Skutull - 25.04.1956, Page 1
XXXIV. árgangur. ísafjörður, 25. apríl 1956
5.—6. tölublað.
Qleðileýt
íurnal.
Frambofl Alþýðuflokksins
Alþýðuflokkurinn á fsafirði hef-
ur nú ákveðið framboð sitt hér í
bænum til þeirra alþingiskosninga,
sem fram eiga að fara 24. júní n.k.,
og verður dr. Gunnlaugur I'órðar-
son í kjöri.
Voru um þetta teknar ákvarð-
anir í fulltrúaráði flokksins og síð-
an á sameiginlegum fundi allra
Alþýðuflokksfélaganna í bænum.
Þá bafa og Framsóknarmenn hér
í bænum lýst yfir fullum stuðn-
ingi sínum við framboð dr. Gunn-
laugs.
Dr. Gunnlaugur Þórðarson er
fæddur 14. apríl 1919, sonur Þórð-
ar heitins yfirlæknis á Kleppi og
konu hans Ellenar Johanne. Hann
gekk í menntaskólann í Reykja-
vík og lauk þaðan stúdentsprófi
árið 1939.
Gunnlaugur hóf laganám á sama
ári og hann varð stúdent. En
vegna erfiðrar augnveiki var hann
frá námi um tveggja ára skeið.
Hann lauk lögfræðiprófi með I.
einkunn árið 1945.
Á háskólaárum sínum tók hann
mikinn þátt í félagslífi stúdenta,
átti sæti í stúdentaráði og gekk
mjög ötullega fram í fjársöfnun
til Nýja stúdentagarðsins. Á náms-
árum sínum vann hann öll algeng
störf til sjávar og sveita, eins og
títt er um námsmenn hér á landi.
Hann kvæntist árið 1945 Her-
dísi Þorvaldsdóttur leikkonu, og
eiga þau fjögur börn.
Haustið 1945 tók Gunnlaugur
við embætti forsetaritara og gegndi
því til ársins 1950, er hann sagði
því lausu, og á árunum 1949—1951
gegndi hann störfum ríkisráðsrit-
ara.
En jafnframt þessum störfum
sínum lagði hann stund á tungu-
mál og framhaldsnám í lögfræði,
og þá sérstaklega í þjóðrétti.
í starfi forsetaritara kom skýrt
í ljós, hvert lipurmenni Gunnlaug-
ur er, sanngjarn og farsæll í öllu,
sem hann tekur sér fyrir hendur.
Gunnlaugur fór utan til fram-
haldsnáms í lögfræði, og lauk þjóð-
réttarfræðingsprófi við Parísarhá-
skóla 1951 með I. einkunn.
Ilapn hélt þó enn áfram námi
og varði doktorsritgerð sína í lög-
fræði við Parísarháskóla VoriÖ
1952. Fjallaði ritgei’ð hans um
LANDHELGI ÍSLENDINGA
MEÐ TILLITI TIL FISK-
VEIÐA
eins og alkunnugt er.
Er Gunnlaugur manna bezt að
sér í þessum efnum og hefur
brennandi áhuga fyrir málstað ís-
lendinga í landhelgismálinu.
Hefur hann ritað margar grein-
ar um málið í íslenzk blöð, síðan
hann varði doktorsritgerð sína.
Þess má einnig geta, að allar til-
lögur þær, sem á síðustu ámm
hafa verið bornar fram á Alþingi
um frekari útfærzlu friðunarlín-
unnar á Vestfjörðum og Austur-
landi, hafa verið grundvallaðar á
sögulegum og þjóðréttarlegum
rannsóknum dr. Gunnlaugs og
skoðunum hans á þeim málum.
ísfirðingum, sem og öðrum Vest-
firðingum, er löngu ljóst orðið, að
öll framtíð vestfirzkra byggða er
undir því komin, að farsæl lausn
fáist á landhelgismálinu og að
friðunarlínan verði færð út hér úti
fyrir fjörðunum sem allra fyrst.
Það er því mikið gleðiefni fyrir
ísfirðinga að eiga nú þess kost að
styðja dr. Gunnlaug Þórðarson við
þessar kosningar.
Enda mun þeim bráðlega gefast
kostur á því að kynnast enn frek-
ar hinum brennandi áhuga Gunn-
laugs á þessu stærsta velferðar-
máli þjóðarinnar og hans staðgóðu
þekkingu í þeim efnum.
Dr. Gunnlaugur er nú fulltrúi í
félagsmálaráðuneytinu og starfar
þar hálfan daginn, en jafnframt
því rekur hann málaflutningsskrif-
stofu í Reykjavík.
