Skutull - 18.05.1956, Page 1
XXXIV. árgangur.
Isafjörður, 18. maí 1956.
8. tölublað.
Ihaldið ierir nanðsjnjamðl að kosningamðli.
Málefnafátækt og vonleysi um sigur í kosningunum lýsir
sér í aðgerðum íhaldsins í togarakaupamálinu
Slæm vígstaða Ihaldsins.
íhaldið á í vök að verjast fyrir
þessar kosningar. Frammistaða
þess við stjórn landsmálanna er
með þeim hætti, að það lætur sem
minnst á sér bera 1 umræðum um
þau mál, hleypur nærri því í fel-
ur. Þingmaður þess hér í bæ hefir
staðið sig svo aumlega, að honum
er tæplega leyft að sýna sig á
flokkssamkomum, sbr. það að á
fyrsta fundi flokksfélaga íhalds-
ins, eftir að þingmaðurinn kom
heim af Alþingi, var Matthías
Bjarnason auglýstur framsögu-
maður um stjórnmálaviðhorfið.
Og enginn fyrirsvarsmaður
íhaldsins hefir mætt á þeim al-
mennu umræðufundum, sem hér
hafa verið haldnir að undanförnu.
Ástæðan? Hún er auðvitað sú, að
það er erfitt að verja lélegan mál-
stað. Þessvegna er flúið frá um-
ræðum um málefnin, en síðustu
dagana fyrir kosningar verða
haldnir hinir frægu skemmtifundir
með Baldri og Konna.
Leitað að kosningamálum.
Ekki þykir þó tjóa, að leggja
svona berskjaldaður út í bardag-
ann, og hér á ísafirði hefir verið
unnið að því dag og nótt að undan-
íörnu, að búa til kosningamál fyrir
Kjartan J. Jóhannsson, sem lík-
leg væru til þess að forða honum
frá því mikla atkvæðahruni, sem
vissulega býður hans, ef hann og
flokkur hans eru metnir að verð-
leikum. Fyrir valinu, sem aðal
kosningamálið, hefir orðið togara-
kaupamálið, sem vel flestir bæjar-
búar munu hafa áhuga á, þar sem
nýr togari í bæinn mundi stuðla
verulega að auknu atvinnuöryggi
bæjarbúa.
Hvað sannar, að af hálfu íhalds-
ins sé þetta fyrst og fremst kosn-
ingamál, munu menn spyrja? Er
ekki áhugi þeirra fyrir sjálfu mál-
inu jafn einlægur og áhugi ann-
arra bæjarbúa? Þessu skal nú
svarað.
í fyrsta lagi er þess- að geta, að
ríkisstjórn sú, sem nú situr við
völd í landinu, nýtur ekki stuðn-
ings meirihluta þingsins, og situr
aðeins sem bráðabirgðastjórn
fram yfir kosningar, samkvæmt
beiðni forsetans. Slík stjórn tekur
engar meiriháttar ákvarðanir eins
og þær, að láta ríkið ábyrgjast,
eða lána 10—12 milljónir króna til
togarakaupa. Afgreiðsa á málinu
fæst þess vegna ekki fyr en eftir
kosningar, hjá þeirri ríkisstjóm,
sem þá tekur við. Var þannig eng-
in ástæða til að hraða stofnun tog-
arakaupafélagsins, eins og íhaldið
gerði, og skýrt verður frá hér á
eftir, því ekkert raunhæft er hægt
að aðhafast í togarakaupamálinu,
án fyrirgreiðslu ríkisins. Þess
vegna er það, að hafði málefnaleg-
ur áhugi eingöngu verið látinn
ráða, og áhugi fyrir því að sameina
sem flesta aðila um togarakaup-
in, þá var rétti tíminn til félags-
stofnunarinnar strax að afstöðn-
um kosningum, en ekki rétt fyrir
kosningar. Þá var rétta leiðin í
málinu sú, að láta togarakaupa-
nefnd bæjarstjórnar undirbúa mál-
ið, m. a. með því að koma umsókn
um togarakaupin á framfæri við
ríkisstjórnina, og með því að afla
upplýsinga um hentuga gerð af
skipi, verð og annað í sambandi
við byggingu þess.
Þannig vildi meirihluti bæjar-
stjórnar fara að, en ihaldið hafn-
aði þessari leið, af því að því lá
meira á að fá þetta mál sem bit-
bein í kosningunum, heldur en að
fá togarann í bæinn.
Er þá komið að öðru atriðinu,
sem sýnir, svo að ekki verður um
villst, að málið á að nota fyrst og
fremst til þess að forða falli Kjart-
ans, en það er stofnun Hafrafells
h.f., og með hverjum hætti hún fór
fram.
Enginn vilji á að skapa
einingu um málið.
Meirihluti bæjarstjórnar hefir
fyrir löngu gert sér ljóst, að nauð-
synlegt væri að tryggja hrað-
frystihúsunum í bænum meira hrá-
efni, og þá einkum Ishúsfélagi Is-
firðinga h.f., sem bærinn á, og nú
hefir verið stórlega endurbætt.
