Skutull - 28.05.1955, Blaðsíða 1
Nýir kaupsamningar á Vestfjorðum.
Oðruvísi mér áður brá.
Fáein orð um Boston Deep Sea- lánið.
Lesendur Vesturlands hafa lít-
illega orðið varir við það, að þeg-
ar ritstjóri blaðsins ræðir um
,,Bostonlánið“ þá er hann mjög
óstyrkur á taugum, og telur nú-
verandi bæjarstjórnarmeirihluta
og bæjarstjóra hafa í frammi á-
stæð,ulausan málarekstur gegn Is-
firðingi h.f., og jafnvel ofsóknir.
Vanstilling mannsins hefur þó
fengið enn sterkari útrás, þegar
mál þetta hefur borið á góma í
bæjarstjórn, því þar hefur hann
bókstaflega orðið trylltur í um-
ræðum um rnálið, og þó einkan-
lega, þegar hann hefur verið
minntur á fyrri afstöðu sína og
annara bæjarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins til gengismismunarins,
sem um er deilt. Sú afstaða er
í stuttu máli þessi:
Þegar Sjálfstæðisflokkurinn
missti meirihlutaaðstöðu sína í
apríl 1951 höfðu þeir látið skulda
ísfirðing h.f. í bókum bæjarins
fyrir gengismuninum, eins og
hann var þá, kr. 38.960,00. Þessi
færsla var gerð af sérstökum
trúnaðarmanni Sjálfstæðisflokks-
ins á bæjarskrifstofunni, Kjartani
Ólafssyni, sem gerður hafði verið
að aðalbókara bæjarins, án þess
að ráðningin væri svo mikið sem
borin undir bæjarstjórn. Núver-
andi bæjartjóri tók þannig við
þessari útistandandi skuld, sem
einni af eignum bæjarins frá
stjórnartíð Sjálfstæðismanna.
Hann og meirihluti bæjar-
stjórnar, hafa síðan talið rétt að
sannprófa, hvort þarna hafi verið
um raunverulega eign að ræða,
eða ekki, eftir að reynt hefur
verið eins og framast er unnt,
að fá samkomulag við forráða-
menn ísfirðings h.f. um hina um-
deildu upphæð. Slíkt samkomulag
reyndist með öllu ófáanlegt, enda
þótt meirihlutinn í ísfirðings-
stjórninni sé einmitt sömu menn-
irnir, sem stóðu að því, að telja
gengismuninn til eignar hjá bæn-
um, meðan þeir réðu þar. Þ'eir
hafa með öðrum orðum með af-
stöðu sinni í fsfirðingsstjórninni
stofnað til þess að þeirra eigin
gerðir sem bæjarfulltrúa væru
bornar undir dóinsúrskurð, og ef
þessum mönnum væri nokkuð
annt um mannorð sitt sem bæjar-
fulltrúum, þá ættu þeir sízt að
lasta það, að bæjarstjórnarathafn-
ir þeirra sjálfra væru ekki ógiltar,
nema að fengnum dómi æðsta
réttar í landinu.
Til marks um það, að trúnaðar-
maður Sjálfstæðismanna, sem
skuldaði ísfirðing h.f. fyrir geng-
ismuninum, gerði það ekki alveg
út í bláinn er þetta: Þegar
bæjarráð samdi frumvarp að
fjárhagsáætlun ársins 1950, gerði
það í frumvarpinu ráð fyrir að
bærinn greiddi gengistaþið, því
XXV. liður gjaldamegin: ,,Til
togara afb á Boston Deep Sea
láni“ var áætlaður kr. 103.000,00.
Við síðari umræðu fluttu bæjar-
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og
bæjarfulltrúi Sósíalistaflokksins
svo breytingartillögu við þennan
XXV. lið á þá leið, að hann
skyldi lækka um kr. 37.450,00,
eða nokkurn veginn um gengis-
muninn, og var sú tillaga sam-
þykkt af allri bæjarstjórninni,
eftir að tillögumenn höfðu í um-
ræðum gert þá grein fyrir tillög-
unni, að þeir teldu eftir atvikum
sanngjarnt að lsfirðingur h.f.
greiddi tapið á láni þessu, og
lýst því yfir, að þeir myndu
beita áhrifum sínum til þess hjá
félaginu, að það samþykkti þetta.
Þannig er forsaga þessa máls í
bæjarstjórn ísafjarðar, en stjórn-
armennirnir í ísfirðing h.f., Matt-
hías, Marsellíus, Ásberg og Kjart-
an, hafa bara ekki reynzt menn
til að fá því framgengt í stjórn
togarafélagsins, sem flokkur
þeirra samþykkti í bæjarstjórn!
Því er það, að tapi bærinn
málinu endanlega, þá eiai það
bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins frá 1950, þeir Matthías, Mars-
ellíus, Ásberg og Baldur Johnsen,
sem mestu tapa, því að þeir
hljóta að tapa bæði áliti og
trausti sem bæjarfulltrúar, þar
sem ekki er einusinni hægt að
treysta þeim í viðskiptum við
sjálfa sig, ef bærinn á í hlut.
