Skutull - 22.02.1952, Blaðsíða 3
S K U T U L L
3
FÁTÆKRALÖGGJÖFIN og fram-
kvæmd hennar var lengi vel einn
svartasti bletturinn á íhaldinu í
þessu landi. Það er ekki ýkja langt
síðan að lagaheimild var fyrir því,
að styrkur, þeginn vegna atvinnu-
ieysis, skyldi valda réttindamissi.
Þegar aðþrengdur húsfaðir kom
til íhaldsfátækrafulltrúans og bað
hann ásjár, þá sagði þessi herra
sem svo:
Vissulega ber sveitar- og bæjar-
félögum skylda til að sjá öllum
þurfandi farborða. En við hér er-
um alls ekki einráðir hvernig far-
ið er með mál ykkar. Ef þið, sem
á opinberri hjálp þurfið að halda,
hafið ekki inn unnið ykkur sveit
hér, þá gerum við viðkomandi
sveitafélagi tafarlaust aðvart, því
samkvæmt lögum ber því að ann-
ast framfæri ykkar. Sveitaflutn-
ingur getur því að sjálfsögðu kom-
ið til greina. Og eitt enn, og það
er vissulega ekki lítið atriði: þeg-
» _ inn sveitastyrkur kostar viðkom-
andi mann atkvæðisréttinn. Hann
er upp á aðra kominn, er því ekki
fullráða, þar af leiðandi þessi
mannréttindamissi. ..
Þá er hér bréf sem íhaldið sendi
á sínum tíma einum styrkþega
sinna. En þessi maður var búinn
að vera veikur í um átta mánuði,
lá á sjúkrahúsi í níu vikur; að
læknisdómi óvinnufær allan tím-
ann:
„Eins og yður er að sjálfsögðu
kunnugt, þá hefur bæjarfélagið
ekki nægilegt f jármagn til þess að
standa straum af framfæri þurfa-
linga sinna. Því höfum við tekið
upp þá sjálfsögðu stefnu, að nota
oss vald það er lög heimila, til
þess að ráðstafa þurfalingum, svo
sem bezt hentar, til þess að fram-
færsla á heimili yðar gæti orðið
bænum kostnaðarlaus, ef þar að
lútandi löglegar ráðstafanir væru
gerðar. Vér höfum því gert þá
Áttræðisafmæli.
Rósa Jóhannesdóttir, Dagheim-
ilinu, ísafirði, átti áttræðisafmæli
18. þ.m. Hún er fædd að Geita-
skarði í Kirkjuhvammshreppi í
Húnavatnssýslu.
Rósa ber aldurinn vel. Henni fellur
sjaldan verk úr hendi, og hún er
hressileg í viðmóti og lífsglöð svo
sem ung væri.
Andlát.
Halldóra ólafsdóttir, verkakona,
Hlíðarhúsum, Isafirði, andaðist í
Sjúkrahúsi ísafjarðar 9. þ.m. Hún
var fædd í Hattardal í Súðavíkur-
hreppi 19. okt. 1886, dóttir Ólafs
Jenssonar hreppstjóra þar.
samþykkt, að bömum yðar verði
komið fyrir á góðu heimili og yð-
ur hjónum í vist.
Samkvæmt ofanskráðu ber yður
að koma til viðtals við undirritað-
an, eigi síðar en þrem dögum eftir
dagsetningu þessa bréfs, og skuluð
þér þá staðfesta hvort þér hafið
vísa vinnu fyrir yður og börn yðar.
Ef svo er ekki munum vér tafar-
laust gera ráðstafanir til fram-
kvæmda á ofanskráðri samþykkt".
Það vantar ekki rembinginn —
þarna. En svona bréf hefur íhaldið
gaman af að skrifa.
Þegar Alþýðuflokkurinn tók
upp baráttu fyrir réttlátri fátækra
löggjöf á alþingi, þá þóttist allur
þingheimur hafa andstyggð á
þessari þrælalöggjöf. En þegar til
alvörunnar kom var íhaldið lengi
vel ófáanlegt til þess að breyta
lagabókstafnum, nema hvað það
féllst á að banna flutning á hálf-
sjötuguin skörum! Ber þetta ekki
ljósan vott um höfðingslund og
mannkærleika æðstu presta aftur-
haldsins — íslenzkra sjálfstæðis-
manna!
VERKAMAÐUR SKRIFAR: Ihald
ið á ísafirði skreytir sig með
fölskum fjöðrum þar sem eru tog-
ararnir Isborg og Sólborg. Ihaldið
sver og sárt við leggur að það eigi
þessa togara, hafi aflað þeirra af
eigin rammleik, og því beri bæjar-
búum eingöngu að þakka „sjálf-
stæðismönnum“ að þessi stórvirku
atvinnutæki hafi fengist til bæjar-
ins. Þetta, að við eigum íhaldinu
togarana að þakka, er svo marg-
þvæld lygi að hún er fyrir löngu
orðin „sjálfstæðismönnum" til
skammar, enda hefur hér í blaðinu
verið flett svo rækilega ofan af
þeim í þessu máli, að betur verður
ekki á kosið. Hef ég þar engu við
að bæta. Allir, sem fylgst hafa
með þessum málum, vita, að það
er fyrst og fremst fyrir atbeina
alþýðuflokksmanna í bæjarstjórn,
að togararnir eru hingað komnir,
þótt íhaldsbroddunum hafi með
blekkingum, moldvörpustarfsemí
og svikum tekist að gerast einráðir
í togaraútgerðinni.
