Skutull - 11.02.1955, Síða 1
XXXm. árgangur. ísafjörður, 11. febrúar 1955.
2. tölublað.
tSFIRÐINGAR!
Á sunnudag verður stórsvigs-
keppni á Seljalandsdal. Keppt-
verður í þrem aldursflokkum
karla og kvennaflokki.
Keppnin hefst kl. 13. — Allir
á dalinn.
Miklar slysíarir á sjó.
Hinn 26. janúar s.l. fórust tveir brezkir togarar með
42 mönnum djúpt út af Horni. Sama dag strandaði b.v.
Egill rauði undir Grænuhlíð og fórust 5 menn af áhöfn
hans en 29 mönnum var bjargað.
Látínna sjómanna mínnst i bæjarstjórn
Brezki togarinn Lorella sendi
út neyðarskeyti um kl. 13,50 þann
26. janúar s.l. Hafði þá skipið
lagst á hliðina í rúmsjó, og rétt-
izt ekki við aftur vegna ísingar.
Mörg skip, innlend og erlend,
lögðu þegar af stað til hjálpar
hinu nauðstadda skipi, og meðal
þeirra var Roderigo frá Hull.
Seinni hluta dagsins sendi það
skip einnig frá sér neyðarkall,
og hefur ekki spurst til þess síð-
an. Mikil leit var gerð að skipum
þessum á sjó og í lofti, en ekk-
ert fannst úr þeim annað en
tómur gúmmíbjörgunarbátur, sem
talið er að -geti verið úr öðru
skipinu. Áhafnir skipanna voru
samtals 42 menn.
Brezka sendiráðið í Reykjavík
vottaði S.V.F.í. og öllum, sem
þátt tóku í leit að hinum týndu
skipum, þakkir Breta fyrir leit-
ina, og var í ávarpinu talið að
í leitinni hafi verið örugglega
gengið úr skugga um að enginn
maður af áhöfn skipanna gæti
verið á lífi.
Bæði þessi skip hafa tvímæla-
laust farist með þeim hætti, að
engri björgun varð við komið, og
hefur því fréttaflutningur brezkra
blaða (Daily Mail) af slysum
þessum, vakið undrun og reiði
allra íslendinga og verið mót-
mælt af utanríkismálaráðherra.
Það, sem ætti að vera rann-
sóknarefni brezkra yfirvalda í
sambandi við þessi hörmulegu
slys, er sjóhæfni þeirra skipa,
sem brezkir útgerðarmenn senda
að heiman á fjarlæg mið, þar
sem allra veðra er von, og mennt-
un og hæfni þeirra skipstjóra,
sem til slíkra ferða veljast.
Strand b.v. Egils rauða.
Skipið hafði verið í landvari
undir Grænuhlíð í tvo sólarhringa
áður en það strandaði. Ekki var
lagst fyrir akkerum, og kl. rúm-
lega 18 þann 26. jan. s.l. strand-
aði skipið, þegar verið var að
„kippa“ því nær landi. Strand-
staðurinn er rétt innan til við
svonefnda Teistu, um mílu vegar
frá vitanum á Sléttu. önnur skip
voru þarna rétt hjá og fundu
fljótt strandstaðinn. Komu b.v.
Austfirðingur, Elliði og Neptun-
us og brezki togarinn Andanes
þegar á vettvang, en björgunar-
tilraunir þeirra, og annarra skipa,
sem síðar komu á staðinn, reynd-
ust árangurslausar. Loftskeyta-
og talsamband við hið strandaða
skip rofnaði fljótt, og var því
ekki vitað um afdrif áhafnar-
innar.
Héðan frá ísafirði fór sveit
manna um kvöldið á m.b. Heið-
rúnu með björgunartæki slysa-
varnarsveitarinnar hér. Gátu þeir
ekkert að gert á slysstaðnum um
kvöldið vegna dimmviðris og veð-
ui’ofsa, og var haldið inn á Hest-
eyrarfjörð í fylgd með varðskip-
inu Ægi og Andanesi til að leita
að lendingarstað. Reyndist hvergi
lendandi fyr en á Hesteyri, en
þaðan var björgunarsveitin 9
klst. á strandstaðinn. — Með ís-
firðingunum fóru 10 harðduglegir
menn af m.b. Austfirðingi og einn
maður af varðskipinu Ægi og
hafði hann lítið tal- og senditæki
meðferðis. Veður var óskaplegt
og leið björgunarmannanna tor-
sótt, en fyrir harðfylgi sveitar-
innar og góða leiðsögu ungs
manns, Gísla Jónssonar, sem ætt-
aður er frá Sléttu, komust flestir
björgunarmennirnir á staðinn með
björgunartækin, og tókst þeim
að bjarga 16 mönnum af áhöfn
Egils rauða. Var björgunarstarf-
inu lokið um kl. 15 og höfðu þá
þessir skipverjar Egils rauða
hafst við í skipsflakinu í brim-
garðinum í 19—20 klst. Skytta
sveitarinnar er Gestur Sigurðs-
son, formaður, og tókst honum
að skjóta línunni í flakið í þriðja
skoti. Margt manna héðan og af
ýmsum togurum kom til móts við
skipbrotsmenn og björgunarsveit-
ina á Sléttu, og gisti allur hópur-
inn þar til föstudagsmorguns.