Köpuryrðum Vesturlands í garð
þeirra trúnaðarmanna, sem bær-
inn hefur fengið til lögfræði- og
innheimtustarfa, hirðir Skutull
ekki um að svara. Þau mótast
Öll verkalýðsfélög á Vestfjörð-
um sögðu upp samningum sínum
fyrir 1. maí s.l. og voru þeir út,-
runnir 1. júní n.k.
Samningatilraunir hófust fyrir
hálfum mánuði. Samkomulag náð-
ist milli samninganefndanna s.l.
laugardag og hefur samnings-
frumvarpið verið sent til hinna
einstöku félaga til staðfestingar.
Á fundi í V.l.f. Baldri s.l.
þriðjudag, var samningurinn sam-
þykktur einróma.
Einnig hefur Skjöldur á Flat-
eyri, Verkalýðsfélag Bolungavík-
ur og V.l.f. Súgandi, Súgandafirði
samþykkt samninginn samhljóða.
Þegar síðast fréttist voru ekki
fleiri félög búin að halda fund
um málið, en þau munu gera það
nú um helgina.
Samningur þessi færir verka-
fólki á Vestfjörðum miklar kaup-
hækkanir og kjarabætur, þar sem
kaup það, sem um var samið, er
það sama og verkalýður Reykja-
víkur og Hafnarfjarðar fékk eftir
sex vikna verkfallsfórnir, auk
þess sem því eru tryggð önnur
fríðindi, sem þar fengust, svo
sem 6% orlof, 1% sjúkrabætur
o.fl.
Almennt dagvinnukaup karla
hækkar úr kr. 9,24 á klst. í kr.
10,17. Það gerir í útborguðu
kaupi, samkvæmt núgildandi vísi-
tölu og sjúkrauppbót kr. 16,53,
eða rösklega 13 krónu kauphækk-
un á dag miðað við 8 st. vinnu.
Aðrir kaupgjaldsliðir hækkuðu
hlutfallslega, þó færðist töluvert
milli liða, þannig ac5 ýms vinna
kom í hærri launaflokk en áður,
t.d. öll vinna við afgreiðslu á
togurum, saltvinna, sementsvinna,
uppskipun kola og fleira.
Sementsvinna og kolauppskipun
hækkaði frá því sem áður var
af þeim anda Sjálfstæðismanna,
að ekkert megi fyrir bæjarféléagið
gera, og öllu eigi fyrir því að
spilla, af því að þeir, hinir út-
völdu, séu þar nú ekki lengur við
stjórn.
Þennan anda hljóta bæjarbúar
almennt að fordæma með því að
forðast það að fela Sjálfstæðis-
mönnum í framtíðinni forsjá bæj-
armálanna.
um kr. 4,23 á klst. í dagvinnu.
Kaup kvenna og unglinga
hækkaði og hlutfallslega og er
nú kaup kvenna á Vestfjörðum
í almennri vinnu kr. 7,59 á klst.
í grunn.
Aðrar breytingar eru þær helzt-
ar, að eftirvinna styttist um 1
klst., eða er nú til kl. 19 en var
áður til kl. 20. Matartíminn að
kvöldinu færist fram um klst.,
verður nú milli 19 og 20. Kaffi-
tíminn kl. 17 fellur niður.
Ef unnið er í matar- eða kaffi-
tímum að nóttu, skal það greitt
með tvöföldu næturvinnukaupi,
en var áður bara greitt sem næt-
urvinna.
Samninganefndirnar héldu fimm
fundi, og gekk starf þeirra greiö-
lega og árekstralaust, enda var
sýndur skilningur og fyllsta sann-
girni af beggja hálfu í samning-
unum, og því ber vissulega að
fagna.
Stjórn Baldurs fór með samn-
ingana fyrir hönd félagsins og
A.S.V. ásamt forseta sambands-
ins, en samninganefnd atvinnu-
rekenda skipuðu þeir Ólafur Guð-
mundsson, Einar Guðfinnsson,
Tryggvi Jóakimsson og Matthías
Bjarnason.
----oOo-----
Frá séknaneM
Kvenfélög ísafjarðarbæjar hafa
í sameiningu, öll þrjú, fært Isa-
fjarðarkirkju að gjöf 40 vandaða
fermingarkyrtla.
Forstöðukonur félaganna af-
hentu sóknarnefnd þessa góðu og
rausnarlegu gjöf nokkrum dögum
fyrir fermingardaginn, og vakti
það nokkra athygli í bænum,
þegar hinn hvítklæddi barnaskari
gekk í kirkjuna í skipulegri fylk-
ingu.
Þá hafa enn fremur sex konur
bæjarins gefið kirkjunni fagurt
og vandað rykkilín með þeirri
ósk, að það verði fyrst um sinn
aðeins notað við hátiðlegustu
tækifæri, svo sem fermingar og
hátíðamessur.
Allar þessar mætu gjafir, á-
samt þeim góðhug, sem þeim
fylgir, þakkar sóknarnefndin af
alhug í nafni alls safnaðarins og
óskar hinum góðu gefendum allra
heilla.