Vesturland - 20.01.1927, Side 4
4
VESTURLAND
kemur út einu sinni í viku.
kostar 7 kr. um árið.
Gjalddagi 1. oktober.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður
Sigurður Kristjánsson.
Ritstjórinn til viðtals kl. 4-5
dagl. í Hafnarstr. 1. Sími 99.
Afgreiðslum. Loptur Gunn-
arsson Aðalstrœti 11. Sími 37.
„JLltlu munarrt
sagði músin.
Sú kátlegasta skrípasaga, sem
færð hefir verið í letur er sagan:
Don Quixote eftir spanska skáld-
ið Cervantez. Saga sú er frá vold- í
ugum riddara, sem varði æfi sinni
og lífsstarfi til að berjast við
vindmylnur. Hann dró í leiöang-
ur við alvæpni á merhryssi, sem
Rosinante hét, og hafði með sér
skjaldsvein, Sancho Pansa að
nafni, undra heimskan sveinstaula,
en trúan sem gull herra sínum.
Sá hafði asna að fararskjóta. Á
þeim öldum voru vindmylnur á
hverju strái i Spánverja landi, og
hvert sinn, sem Don Quixote leit
-eina slíka, einkum ef vindur var
á svo vængirnir snerist, hugði
hann þar fara grimman óvin. Fylt-
ist hann þá hamslausri reiði, keirði
Rosinante sporum og réð að fjanda
þeim með blóti og bölvi. En jafn-
an fór svo, að óvinurinn laust
riddarann með vængjum sínum
og kastaði honum langar leiðir eft-
' ir vellinum. Lá hann svo þar
ringlaður, lerka og ósjálfbjarga
uns skjaldsveinninn kom til, lilúði
að og hjúkraði honum þangað til
hann var svo hress órðinn, að
hann gat byrjað á nýjum leik.
Sagan endurtekur sig, segir mál-
tækið.
Vilmundur Jónsson héraðslækn-
ir reisti nokkurar vindmyinur í
Vesturl., sem út kom 12. desem-
ber f. á. Réðst hann svo að þeim
með ofurhug og mikilli grimd. En
_ honum fór sem fyrirmyndinni,
Don Quixote hinum fyrsta, vitid-
mylnur hans lustu hann með
vængjum sínum, og lá hann óvíg-
ur á vellinum. Þetta gat að líta
Sancho Pansa Vilmundar, Ingólf-
ur Jónsson, bæjargjaldkeri. Fylt-
ist hann þá mikilli reiði, söðlaði
asna sinn, Skutul, og hleypti fram
á vigvöllinn hinn 31. des. f. á.
Hann var við alvæpni og hafði
hlifar góðar. Brynju hafði hann,
gerfa af hroka og svo trausta að
hvorki máttu rök né sannindi á
festa. Sverð hafði hann og gott,
og var eggteinninn úr ósannind-
um ger. Burtstöng hafði hann
geysilanga; var sú dvergasmíði,
einjárnungur ger úr grunnýðgi.
En vindmylnur herra hans voru
eigi árennilegar og réði hann þvi
aL að hætti slunginna skilminga-
manna, að koma eigi I námunda
við ofureflið, heldur reisa sjálfur
vindmylnur, er væru honum nokk-
uru jafnari að vexti og styrkleika,
og ráða síðan niðurlögum þeirra.
il I I il Illll Ifl - I
Alúðar þakkir til alira
þeirra seni auðsýndu hlut-
tekningu og hjálp við fráfall
og úttör Guðrúnar Stefáns-
dóttur frá Kambi.
ísafirði 13.1. 1927.
Aðstandendur.
