Skutull - 25.04.1956, Blaðsíða 8
8
SK.UTULL
Fundur Hannibals
Þann 16. þ. m. hélt Hannibal hann ekki nógu sterk orð til að
Valdimarsson almennan fund í Al-
þýðuhúsinu, og var þar húsfyllir,
eða á fjórða hundrað manns. Stór
hópur áheyranda var mættur til að
fagna Hannibal vegna pólitískrar
snarvendingar hans, og í þeim hópi
voru eingöngu íhaldsmenn og
kommar. Annar stór hópur var
mættur, sem vart gat trúað sínum
eigin eyrum, er hann hlýddi á boð-
skap fundarboðanda. Þetta voru
samherjar H. V. úr verkalýðs-
hreyfingunni og Alþýðuflokknum,
og stuðningsmenn hans í mörgum
kosningahríðum gegn íhaldi og
kommúnistum.
Nú fengu þeir að heyra af munni
H. V. þau orð, sem engan þeirra
hefði órað fyrir, að hann mundi
nokkurn tíma segja, þegar hann
hvatti ísfirðinga til að kjósa frem-
ur íhaldsmanninn Kjartan Jóhanns-
son á þing, heldur en frambjóð-
anda Alþýðuflokksins. Og þegar
hann reyndi, með tali sínum um
dr. Gunniaug Þórðarson og aðra
frambjóðendur Alþýðuflokksins,
að spilla fyrir kosningu þeirra á
allan hátt, og beinlínis lýsti því
yfir, að Alþýðuflokkurinn, sem
hann sjálfur hefir helgað 30 ára
ágætt starf, væri úr sögunni. Það
var ótrúlegt að heyra Hannibal
tala þannig, en hann lét sig samt
hafa það, og um kommana átti
lýsa því, hvað þeir væru sann-
gjarnir og góðir samstarfsmenn,
en sínar fyrri kenningar um sam-
starf Alþýðuflokksins og Fram-
sóknar, reyndi hann af öllum
mætti að tæta í sundur. Hann fékk
líka góðar undirtektir á fundinum
hjá íhaldi og kommum og þessar
undirtektir nægðu til þess að
glepja honum svo sýn, að hann lét
Þjóðviljann hafa eftir sér nokkr-
um dögum seinna: „Ég hef sjald-
an komið ánægðari úr stjómmála-
ferð.
En hætt er við að H. V. eigi eft-
ir að vakna upp við vondan draum.
Augu fjölda fundarmanna opnuðust
fyrir því, hvemig komið er fyrir
Hannibal, og af hans gömlu sam-
herjum og vinum eru það nú sárafá-
ir, sem fylgja honum af misskilinni
tryggð vegna fyrri starfa hans.
Hann hefir nú leiðst út í það að
reyna að tæta sundur 30 ára starf
sitt og Alþýðuflokksins, og telur
sjálfan sig vera betur lifandi en
flokkinn. En þar skjátlast honum
sem oftar.
Sem stjórnmálamaður hefir hann
sjálfur tekið sér gröf í fangabúð-
um hjá kommúnistum, en Alþýðu-
flokkurinn á eftir að lifa sína
söguöld í samræmi við spádóma
Hannibals frá 1953, sem birtir eru
á öðrum stað í blaðinu.
1 Motmælt aðild Málfundafélagsins að Alþýðu- (
\ bandalaginu. Meirihluti stjörnarinnar j
j segir at sér. j
| Vegna utgáfu síðasta tbl. Landsýnar og þátttöku formanns \
a -
| Málfundafélags Jafnaðarmanna og nokkurra félagsmanna ann- -
| arra í nýjum stjórnmálasamtökum, sem hyggjast efna til fram- "
2 boðs við næstu kosningar, viljurn við undirritaðir óska eftir að |
\ svohljóðandi bókun frá okkar hendi verði færð inn í fundar- 1
| gerðabók félagsins. |
Við mótmælum því að félagið komi fram sem pólitízkur |
aðili og standi að þeim stjórnmálasamtökum, er kalla sig =
| Alþýðubandalag. |
\ í fyrsta Iagi samrýmist það ekki tilgangi félagsins né |
Iögum, og í öðru lagi hefir félagið enga samþykkt gert er |
= heimili slíkt. |
\ Með vísun til ofanritaðs óskum við því eftir að formað- |
ur félagsins lýsi því nú þegar yfir, að Málfundafélag Jafn- "
| aðarmanna sé með öllu óviðkomandi Alþýðubandalaginu. |
| 10. apríl 1956. |
| Friðfinnur Ölafsson. 1
Kjartan Guðnason. §
| Gunnlaugur Þórðarson. §
| Arngrímur Kristjánsson.
Þessum mótmælum hafa 1'jórmenningarnir nú fylgt eftir með |
| því að segja sig úr íélaginu.
Til skýringar á undirskrift Kjartans Guðnasonar skal þess get- 1
= ið, að hann var kjörinn varamaður í stjórn málfundafélagsins, \
= fyrir Magnús Bjarnason. Magnús er nú fluttur úr Reykjavík, og 1
| Kjartan var því fullgildur stjórnarmeðlimur í félaginu, þó Hanni- |
- bal vildi ekki viðurkenna það á mánudagsfundinum. |
i'iuijiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiikíuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
Hannibal sagði skilið við
sinn gamla flokk
Málgagn kommúnista hér í bæ,
Baldur, sem út kom 18. þ. m. reyn-
ir að telja Isfirðingum trú um, að
Hannibal Valdimarssyni hafi verið
vikið úr Alþýðuflokknum, — og
auðvitað algjörlega að tilefnis-
lausu.
