Skutull - 24.06.1952, Blaðsíða 1
XXX. árgangur.
Isafjörður, 24. júní 1952. 18. tölublað.
ÁSGEIRSMENN!
Sækið fast kjörfundinn
á sunnudaginn
kemur.
Alþýðuílokkurinn hélt velli.
Hannibal Valdimarsson hlaut kosningu sem þingmaður Isfirðinga með 644 atkv
Kjartan J. Jóhannsson fékk 635 atkvæði. Kommúnistar
misstu þriðjunginn af fylgi sínu, og framsóknarmenn töp-
uðu 7 atkvæðum frá seinustu alþingiskosningum. — Auðir
seðlar reyndust 17, en ógildir 8. Alls greiddu atkvæði 1443
af 1520, sem á kjörskrá voru. — Kjörsókn var 95,3%.
Þrátt fyrir samstillt áhlaup
þriggja flokka tókst Alþýðu-
flokknum vel að halda sínum hlut
í kosningunum. Hlaut nú 45,4%
allra greiddra og gildra atkvæða
(44,0%). Kosningin var ein hin
harðasta, sem hér hefur farið
fram, enda var kjörsókn meiri en
nokkru sinni áður, eða 95,3%.
íhaldið beitti öllum ráðum til að
hremma þingsætið og gat nú jafn-
vel ekki dulið sitt gamla smetti. I
þetta sinn gafst hinum fésterka
flokki heildsala og braskara ein-
stætt tækifæri til að einbeíta sér
að því verkefni að vinna ísafjörð.
Söngvari og leikari voru sendir
hingað ásamt einum álitlegasta
þingmanni Sjálfstæðisflokksins,
Magnúsi Jónssyni frá Mel. Næsta
sending var Sigurður Bjarnason,
en vann illa fyrir fari sínu í þetta
sinn, — og svo kom sjálfur Ólafur
Thórs í einkaflugvél.
Hann skipaði flokksmönnum
sínum að hætta að kalla Kjartan
frambjóðanda flokksins. — Kaliið
þið hann þingmann strax, hann
verður helmingi þingmannslegri
við það, hrópaði Ólafur. — Hanni-
bal verður að falla, hvað sem það
kostar, sagði Ólafur ennfremur og
fullyrti, að öll vandkvæði Isafjarð-
ar skyldu leysast (líklega afla-
leysið ekki síður en annað), að-
eins ef Isfirðingar kysu nú Kjart-
an Jóhannsson á þing. Fjárveit-
ingar skyldu fljóta hingað ríku-
lega, og þótti ýmsum nokkuð
rausnarlegt af ráðherra að bjóða
þannig upp á ríkissjóðinn fyrir
kosningar. Nú, en hvað var við því
að segja. — Þetta var nú einu
sinni ólafur Thórs. Samt minntu
þessi flottheit suma fundarmenn
ónotalega á gamla og alkunna
sögu um annan höfðingja á ofur-
háu fjalli — sem bauð að gefa öll
gæði veraldarinnar ... ef ...
Fjallið var í þessu tilfelli sam-
komuhús íhaldsins, Uppsalir og
dýrðin, sem koma skyldi, ... ef
Kjartan yrði kosinn á þing, var
sem sagt mikil og margvísleg.
Það var auðséð á öllu, að það
voru ekki sízt peningarnir, sem
hjálpa skyldu íhaldinu til að vinna
þessa kosningu. — Og samt fór
sem fór. Og nú segir Vesturlandið,
að því sé slegið á frest í eitt ár
að gera Kjartan að alþingismanni
ísfirðinga.
Mikið voru Morgunblaðið og
Vesturlandið búin að segja les-
endum sínum um stærð og styrk
stóra flokksins og smæð og vesöld
pínulitla flokksins. — Um glæsi-
lega fundi sína, en óp okkar al-
þýðuflokksmanna yfir tómum
bekkjum. Um mikilleik áhrifa-
mannsins og skörungsins Kjartans
Jóhannssonar annarsvegar, en ó-
mennsku og atvinnufjandskap
hrakmennisins Hannibals Valdi-
marssonar hinsvegar. Orslitin virt-
ust því ekki geta orðið nema á einn
veg. Enda hafði Kjartan sigrað
glæsilega löngu fyrir kjördag, eins
og allir fyrirrennarar hans í 25 ár.
En sem betur fór — .og það er
isfirzkri alþýðu til mikils sóma —
fékk íhaldið ekki tækifæri til að
setjast að sigursumbli í þetta sinn
fremur en áður. Boðuðum veizlum
eftir kjördag var aflýst. Þær fyr-
irframteknu urðu að nægja. Og
strax daginn eftir kjördag fóru
þeir félagar, Sigurður Bjarnason
og Haukur Helgason í kyrþey úr
bænum. — „Og það voru hljóðir
og hógværir menn, sem héldu til
Reykjavíkur.“
ísfirðingar.
Nú, þegar hinum geysiharða
kosningabardaga milli ofur-
stóra og pínu-litla fiokksins er
lokið, finn ég ríka ástæðu til að
þakka öllum þeim, sem sýndu
mér það mikla traust að kjósa
mig sem þingmann fsfirðinga,
þótt þeim væri heitið gulli og
grænum skógum, aðeins ef þeir
létu til leiðast I þetta sinn að
hallast að íhaldsstefnunni og
kjósa frambjóðanda hennar.
Ég mun af fremsta megni
kosta kapps um að reynast þess
trausts maklegur.
Við gengum svo að segja
tómhent út í þennan kosninga-
bardaga. Við höfðum ekkert fé
í kosningasjóði. — Allt var í
óvissu um, hvernig okkur
mundi takast að afla fjár til
blaðaútgáfu, til greiðslu sím-
kostnaðar, fundarhalda, bíla á
kjördegi o.s.frv. En fullt útlit er
fyrir, að fram úr þessu ætli að
rætast furðanlega. — Margur
hefur fært okkur framlag til
kosninganna af litlum efnum.
Og ómetanlega hjálp veittu og
þeir bílaeigendur okkur, sem
lögðu fram bíla sína án endur-
gjalds. — Allt slíkt ber mikil-
lega að þakka.
í fám orðum sagt: Ég færi
öllum þeim sem á einhvern hátt
studdu að sigri mínum og Al-
þýðuflokksins, mínar alúðar-
fyllstu þakkir. Starfið var í
einu og öllu hið ánægjulegasta
og úrslitin ótvíræð, enda var
þeim fagnað um land allt.
Það er gott, ef andstæðing-
arnir eru ánægðir líka. Ekiíi
skerðir það sigurgleði okkar.
Og þó að þeir séu þegar farnir
að fagna ófengnum sigri að ári,
látum við það sízt á okkur fá.
— Mennirnir spá, en guð ræður.
Hannibal Valdimarsson.
t.--—---------------------------i