S.l. ár fóru fram eftirgrennslanir
um togarakaup á vegum Ishúsfé-
lagsins, þótt ekki bæru þær árang-
ur, og var þá aðallega athugað um
kaup á þeim togurum, sem til sölu
voru innanlands. I framhaldi af
þessari viðleitni var svo samþykkt
í s.l. mánuði í bæjarstjórn, að
leggja fyrir ríkisstjórnina umsókn
um togara, og nú hefir meirihluti
bæjarstjórnar ákveðið að nefnd
skuli kosin til að fylgja þessu máli
eftir.
Hjá íhaldinu skeður það í þessu
máli, að haldinn er laumufundur
í s.l. mánuði með fulltrúum ís-
firðings h.f., Hraðfrystihúsinu
Norðurtangi h.f. og Hraðfrystihús-
inu h.f. í Hnífsdal. Ekki var minni-
hlutanum í stjórn Isfirðings h.f.
gert aðvart um þennan fund, og
ekki var fulltrúi frá íshúsfélaginu
boðaður á hann í upphafi. Seinna
var formaður stjórnar íshúsfélags-
ins boðaður á þessa ráðstefnu, og
I síðasta tbl. Skutuls var lítil-
iega minnst á þá ógæfu ísafjarðar
að hafa átt þann fultrúa á Alþingi,
Kjartan Jóhannsson, sem ekki hef-
ir þar komið fram einu né öðru
hagsmunamáli ' bæjarins, — og
sýnt þar svo einstætt áhrifa- og
áhugaleysi, að hafa ekki gert
minnstu tilraun til slíks, t. d. með
því að flytja frv. til úrlausnar
þeim margvíslegu vandamálum,
sem kjördæmi hans á við að etja.
Slíkur þingmannsferill mun vera
einsdæmi og er það ísfirðingum
ekki aðeins til skaða að eiga svo
atkvæðalítinn fulltrúa á þessum
mikilsverða vettvangi, heldur bein
niðurlæging, og þá ekki sízt, þeg-
ar þess er gætt, að þetta þingsæti
hafa lengst af skipað landskunnir
athafna- og áhrifamenn.
Þess vegna munu ísfirðingar
hugleiða það alvarlega áður en þeir
ganga að kjörborðinu 24. júní í
sumar hvort þingmennska Kjart-
ans hefir verið í samræmi við þau
fyrirheit, loforð og vonir, sem gef-
in voru fyrir síðustu kosningar,
og hvort uppskeran af starfi hans
var hann síðan, ásamt Ásberg Sig-
urðssyni og Ingólfi Árnasyni kos-
inn 1 nefnd til þess að undirbúa
stofnun togarafélags. Stjórn Is-
húsfélagsins samþykkti þátttöku í
væntanlegu félagi, að því tilskyldu,
að samkomulag næðist um stofn-
un félagsins, og unnt reyndist að
útvega fé til að inna af hendi
hlutafjárframlag að upphæð 200
þús. kr. Á undirbúningsstigi lagði
svo fulltrúi íshúsfélagsins til, að
Kaupfélagi Isfirðinga yrði boðin
þátttaka í félaginu, en íhaldið
felldi þá tillögu, og notaði til þess
atkvæði Hnífsdælinga. Undirbún-
ingi félagsstofnunar var samt
haldið áfram, og erindi sent bæj-
arstjórn um 200 þús. kr. hluta-
f járframlag og jafnframt tilkynnt,
að Eyrarhreppi yrði boðið að
leggja fram kr. 70 þúsund. Ekki
voru drög að samþykktum félags-
ins, sem þá höfðu verið samin,
Framhald á 2. síðu.
í þingsölunum sé sú, sem við var
búizt.
Ennfremur munu ísfirzkir kjós-
endur gera það upp við sig, hvort
hagsmunir þeirra og bæjarins megi
lengur við því, að slíkur fulltrúi
fari með umboð þeirra á alþingi,
og hvort það sé ekki of dýru verði
keypt fyrir bæinn, að senda hann
aftur til þings.
Þeir, sem létu ginna sig til'þess
að kjósa Kjartan Jóhannsson í
kosningunum 1953 eru nú biturri
reynzlu og miklum vonbrigðum
ríkari en áður. Þeir vita sem sé, að
þrátt fyrir mjög sterka aðstöðu
Sjálfstæðisflokksins í stjórn lands
ins, hefir hann ekki komið í fram-
kvæmd einu einasta hagsmunamáli
bæjarfélagsins, og ekki einu sinni
gert tilraun til þess. Ávinningur
kjósenda hans er því sá einn, að
hafa valið fulltrúa, sem reynzt
hefir kjördæmi sínu gagnslaus,
svo ekki sé meira sagt, en aftur
á móti verið handhægt atkvæði
íhaldsins gegn aðkallandi nauð-
synjamálum alþýðunnar á íslandi,
Framhald á 4. síðu.
Léttvægur fundinn.