Vesturland

Volume

Vesturland - 20.01.1927, Page 2

Vesturland - 20.01.1927, Page 2
( 2 Útgerðin Og bæjarstj.meirihlutinn. Gamalt máltæki segir, að sá sem afsaki sig, ásaki sig. Þetta sannast nú á Skutli og nánustu aðstandendum hans. Undanfarnar vikur hefir blaðið sífelt stagast á því, að meirihluti bæjarstjórnar eigi enga sök á erf- iðleikum þeim, sem nú eru fyrir dyrum hér á ísafirði. Blaðið segir að meirihluti bæjarstjórnarinnar hafi ekki haft né getað haft nein áhrif á stjórn, rekstur eða afkomu atvinnumála í bænum. Stjórnþeirra hefir verið í höndum auðvaldsins og þess er sökin, segir blaðið. Skutull treystir þvi nú sem fyr, að þann sé með skrifum sínum búinn að veikja svo dómgreind almennings að honum megi alt bjóða. Annars hefði hann ekki leyft sér að bera slikt á borð, því alt er , þetta sagt og skrifað gegn betri vitund. Eg er ekki í neinum vafa um það, að séra GuðmMndur, Vil- mundur læknir og jafnvel Finnur vita það mjög vel, að þó að meiri hluti bæjarstjórnar ekki hafi tekið beinan þátt i stjórn atvinnufyrir- tækjanna, þá hefir hann haft afar mikil áhrif á afkomu þeirra. Og mikið mega þeir, þremenningarn- Ir, bæta ráð sitt, ef þeim á að takast að þvo af sér þann smán- arblett, sem á þeim er, vegna framkomu þeirra, ekki aðeins við atvinnurekendur, heldur og við allan almenning, sem nú er at- vinnúlaus, mest fyrir þeirra til- verknað. Hefir ekki öll framkoma þeirra verið látlaus ofsókn á hendur atvinnurekendum ? Fá munu þau tölublöð Skutuls, sem ekki hafa predikað það, hvf- lik bölvun stafi af atvinnurekend- unum. Þeir hafa verið óvirtir á alla lund og ekkert talið eftir þá liggja annað en það, að „fram- leiða“ töp fyrir bankana. Og sama hefir kveðið við á öllum borgara- fundum. Eg minnist þess ekki að hafa verið á fundi hér, þar sem aðal- foringi „öreiganna“, tekjuhæsti maður bæjarins, ekki hefir lialdið æsinga- og níðræður um atvinnu- rekendurna. Hann hefir aldrei gleymt því að minna sitt fólk á það, að alt basl alþýðunnar væri atvinnurekendunum að kenna og að öil von hennar bygðist á þvi, að þeim yrði á kné komið. Eftir þessari mælisnúru hefir meirihluti bæjarstjórnarinnar snið- ið gerðir sínar nákvæmlega. Ald- rei hefir hann sýnt neina viðleitni i því að draga úr hinum hóflausu álögum hér i bænum. Þegar sýnt var fram á það og sannað, að útsvörin hér væru tvöföld, jafn- vel margföld við það, sem ann- arsstaðar er, sveifst núverandi meirihluti þess eigi að hækka út- svörin um kr. 12000, og fjár- hagsnefnd hafði jatnvel lagt til að þau yrðu hækkuð um kr. 26000 en heyktist á því, þegar henni var bent á það, að bæjarstjórn bristi lagalega heímild til þess, VESTURLAND. I r\ I|r'i.Ir* Vélskip til soliii Eflirtöld vélskip eru til sölu: SJ0FN stærð 31,80 smálestir. Efni: eik, með 50 HK Bolindervél. FRIGG — 27,60 — — eik, — 48 HK Alphavél. FREYJA — 27,17 - — — eik, • — 70 HK Finnöjvél. GYLFI — 25,60 — — eik, — 45/50 HK Finnöjvél. SÆFARI — 26,91 — — eik, — 36 HK Alphavél. PERCY — 43 — — eik, — 55 HK Greivél, KVELDÚLFUR — 23,55 — — eik, —. 