergi nærri nægði til að bæta
úr því almenna atvinnuleysi og
skorti, sem hér ríkir, leyfir fund-
urinn sér að skora á háttvirta rík-
isstjórn að hún beiti áhrifum sín-
um til þess:
1. Að hin stórvirku atvinnutæki,
sem hér eru fyrir hendi, togar-
amir, verði starfræktir á þann
hátt að almenningshagur verði
sem bezt tryggður. Þ.e.a.s. afli
þeirra verði lagður hér á land
til vinnslu og verkunar.
Leyfir fundurinn sér að vísa
til fyrri samþykkta og áskor-
ana ísfirzkra stéttarfélaga og
bæjarstjórnar í máli þessu.
2. Að aðrir togarar verði fengnir
til að leggja afla sinn hér á
Brynjólfur Ö. Kolbeinsson
MINNINGARORÐ.
Þéss er vart að vænta um unga
menn, svo unga, að varla verður
um þá sagt, að þeir hafi til fulls
slitið barnsskóm mannsæfinnar,
og sem falla fyrir aldur fram,
að um þá verði skrifað langt mál,
enda ekki tilgangurinn með þess-
um fáu fátæklegu línum um
Brynjólf önfjörð Kolbeinsson sem
fórst hinn 6. jan. s.l. ásamt fimm
félögum sínum í fiskiróðri með vél-
bátum Val frá Akranesi.
Brynjólfur Ö. Kolbeinsson, eða
Binni Kolbeins, eins og hann var
kallaður í kunningjahóp, var son-
ur hjónanna Sigríðar Erlendsdótt-
ur og Kolbeins Brynjólfssonar, vél-
stjóra og næst elztur þriggja syst-
kina. Hann var fæddur 20. jan.
1929 og því aðeins tæpra 23 ára
er hann lézt. Kvæntur var hann
Ásu Hermannsdóttur, og áttu þau
tvo drengi, Kolbein á fjórða ald-
ursári og Reynir 4 mánaða. Ekki
mun Binni hafa átt, frekar en svo
mörg böm önnur frá alþýðuheim-
ilum þessa bæjar, kost á annari
land til vinnslu og þá sérstak-
lega ef ísfirzku togararnir verði
látnir fiska fyrir erlenda mark-
aði.
3. Að verði ekki fljótlega ráðið
fram úr hinum alvarlegu vanda-
málum atvinnulífsins á ísafirði
á framangreindan raunhæfan
hátt, skorar fundurinn á ríkis-
valdið að það leggi fram at-
vinnubótafé að upphæð allt að
500.000,00 krónur, til þess að
afstýra sívaxandi atvinnuleysi
og hörmungum.
„Fundurinn skorar á hafnar-
nefnd og bæjarstjórn ísafjarðar að
látin verði fara fram athugun á
því hvort ekki sé unnt að ívilja
þeim togurum í greiðslu hafnar-
gjalda, sem leggja afla sinn hér á
land til verkunnar og vinnslu, ef
það mætti stuðla að því, að örfa
togaraveiðar, til þess að láta skip
sín leggja afla sinn hér á land“.
Þann 12. þ.m. var einnig haldinn
fundur í Verkalýðsfélaginu Bald-
ur. Hannibal Valdimarsson, al-
þingismaður, ræddi um umræður
þær er háðar voru á síðasta al-
þingi um atvinnumál.
Næsta dagskráratriði fundarins
var spurningar og svör um þing-
mál, þar sem Hannibal Valdimars-
son svaraði spurningum um ýmis
þingmál.
Togaraverkfallið.
Samningar hafa ekki ennþá tek-
ist í togaradeilunni, en verkfallið
hófst frá og með 21. þ.m. Verk-
fall þetta nær til allra togara nema
Austf j arðatogaranna.
menntun en þeirri sem venjuleg
barnafræðsla veitir; byrjaði hann
snemma að vinna fyrir sér og þá
lengst af á sjónum.
Kynni mín af Binna heitnum
voru hvorki löng né margþætt. Ég
kynntist honum í K.s.f. Herði, en
þar kaus hann, um árabil að eyða
tómstundum sínum við íþróttaiðk-
anir og þá sérstaklega knattspyrn-
una, og af þeim kynnum mínum
við hann, varð hann mér hugstæð-
ur og þá mest fyrir þá hógværð og
prúðmennsku, hvort heldur var í
leik eða starfi, sem mér fannst
einkenna hann svo mjög, og svo
mun fleirum hafa farið er nokkur
kynni höfðu af honum.
Þessvegna Binni, nú þegar þú
ert allur, þá þakka ég þér það
innlegg í sjóð minninganna, sem
þú gafst mér, með kynnum mínum
af þér, og sem Harðverji þakka
ég þér starfið í félaginu okkar, og
kveð þig kveðjunni hinztu, trúandi
því, að hvar sem nafninu þínu
kann að bregða fyrir á söguspjöld-
um þeirra kynslóðar, sem þú til-
heyrðir, að það fylgi því að þar
hafi farið góður drengur.
Ég sendi foreldrum hans, syst-
kinum, konunni hans ungu, og
litlu drengjunum tveim, sem óvita-
aldur hlífir í bili við að skynja
hvílíka feiknstafi meinleg örlög
hafa markað í tilveru þeirra með
hlutskipti föðurleysingjans, inni-
legustu samúðarkveðju biðjandi
þess, þann guð sem mér var kennt
að trúa á, að hann veiti þeim
styrk í þungri raun.
Harðverji.
-------o-------
Svigkeppni,
Þann 10. febr. s.l. fór fram
sveitakeppni í svigi í Stórurð.
Úrslit í eldri flokki urðu þessi:
1. Sveit Harðar 5:36,4 mín.
2. Sveit Þróttar 6:06,2 mín.
3. Sveit Skíðafél. 6:06,2 mín.
4. Sveit Ármanns 6:40,8 mín.
Sveit Harðar skipuðu: Einar Val-
ur Kristjánsson, Jóhann R. Símon-
arson og Hallgrímur Njarðvík.
Beztum tíma í brautinni náði Ein-
ar Valur Kristjánsson 1:47,4 mín.
Úrslit í yngri flokki:
1. A-Sveit Harðar 3:40,8 mín.
2. Sveit Þróttar 4:01,1 mín.
3. Sveit Ármanns 4:01,8 mín.
A-Sveit Harðar skipuðu: Viðar
Hjartarson, Halldór Guðbrandsson
og Guðbjörn Ingason. Beztum tíma
náði Njörður Njarðvík, Ármanni á
1:07,2 mín.
Sunnudaginn 2. marz fer fram
boðgöngukeppi í sömu flokkum.