Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - apr. 1992, Side 2

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - apr. 1992, Side 2
2 SIGLFIRÐINGAFÉLAGIÐ í REYKJAVÍK OG NÁGRENNI SIGLFIRÐINGAFÉLAGIÐ í REYKJAVÍK OG NÁGRENNI FRÉTm * BRÉF Útgefandi: Siglfírðingafélagið í Reykjavik og nágrenni Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gunnar Trausti Guðbjörnsson. Ritnefnd: Gunnar Trausti Guðbjörnsson Guðmundur Stefán Jónsson Hlín Sigurðardóttir Sólveig Ólafsdóttir Steingrímur Lilliendahl Um 47% greiddu félagsgjaldið Gíróseðlar voru sendir til 1140 félagsmanna fyrir árið '91 og hafa 536 greitt, eða um 47%. Öllum félagsmönnum í SÍRON voru sendir seðlar nema 67 ára og eldri sem er í sjálfs- vald sett hvort þeir greiða eður ei. Fólki er bent á að ef það af einhverjum ástæðum vill ekki vera skráð í SÍRON getur það haft samband í póshólfið eða við Önnu Laufey Þórhallsdóttur. Fjölskyldudagurinn verður 17. maí n.k. Hinn árlegi fjölskyldudagur verð- ur að Kirkjuhvoli í Garðabæ þann 17. maí n.k. Sú nýbreytni í fyrra að dekka borð í hliðarsal og minnka þrengslin sem hrjáð hafa þessa 300 sigl- firðinga mæltist vel fyrir. Allir fengu sæti strax og gátu byrjað að gæða sér á gómsæt- um tertum og brauði sem siglfirskar konur undir stjórn Ástu Einars hafa séð um að baka í gegnum tíðina. Eins og annarsstaðar kemur fram í blaðinu lætur Ásta nú af formennsku nefndar- innar sem hefur séð um Fjölskyldudaginn og Kittý Gunnlaugs tekur við. Starfsemi fjölskyldudags- nefndarinnar byggist á sjálfboðavinnu og er leitað til kvenna í SÍRON um tertubakst- ur. Fréttabréfið vill hér með hvetja alla baksturshæfa siglfirð- inga að gefa sig fram, og leggja sitt af mörk- um til þessarar stærstu samkomu SÍRON. Frá Siglfirðingakaffi 1988.

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.