Hann er ennfremur formaður
framkvæmdastjórnar Rauða kross
islands.
Þannig hefur hann í störfum
sínum, þótt ungur sé, öðlast hald-
góða þekkingu á félagsmálum og
mikilvæga reynslu á fjölmörgum
sviðum.
Gunnlaugur Þórðarson hefur um
langt skeið verið fylgismaður jafn-
aðarstefnunnar. Hann er einlægur
í skoðunum, hreinn og beinn, ör-
uggur talsmaður réttlætis og fram-
fara í þjóðfélaginu. Hann gengur
heill til starfa í Alþýðuflokknum,
því að honum er löngu ljóst, að
nútíma menningarþjóðfélag bygg-
ist á því, að réttur fólksins sé ekki
fyrir borð borinn.
Það er Alþýðuflokknum mikill
fengur, þegar slíkir menn sem
Gunnlaugur veljast til framboðs
fyrir hann. Þar sem ungir menn
fara og vaskir, þar er sigurs von.
Enda stórjók Gunnlaugur fylgi Al-
þýðuflokksins í Barðastrandasýslu,
þegar hann var þar í framboði við
síðustu Alþingiskosningar.
Og þannig mun einnig fara hér
á Isafirði í þeim kosningum, sem
nú eru fram undan.
Isfirðingar munu finna það, að
því betur sem þeir kynnast Gunn-
laugi Þórðarsyni, því meira munu
þeir meta hann og hugðarefni
hans.
ísfirzk alþýða mun taka höndum
Hraðfrystihúsin í bænum hafa
að undanförnu verið stórlega end-
urbætt og afköst þeirra aukin, og
í smíðum er nýtt hraðfrystihús,
eign ísfirðings h.f. Aðkomutogar-
ar lögðu hér á land mikið fisk-
magn s.l. ár, en gera verður ráð
fyrir að ekki megi reikna með
slíkum löndunum til frambúðar,
þar eð togarafélög annarsstaðar
eru sjálf að koma sér upp hrað-
frystihúsum, t. d. í Hafnarfirði og
á Akureyri. Einnig getur svo far-
ið, ef marka má síðustu fréttir, að
löndunarbanninu í Bretlandi verði
aflétt, og verður það þá til þess,
að eldri togararnir sigla með fisk-
inn óunninn á erlendan markað í
stærri stíl en verið hefir að undan-
förnu, þótt vafasamt sé, að það
sé æskilegt fyrir þjóðarheildina.
Þessvegna verður óhjákvæmilegt
að stefna að því hér í bæ að tryggja
hraðfrystihúsunum meira hráefni
með aukinni útgerð togara og vél-
báta.
Kaup nýs togara er stórátak,
því gera má ráð fyrir að nýtt skip
Dr. Gunnlaugur Þórðarson.
saman um þennan ágæta frambjóð-
anda sinn og vinna tvöfaldan sig-
ur. Hún mun eignast duglegan og
áhugasaman liðsmann í baráttunni
fyrir bjartari framtíð þessa byggð-
arlags og um leið endurheimta hið
forna höfuðvígi Alþýðuflokksins
— Isafjörð — úr óheillaálögum
þessa síðasta kjörtímabils.
kosti 10—12 milljónii* króna a. m.
k., og verður því nauðsynlegt að
sameina alla aðila í bænum, sem
við fiskvinnslu fást, um þessi
kaup, og jafnvel að leita til bæj-
arbúa almennt um framlög til
þeirra.
Ekki er hugsanlegt að nýtt skip
fáist keypt án framlags frá bæjar-
félaginu og án bæjarábyrgðar ' á
stofnverði skipsins, og er það
þessvegna sjálfsögð skylda for-
ráðamanna bæjai'ins að hafa for-
göngu um sameiningu allra hlut-
aðeigandi aðila um þetta mikla
nauðsynjamál.
Með þetta fyrir augum fluttu
bæjarráðsmennirnir Birgir Finns-
son og Bjarni Guðbjörnsson eftir-
farandi tillögu í bæjarráði 16.
þ. m.
„Vegna brýnnar nauðsynjar á
að tryggja bæjarbúum öruggari og
stöðugri atvinnu ályktar bæjar-
stjórn Isafjarðar að leggja nú þeg-
ar fram umsókn til ríkisstjórnar-
innar, um aðstoð og nauðsynlega
Framhald á 3. síðu.
Hafinn undirbúningur að kaupum
nýs togara