Þeim til glöggvunar, sem heldur
vilja hafa það sem sannara reyn-
ist, skal á það bent, að í lögum
flestra stjómmálaflokkanna eru
ákveðin fyrirmæli þess efnis, að
meðlimir þeirra megi og geti alls
ekki verið í öðrum flokkum.
Þó má telja fullvíst, að í komm-
únistaflokknum sé það talið sjálf-
sagt og nauðsynlegt að meðlimir
hans séu einnig í sem flestum öðr-
um flokkum, því sagan hefir sýnt,
að þeir leggja höfuðkapp á að
lauma flugumönnum sínum inn í
raðir andstæðinganna til þess að
vinna þeim tjón innan frá, eins og
dæmin sanna.
1 lögum Alþýðuflokksins eru
ótvíræð fyrirmæli um þetta efni og
verður að fullyrða að Hannibal,
sem bæði hefur gegnt formanns-
starfi í flokksfélaginu á ísafirði og
Aljpýðuflokknum, hafi vitað um
þau, og þar af leiðandi gert sér
það ljóst, að á sömu stundu og
hann gerðist meðlimur annars
stjórnmálaflokks, sem auk þess
var stofnaðúr Alþýðuflokknum til
höfuðs, að hann gat ekki verið
lengur innan Alþýðuflokksins, og
að honum bar ótvíræð drengskap-
arskylda til að segja sig þá strax
úr flokknum, en þeirri sjálfsögðu
skyldu brást hann algjörlega.
í lögum Alþýðuflokksfélags ísa-
fjarðar segir svo:
I 4. gr.
Þeir einir geta orðið meðlimir
félagsins, sem ekki eru í öðru
stjórnmálafélagi eða stjórnmála-
flokki.
1 7. grein:
„Gerist félagsmaður meðlimur
annars stjórnmálaflokks skal taf-
arlaust svipta hann öllum félags-
réttindum, en fara að öðru leyti
með mál hans eins og um úrsögn
væri að ræða.
Þessu lögum flokksins fram-
fylgdi miðstjórnin með svohljóð-
andi samþykkt 22. marz s.l.
„Þar sem Hannibal Valdimars-
son hefur, þrátt fyrir yfirlýsingu
lians á flokksstjórnarfundi í nóv-
ember s.l., beitt sér fyrir og beitir
sér fyrir að koma á fót kosninga-
samtökum gegn Alþýðuflokknum,
telur miðstjórn, að hann hafi sagt
skilið við flokkinn og ályktar því,
að Hannibal Valdimarsson sé ekki
lengur ineðlimur Alþýðuflokksins.“
Þó það þyki hagkvæmt í hinni
nýju klofningsherferð kommúnista
gegn Alþýðuflokknum, að telja
fólki trú um, að H. V. hafi verið
beittur ofbeldi og brottrekstri af
hendi Alþýðuflokksins, þá vita þeir
hinir sömu, sem fyrir þessu standa,
að þeir fara með vísvitandi ósann-
indi.
Framhald á 6. síðu.
AlþýðnflokksfélSgin á IsafirOi fagna samstarfi
Alþýðnflokksins «g Framsðknarf 1 okksins
Helta á aila íhaldsandstæðinga til samstarfs við
kosningabandalag flokkanna
,Sameiginlegur fundur Alþýðu-
flokksfélaganna á Isafirði er hald-
inn var 15. þ. m., samþykkti að
fagna kosningasamstarfi því, er
nú hefur tekizt með Alþýðuflokkn-
um og Framsóknarflokknum. Hét
fundurinn á alla íhaldsandstæð-
inga til samstarfs við kosninga-
bandalag flokkanna.
Ályktunin fer hér á eftir:
„Sameiginlegur fundur Alþýðu-
flokksfélaganna á ísafirði haldinn
sunnudaginn 15. apríl 1956, telur
að með kosningasamvinnu Alþýðu-
flokksins og Framsóknarflokks-
ins í alþingiskosningunum 24. júní
n.k. hafi verið náð mjög mikils-
verðum áfanga á þeirri braut að
sameina alla lýðræðissinnaða
vinstriirienn í baráttunni gegn
íhaldinu.
Um leið og fundurinn fagnar
þessum merkilegu þáttaskiptum í
stjórnmálabaráttunni, sem gefa
fyrirheit um heilbrigðari og betri
stjórnarhætti og stóraukin áhrif
alþýðustéttanna á stjórn landsins,
lýsir fundurinn yfir eindregnum
stuðningi sínum við þessa sam-
vinnu.
Jafnframt skorar fundurinn á
íslenzka alþýðu og alla umbóta-
sinnaða menn, að hagnýta nú það
einstæða tækifæri, sem gefst í al-
þingiskosningunum í sumar, til
þess að hnekkja yfirráðum og of-
ríki afturhaldsins í atvinnu- og
efnahagsmálum þjóðarinnar, með
því að gera kosningasigur þessa
bandalags alþýðustéttanna, sem
eitt er þess um komið að afstýra
áframhaldandi íhlutun og yfirráð-
um Sjálfstæðisflokksins í æðstu
stjórn landsins, sem glæsilegastan.
Heitir fundurinn því á alla
íhaldsandstæðinga til samstarfs
við kosningabandalag Alþýðu-
flokksins og Framsóknarflokksins,
og varar mjög alvarlega við áróðri
þeirra aðilja, sem reyna að rjúfa
þessa mikilvægu samvinnu alþýð-
unnar gegn íhaldinu.“