Björgun af sjó hófst á fimmtu-
dagsmorgun og voru þá m.b. And-
Á fundi bæjarstjómar 2. þ.m.
mælti forseti bæjarstjómar, Birg-
ir Finnsson, á þessa leið í fund-
arbyrjun:
„Áður en gengið er til dag-
skrár, vil ég leyfa mér að fara
nokkmm orðum um þau hörmu-
legu sjóslys, sem orðið hafa hér
í nágrenni Isafjarðar fyrir
skemmstu.
Er þar fyrst að minnast þess
atburðar, er varð 12. f.m., þegar
brezki togarinn Kingston Pearl
frá Hull sigldi niður m.b. Súgfirð-
ing, er hann var að draga línu,
með þeim afleiðingum, að tveir
menn drukknuðu, þeir Rafn Ragn-
arsson frá Suðureyri og Hörður
Jóhannesson frá Súðavík, báðir
um tvítugt.
Sjópróf leiddu í ljós, að þetta
slys varð vegna ónógrar aðgæzlu
af hálfu skipshafnar togarans, og
var eignatjónið og dánarbætur
metið á 2.250.000.00 krónur.
Þetta slys beindi athygli manna
að því, að brezkir togarar, sem
veiðar stunda hér við land, fara
oft ógætilega í námunda við ís-
lenzka línubáta undir lóðum, og
virða lítt alþjóðlegar reglur um
rétt fiskiskipa, sem eru yfir veið-
arfærum í sjó, greinilega merkt-
um. Brezki skipstjórinn lýsti fyrir
sjóréttinum harmi sínum yfir því
að mannslíf skyldu hafa glatast
í slysinu, og er vonandi að starfs-
bræður hans og samlandar láti
sér slys þetta að kenningu verða,
og fari hér eftir varlegar en hing-
að til, þegar þeir eru við veiðar
á miðum línubátanna, því enda
þótt tjónbætur komi fyrir manns-
vari og Páll Pálsson komnir á
staðinn og ennfremur b.v. Jör-
undur og Goðanes o.fl. skip.
Komust bátarnir nær flakinu
en stærri skipin, og hætti ólafur
Sigurðsson skipstjóri á Andvar-
anum báti sínum upp í sjálfan
brimgarðinn til þess að hægt væri
að skjóta línu af honum yfir í
flakið. Þetta tókst í fimmta skoti,
og var það Magnús Gíslason, skip-
stjóri á b.v. Goðanesi, sem skaut
því skoti, en með honum voru
um borð í Andvara menn af
Framhald á 3. síðu.
lífin, þá megna þær aldrei að
fylla hin auðu skörð í vaskra
drengja sveit.
Þann 26. f.m. varð einhver hinn
mesti skiptapi, sem um getur við
landið um áratugaskeið. Tveir
brezkir togarar, Lorella og Roder-
igo, fórust með samtals 42 mönn-
um út af Homi. Togarinn Egill
rauði Nk. 104, eign bæjarútgerðar
Neskaupstaðar, strandaði sama
dag undir Grænuhlíð og fórust
þar fimm menn, en 29 mannslíf-
um var forðað úr heljar greipum
eftir mikið og áhættusamt björg-
unarstarf.
Þessir atburðir eru mönnum
hér á Isafirði í svo fersku minni,
að þeir verða ekki frekar raktir
hér.
Nöfn þeirra, sem fórust af
b.v. Agli rauða, eru:
Stefán Einarsson, 3. vélstjóri,
lætur eftir sig konu og 5 börn.
Atli Stefánsson, kyndari, 17 ára
sonur Stefáns vélstjóra.
Hjörleifur Helgason, kyndari,
ókvæntur.
Þessir menn voru allir frá Nes-
kaupstað.
Magnús Guðmundsson, háseti,
frá Fáskrúðsfirði, kvæntur og átti
4 börn.
Sofus Dalberg frá Færeyjum,
kvæntur maður og átti börn.
Eftirlifendum allra þeirra, sem
fórust af m.b. Súgfirðingi og af
b.v. Agli rauða vottum við inni-
lega samúð og hluttekningu, og
við minnumst jafnframt allra
þeirra sjómanna íslenzkra og er-
lendra, sem lagt hafa upp í hina
hinstu för, og óskum þeim góðr-
ar landtöku handan við móðuna
miklu.“
Bæjarfulltrúar tóku undir þess-
ar óskir með því að rísa úr sæt-
um, en að lokum mælti forseti:
„Þá vil ég að endingu biðja
bæjarstjóra að tjá karladeild
slysavarnafélagsins á ísafirði og
björgunarsveitinni aðdáun og
þakklæti bæjarstjórnarinnar til
allra þeirra, sem unnu það frá-
bæra afrek að bjarga 29 manns-
lífum úr greipum dauðans við
hinar erfiðustu aðstæður.
Störf Slysavarnarfélags Islands-
verða aldrei of metin eða þökkuð
svo sem vert er.“