Skutull - 04.07.1952, Side 1
XXX. árgangur. Isafjörður, 4. júlí 1952.
19. tölublað.
SKUTULL
er málgagn
alþýðunnar
á Vestfjörðum.
Þjóðin valdi forsetann.
Ásgeir Ásgeirsson sigraði í forsetakjörinu s.l. sunnu-
dag, og hlaut kosningu með 1879 atkvæðum umfram séra
Bjarna Jónsson, vígslubiskup. Áróðursofsi flokksforingj-
anna, Ólafs Thors og Hermanns Jónassonar, hafði öfug
áhrif við það, sem til var ætlazt. Fyrirskipunum þeirra,
særingum og hótunum var ekki hlýtt, og hefir þjóðin á
hinn eftirminnilegasta hátt fordæmt alla aðferð þessara
floltksforingja í kosningabardaganum.
Úrslit í einstökum kjördæmum urðu sem hér segir:
Ásgeir Bjami Gísli Auðir Ógildir
Akureyri .... 1791 1449 71 65 8
Seyðisfjörður .... 165 135 11 18 2
Isafjörður .... 855 444 21 18 8
Snæfellsnessýsla ... .... 695 668 44 20 6
V-Skaftafellssýsla .... 131 96 524 16 5
Vestmannaeyjar ... .... 876 748 50 23 9
Mýrasýsla 327 399 87 32 3
Gullbr. og Kjósars. .... 2241 1899 240 112 14
Hafnarfjörður 1647 877 103 66 6
Eyjafjarðarsýsla ... 1140 1161 67 30 10
Dalasýsla 209 330 10 18 o O
Borgarfj.sýsla 807 854 66 37 3
V-ísafjarðarsýsla ... 734 178 8 5 2
V-Húnavatnssýsla .... 197 325 34 19 1
A-Húnavatnssýsla .... 325 557 22 23 5
N-Þingeyjarsýsla ... 217 471 24 12 0
Siglufjörður 708 501 60 31 8
Barðastr.sýsla 611 408 30 34 5
A-Skaftafellssýsla .... 51 314 137 30 5
Árnessýsla 1109 1455 199 82 18
Rangárvallasýsla .. 340 997 101 33 3
Skagaf j arðarsýsla .... 459 1083 90 34 2
N-Múlasýsla 230 728 30 10 4( +7)
N-f saf j arðarsýsla .... 436 419 16 16 5
Strandasýsla 253 457 , 23 22 2
S-Þingeyjarsýsla .. 577 1009 68 64 11
S-Múlasýsla 820 1296 66 53 6
Reykjavík ... 14970 11784 2053 1017 128
Samtals 32921 31042 4255 1940 289
Heildarúrslit eru því þessi:
Ásgeir Ásgeirsson .......
Bjarni Jónsson ..........
Gísli Sveinsson..........
Auðir seðlar ............
Ógild og vafaatkvæði ....
Ásgeir hefir meirihluta í þess-
um kjördæmum:
Akureyri, Seyðisfirði, ísafirði,
Snæfellsnessýslu, Vestmannaeyj-
um, Gullbringu- og Kjósarsýslu,
Hafnarfirði, V-ísafjarðarsýslu,
Siglufirði, Barðastrandarsýslu, N-
ísafjarðarsýslu og í Reykjavík.
32921 atkvæði eða 46,73%
31042 atkvæði eða 44,06%
4255 atkvæði eða 6,04%
1940 atkvæði eða 2,75%
289 atkvæði eða 0,42%
Gísli hefir meirihluta í Vestur-
Skaftafellssýslu.
Bjarni í þessum kjördæmum:
Mýrasýslu, Eyjafjarðarsýslu,
Dalasýslu, Borgarfjarðarsýslu, V-
Húnavatnssýslu, A-Húnavatns-
sýslu, N-Þingeyjarsýslu, A-Skafta-
fellssýslu, Árnessýslu, Rangár-
vallasýslu, Skagafjarðarsýslu, N-
Múlasýslu, Strandasýslu, S. Þing-
eyjarsýslu og S-Múlasýslu.
Meirihluti Ásgeirs er, eins og
fyr segir 1879 atkv. Á kjörskrá á
öllu landinu munu hafa verið um
86700 manns, og er kosningaþátt-
takan því um 81,25% til jafnaðar.
Talningu atkvæða lauk á þriðju-
dagskvöld og safnaðist þá mann-
fjöldi saman fyrir utan heimili
hins nýkjörna forseta að Hávalla-
götu 32 í Reykjavík, og hyllti
hann og konu hans með margföld-
um húrrahrópum. Ásgeir Ásgeirs-
son tekur við forsetastarfinu 1.
ágúst n.k.
Hinn nýkjörni forseti
ÁSGEIR ÁSGEIRSSON.
Asgeir Ásgeirsson, hinn nýkjörni forseti íslands, er fimmtiu og átta
ára gamall og því á bezta starfsaldri. Hann verður nú annar forseti
lýðveldisins, og þó sá fyrsti, sem kosinn hefur verið almennri þjóðar-
atkvæðagreiðslu.
Ásgeir Ásgeirsson er fæddur 13.
maí 1894 í Káranesi á Mýrum.
Foreldrar hans voru Ásgeir Ey-
þórsson, kaupmaður þar, Felixson-
ar Vestfjarðapósts, og Jensína
Björg Matthíasdóttir, trésmiðs í
Reykjavík, Markússonar.
Ásgeir varð stúdent frá mennta-
skólanum í Reykjavík árið 1922
og kandídat í guðfræði við Há-
skóla Islands 1915. Hann stundaði
Framhald á 4. síðu.