40 HK Bolindervél. HELENA — 35,89 _ — fura, — 40 HK Bolindervél. KÁRI — 27,68 — — fura, — 60/70 HK Finnöjvél. SNARFARI — 26,65 — — fura, — 36 HK Alphavél. BIFR0ST — 27,16 — — fura, — 40 HK Skandiavél. Væntanlegir kaupendur snúi sér til stjórnar íslandsbanka i Reykjavík eða stjórnar Útbús íslandsbanka á ísafirði, sem gefa all- ar nánari upplýsingar. Útbú íslandsbanka á ísafirði. r^lr’i nema með samþykki stjórnarráðs- ins. Þessi meirihluti er merkilega fundvis á nýja útgjaldaliði. Þegar annað þraut, fann hann upp það snjallræði, að setja nokkur þús- und i búskap á Seljalndi. Siðan voru stofnuð ný embætti með launum úr bæjar- og hafnarsjóði, og Þegar það „lið“ var orðið nægilega mannmargt, gat bærinn auðvitað ekki haft skrifstofurnar f sinu eigin húsi eins og verið hafði. Þar þurfti sem sé enga húsaleigu að borga, en nú komst bærinn að þeim vildarkjörum að greiða margar þúsundir króna fyrirfram fyrir húsnæði. En þvl meira fé, sem bærinn festir á þann hátt, þvf meira get- ur hann skuldað, og því hærri geta útsvörin orðið. Þegar meirihlutanum hefir verið bent á, að bærinn hafi ekki fé til að leggja f þessi eða hin fyrir- tæki, hefir svarið jafnan verið: þá tökum við það úr vasa borg- aranna. Okkur er vfsað f vasa borgaranna. Þaðan eiga pening- arnir til bæjarins að koma. Og það væri synd að segja, að þessi „ávfsun“ hafi ekki verið not- uð. Höfuðið var þó bitið af skömm- inni með Hæstakaupstaðarkaupun- um. Tflgangi þeirra, sem vildu hér alt f rústir, var f raun réttri náð með þeim kaupum, þvf þau gerðu tvent f senn: gerðu arðlitlar og verðlitlar eignir aðalatvinnurek- endanna, og skattlögðu auk þess alla framleiðslu hér f bænum svo gffurlega, að þessi nýi skattur nemur tugum þúsunda áriega. Sá Ieikur sem þeir kommúnist- arnir, Finnur Jónsson, séra Quð- mundur og Vilmundur læknir þá léku, var ljótur og hefi eg aldrei verið f vafa um, að ástæður þeirra fyrir kaupunum voru þær, að þeir sáu — alveg réttilega — að kæm- ust þau á, mundu þau fyr eða sfðar leiða til þess að hér yrði öllum atvinnurekendum ólfft. Þeg- ar það svo sýndi sig að rekstur einstaklingsins gæti ekki þrifist hér, gætu þeir komið óskabarni sfnu, þjóðnýtingunni eða bæjar- nýtingunni að. Þetta er skiljanlegt séð frá þeirra sjónarmiði sem kommúnista, en ekki höfðu þeir hreinskilni til þess að koma til dyranna eins og þeir voru klæddir. bvert á móti lýstu þeir þvf yfir oft og mörgum sinn- um, að bærinn yrði aldrei fyrir fjártjóni vegna kaupanna og að enginn nýr skattur yrði þeim 6am- fara. Á þennan hátt tókst að vinna kaupunum fylgi og var sá leikur ljótnr á alldn hátt, en e. t. v. þó hörmulegast að sjá, að með þessum niðurrifsmönnum hjó sá, sem rfkisstjórnin hafði sett hér borgurunum til hlifðar. Það er þó langt frá þvf, að alt tjón atvinnurekendanna vegna Hæstakaupstaðarkaupanna sé tal- ið með verðlækkun eigna þeirra, tekjurýrnun og hinni nýju skatt- lagningu. Með þeim veitist einnig ófyrirleitinni bæjarstjórn eða hafn- arnefnd færi á að bakaþeimmik- iö fjártjón og mörg óþægindi. Það kann að verða sagt, að ekki sé hætta á sliku, en eg skal ef óskað er, sanna það, að hafnar- nefnd hefir f skjóli Hæstakaup- staðarkaupanna gert sér leik að þvi að baka einum fiskútflytjanda hér allmikið fjártjón algjörlega að nauðsynjalausu. En oflangt mál yrði það hér, ef rekja aetti til hlýtar alla þá bölvun, sem af þessum margnefndu kaupum staf- ar. Þegar athugað hefir verið, það sem að framan er sagt, sjá menn væntanlega, hvað mikið er hœft

x

Vesturland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.