í grein minni í Vesturl. 19. des.
f. á. gerði eg grein fyrir hvers
vegna eg hefði átalið V. J. fyrir
að taka hærri gjöld fyrir læknis-
verk en lög heimila og sagði og
sýndi að það átti ekkert skylt við
politískar stefnur né flokka. En
þá hafði V. J. gert tilraun til að
breiða politiska píslarvættisblæju
yfir ávirðingar sínar en var þannig
sleginn af því lagi. Nú kemur
þessi nýmóðins Sancho Pansa og
kveður mig eigi aðeins hafa gert
politiska árás á V. J. með átölum
mínum, heldur hafi eg þar fram-
kvæmt flokkssamþykt íhaldsflokks-
ins. Og til þess að engum, sem
annars Ies Skutul, skyldi sjást yfir
þetta, flytur hann staðleysustafi þá
með niðurvlsun. Hinn 28. nóv. f. á.
varð eg að lýsa V. J. opinberan
ósannindamann að fleipri, er hann
þá hafði farið með, og kingdi
hann því. Verð eg nú að gera
þjóninum sömu skil og herranum
þá, og lýsa hann vísvitandi, op-
inberan ósannindamann að því,
að íhaldsflokkurinn hafi áttnokk-
urn þátt í eða vitað nokkuð um
átölur mfnar á V. J. fyr en þær
komu fram í blaðinu. Enda eru
ummælin sjálfdauða. Að visu má
svo vera, að það sé góð latina
meðal Bolsa að Ieggja llf sitt og
velferð á vald einhverjum manni
og ganga síðan fyrir hvers manns
dyr og lýsa ávirðingum hans og
ágöllum, er gera hann óhæfan til
alls trúnaðar. Þvi er Ingólfur Jóns-
son kunnugri en eg. En íhalds-
menn allir eru hyggnari og dreng-
lundaðri en svo, að þeir drýgi
sllka fúlmensku. Nú er það vlst,
að fjölmargir íhaldsmenn leita V.
J. sem læknis, og má þá nærri
geta hvort þeir muni þannig dríta
í sitt eigið hreiður, að gera að
flokksmáli að halda á lofti ávirð-
ingum hans. Manntötrið, Ingólfur,
hefir með fleipri þessu sýnt sína
andlegu rækt svo brjóstumkennan-
legt er.
Ingólfur Jónsson hefir nokkur-
um sinnum sýnt með notarial-
vottorðum i Vesturl., að bókfærsla
á skrifstofu bæjarins er I „synd-
ugri“ óreiðu. Samkvæmt fylgi-
skjölum með bæjarreikningnum
fyrir árið 1925, voru V. J. greidd-
ar úr bæjarsjóði 7694 kr. fyrir
læknishjálp á 11 fyrstu mánuðum
þess árs. Eg veit ekki hvort fylgi-
skjöl þessi eru í samræmi við
bækur bæjarskrifstofunnar eða
bækurnar í samræmi við þau. En
að dæma eftir ummælum I. J. og
notarialvottorðum hans, virðist
mér eigi vanþörf á að slíkt væri
athugað jafnframt því að bækur
og reikningar V. J. eru endur-
skoðuð.
Mér er fullljóst, að það, sem
V. J. hefir haft af bæjarsjóði fram
yfir það, sem honum bar, eru
Söltunarsvæði á Siglufirði.
Opinbert uppboð verður haldið iaugardaginn 5. febrúar næst-
komandi á afnotarétti að söitunarsvæðum hafnarsjóðs með húsum og
3 hryggjum yfir tímabilið frá 1. júlí næstkomandi til 1. júll 1928.
Söltunarsvæðið verður þrískift, og boðið upp I þrennu lagi og fylgir
ein bryggja og húsnæði hverjum hluta, svo og verkfæraskúr eða her-
bergi undir verkfæri.
Afnotaréttur húsanna nær aðeins til 20. okt. næstkomandi og
hafnarnefnd skal heimilt endurgjaldslaust á tfmabilinu frá 5. nóvem-
ber til 30. júní 1928 að láta skipa upp fyrir sig eða aðra þegar ekki
stendur á útskipun eða uppskipun hjá leigutaka. Hamarshögg verður
aðeins veitt á uppboðinu með því skilyrði að hafnarnefnd og bæjar-
stjórn telji boðin viðunanleg og telji næga framboðna tryggingu fyr-
ir boðunum.
Uppboðið hefst kl. 1 síðdegis á söltunarsvæðinu. Nánari upp-
lýsingar og uppboðsskilmálar á bæjarfógetaskrifstofunni.
