Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - sep. 1991, Side 1
SIGLFIRÐINGAFÉLAGIÐ
FRÉTTA
í REYKJAVÍK
Sept. 1991
OG NÁGRENNI
BRÉF
FÉLAGIÐ ÞITT Á AFMÆLI
- ÞAÐ ER ÞRJÁTÍU ÁRA!
Og að sjálfsögðu
verður haldin vegleg
veisla afmælisbarn-
inu til heiðurs.
Hvar? Jú, í Súlnasal
Hótel Sögu.
Hvenær? Að sjálf-
sögðu föstudaginn
11. október nk.
kl. 19.
Hvað verður á dag-
skrá? Fyrst fáum við
okkur góðan drykk í
glas.
Svo fáum við okkur
að borða - nei, ekki
síld núna - fyrst
kemur lax á diskinn,
hann hefur verið
meðhöndlaður af
sérfræðingum. Svo
fáum við lamb - ekki
heimaslátrað - með
perlum og gorkúlum.
í lokin fáum við svo
„hnallþóruís"!
Hinn vafasami en
heimsfrægi - heima,
þið vitið - Fílapensla-
kór kemur og
skemmtir okkur með
sinni frábæru reviu-
dagskrá - öll heima-
löguð. Munið þið:
Gautana ‘66, ein-
söngvarann í Vísi ‘68,
partý frá ‘68, kvenna-
kórinn Stjórnandi,
Matlock Smælý og
kínverskan alþýðu-
kór? Þetta getið þið
rifjað upp á Hótel
Sögu með okkur
öllum hinum!
Ekki þarf að taka
fram að á eftir verður
stiginn dans að hætti
Siglfirðinga og barinn
verður meira að segja
opinn.
Heiðar formaður
ætlar að messa yfir
okkur og verður á
honum skeiðklukka
með tíu mínútna
tíma.
Veislustjóri verður
enginn annar en Jón
Sæmundur, sonur
Sigurjóns og Ragn-
heiðar.
Miðaverð? Það
verður niðurgreitt úr
digrum sjóðum
félagsins og því
aðeins kr. 5.000,- á
mann. Miðarnir verða
seldir í anddyri
Súlnasalar mánudag
7. og þriðjudag 8.
október kl. 16 - 19 og
þar verður einnig út-
hlutað borðum.