Og allt er það eins hjá íhaldinu;
það er beinlínis viðburður ef tog-
ararnir leggja afla sinn hér á land,
þó heldur hafi úr ræst nú upp á
síðkastið. En allir vita hvemig á
því stendur. Slíkt mun ekki slá
ryki í augu okkar verkamanna.
Ég skrifa þessar línur fyrst og
fremst til þess að benda á þá ó-
hrekjanlegu staðreynd, að þeir
tveir yfirmenn (ekki nægir minna)
sem hafa hér yfirumsjón með
löndun afla togaranna, láta sig
hafa það „að vinza úr hópi okkar
verkamanna“ eftir pólitískum
skoðunum. Þeir, sem ekki hafa
sömu pólitískar skoðanir og „yfir-
menn íhaldsins“ mega fara heim,
nema þá sjaldan að framboð á
vinnuafli er eitthvað minna en
venjulega. Þetta er þá þegar allt
kemur til alls „lýðræðið", sem
sjálfstæðismenn — afturhalds-
menn á ísafirði hlúa hvað mest að
í framkvæmd, þótt þeir tali og riti
á annan veg.
Já, megum við verkamenn ekki
vera þakklátir íhaldinu fyrir af-
skipti þess af atvinnumálum kaup-
staðarins!
Verkamaður.
BRETAKONUNGUR LÁTINN.
Framhald af 1. síðu.
Valdataka Elísabetar drottning-
ar var formlega tilkynnt þann 8.
þ.m. með hátíðlegri athöfn í St.
Jameshöllinni í London að við-
kallari fram á svalir hallarinnar
og las yfirlýsingu um valdatökuna
að fornri venju, og var yfirlýsingin
stöddum miklum mannf jölda. Gekk
síðar lesin upp á sex öðrum stöð-
um í London og í flestum stór-
borgum Bretlands. Skömmu síðar
flutti Elísabet ávarp til þjóðarinn-
ar og lýsti yfir því, að hún mundi
kappkosta að feta í fótspor hins
látna föður síns, sem hefði helgað
líf sitt og starf brezku þjóðinni og
brezka samveldinu.
HÚSEIGN TIL SÖLU!
Húseign mín, Stekkjargata 3 í
Hnífsdal, er til sölu, (3 herbergi og
eldhús ásamt kjallara). Ennfrem-
ur hjallur og geymsluskúr.
Sigurður Halldórsson.
TILKYNNING
Að gefnu tilefni vill stjórn V.l.f. Baldurs benda ísfirzkum atvinnu-
rekendum á, að samkvæmt samningum félagsins frá 18. júní 1949 skulu
félagsmenn í viðkomandi stéttarfélagi ganga fyrir allri vinnu.
Aðeins fullgildir meðlimir stéttarfélaganna hafa vinnuréttindi á fé-
lagssvæði Verkalýðsfélagsins Baldur.
VERKAFÓLK!
Hafið félagsskírteini ykkar ávallt með ykkur svo að þið getið sannað
félagsréttindi ykkar ef krafizt verður.
STJÓRN V.l.f. BALDUR.
AÐVÖRUN
Athygli verkafólks skal vakin á því, að samkvæmt orlofslögunum er
atvinnurekendum óheimilt að greiða orlofsfé í péningum; það skai greitt
í orlofsmerkjum um leið og greiðsla vinnulauna fer fram.
VERKAFÓLK! Framvísið orlofsbókunum við greiðslu vinnulauna.
STJÓRN V.l.f. BALDUR.
SKUTULL
Ctgefandi:
Alþýðuflokkurinn á Isafirði
Ábyrgðarmaður:
Birgir Finnsson
Neðstakaupstað, lsaf. — Sími 13
Afgreiðslumaður:
Gufimundur Bjarnason
Alþýðuhúsinu, fsaf. — Sími 202 !
Innheimtumaður:
Haraldur Jónsson
Þvergötu 3. lsafiröi
Föstudag og síðasta sinn
Laugardag kl. 9
SKÍJADÍSIN
Mjög skemmtileg músik-
söngva- og dansmynd
í eðlilegum litum.
Aðalhlutverk:
Rita Hayworth
Larry Parks
Þriðjudag og
Miðvikudag kl. 9
SCOTT suðurskautsfari
Stórfengleg og áhrifarík mynd
um hinn örlagaríka Suðurpóls-
leiðangur, sem farinn var 1909
undir stjóm Roberts Scotts.
Engar sýningar sunnudag
og mánudag.