Skrifstofu Siglufjarðarkaupstaðar 11. jan. 1927.
Griiðm. Hannesson.
smámunir einir í samanburði við
hitt, sem hann hefir haft af öðr-
um. En, eins og eg tók fram 19.
des. t. á., á eg ekki átölurétt í
þeim efnum fram yfir það, sem
borgararéttindi mfn I bæjarfélag-
inu heimila. Úr þessu efni hafa
þessir nýmóðins Don Quixote og
Sancho Pansa bygt sína vind-
mylnuna hvor, og síðan hamast
á henni til að jafna við jörðu.
Það er alþekt fyrirbæri, að ráð-
þrota menn gripa aukaatriði, sem
I sjálfu sér engu varða það, sem
um er rætt, og bðlsótast svo um
þau til þess að fá almenning til
að gleyma þvi raunverulega mál-
efni, sem um er rætt, í hávaðan-
um, sem þeir gera um aukaatrið-
in. Og það fangaráðið hafa þess-
ir samherjar tekið. Þeir hafa þyrl-
að upp pólitísku moldviðri og
blásið upp aukaatriði til þess að
almenningur gleymdi þvi höfuð
hneiksli: Að Vilmundur Jónsson
héraðslæknir, konunglegur em-
bættismaður og bæjarfulltrúi, hef-
ir krafist og fengið greiddar 125
—150 krónur fyrir íæknisverk,
er honum samkvæmt gildandi
landslögum í hæstalagi geta bor-
ið 35 kr. fyrir.
Skrif riddarans og skjaldsveins
hans hafa verkað það eitt, að
staðfesta þetta. Og hverju, sem
þeir bæta við, má segja eins og
músin: „Litlu munar". — Haf-
ið er stórtl
Páll Jónsson.
Símfréttir.
Útlendar.
Samningar standa yfir milli Can-
tonstjórnarinnar í Klna og Eng-
lendinga.
Samningur milli Þjóðverja og
Bandamanna um ýms óútkljáð
atriði, viðvíkjandi afvopnunar-
málunum, ganga I mesta þófi.
Borgarstjórinn I Shanghai, og
útlendingar þar I borginni, hafa
ákveðið að verja hana fyrir Cant-
onhernum, er nú sækir að henni.
Herskip stórveldanna hafa safn-
ast saman í Shanghai.
Hátamótor.
„Populer‘'-véI — 31/* ha. —
nokknð notuð en í ágætu ástandi
til sölu með hálfvijði. — Til sýn-
is hjá
G. Andrew.
Skóvinnustofa
mín gerir við reiðtýgi og ak-
týgi yfir mánuðina jan., febr.
og mars — aðra tfma helst
ekki. Sendið þvi strax reið-
týgi yðar.
Ó. J. Stefánsson.
Brauðvörusala
(frá Norskabakaríinu)
fer fram i Mjóikurbúðinni i Fjarö-
arstræti 29.
Jón Jónsson.
tskófatnaðurinn!
▼í ver6lun M. Magnússonar
♦ ísafirði,
éer traustur fallegur og ódýr.<
X Ávalt miklu úr að velja.
♦♦♦<
Undirrltuð tekur að sér
að hreinsa gera við og pressa
karlmannaföt.
Kristín Kristmundsdóttir.
Hafnarstræti 17. fsafirði.
1500 Innflúensu tilfelli I Kaup-
mannahöfn. Veikin er mjög væg,
Innlendar:
Sjúkrasamlag er nýlega ntofn-
að f Vestmannaeyjura. Meðlimir
eru þegar 230.
Áætlun um tekjur og gjöld
Reykjavikur fyrir árið 1927 hefir
nú verið samin og lögð fram. Eru
tekjur áætlaðar kr. 2 231 500 00
en árið 1926 kr. 2 409 079 20. Út-
svör lækka úr rúmri hálfri annari
miljón, niður í kr. 1 200 000 00.
Skattur á Samvinnufélögunum
hefir hækkað úr 20 þús. upp I 40
þús. samkv. gildandi lögum.