Vesturland - 12.04.1927, Side 2
2
VESTURLAND.
inn, af skiljanlegum ástæðum, hlyti
fyrst um sinn að verða aðalathvarf
vort. — En margt bendir til þess
síðari árin, sérstaklega síðan fram-
leiðslan jókst svo hröðum fetum,
að það sé meira en valt, að byggja
allar framtíðarvonir sjávarútveg-
arins á þessum stöðvum. — Portú-
galsmarkaðurinn er að vísu grfðar
mikill, siðastl. ár um 43 þús. tons,
sem mun vera mun meir en allur
innflutn. til Spánar, og þar höfum
vér þó sama sem engin ítök. —
Eg hefi því hvatt til þess að reyna
með reglubundnum smærri send-
ingum, smátt og smátt að ná þar
ítökum, og helst að styrkja ungan,
duglegan mann til að taka sér þar
aðsetur. — Þá er Suður-Ameríku-
markaðurinn. Vegna ýmsra ann-
marka, sérstaklega með verkunar-
mátann, umbúðirnar o. fl., tekur
langan tíma, að ná þar verulegum
markaðstökum. Eg hefi því í seinni
tíð gert mér töluvert far um, að
fá menn til að sinna þessum mark-
aði með því að senda þangað 1 —
2 ár fyrst um sinn, reglubundnar
smásendingar, og fyrir forgöngu
mikilsmetins fjármálamanns þessa
bæjar, lítur út fyrir að nú sé að
komast skrið á þetta mál.
Þegar eg fæ tóm til að góma
aðalþræðina í framangreindum
miklu málalengingum hr. G. E.,
þá mun eg víkja nánar að öllu
því, sem einhverju máli skifir, og
birta það í Verslunartiðindunum.
En af því að S.-A.-málið, sem
stendur, er á dagskrá hér, verð
eg hér, með sundurliðun að sýna
fram á, að hr. G. E. fer með blekk-
ingar, er hann staðhæfir, að eg
taki aðeins nokkurn hluta kostn-
aðarins til S.-A., til þess að láta
söluhorfurnar þar sýnast betri en
þær raunverulega séu.
í skýrslu minni 25. okt., er til-
greint verð í S. Pauio, um miðjan
sept. 150 Milreis per kassa á 58
kíló, og reiknað út í ísl. krónum
268.00 per skippund. Hér frá hefi
eg dregið allan kostnað, með krón-
um 90.00, og verða þá eftir sem
svarar til fob. kr. 178.00 per skip-
pund. — En frádreginn kostnaður
er þessi: Flutningskostn. til San-
tos, skv. gjaldskrá Eimskipafél. pr.
skpd. 20.00. Kassaumb. 11.00. Sjó-
vátr. & 3 mán. disconto 5.00
16.00. Áætlað flutn.gj. til Santos
S. Paulo 5.00. Tollur og verðt.
32.00=37.00. Kælihúsgeymsla og
umboðslaun 2% 7.00. Rýrnun í
vigt fyrir meiri þurk en til Mið-
jarðarhafs 10.00 kr. 90.00 á
skpd.
i; Sem heild ætti þessi kostnaóar-
áætlun að standast. — Hugsast
getur að utpb. séu reiknaðar full-
lágt, ef þær ættu að kaupast hér
í Rvík, en þess gerist ekki þörf.
— Við útreikning er Milreis reikn-
að á 7x/iu d., en var þennan dag
7Va d., sem samsvarar Brúttó
rúml. 284 kr., með 22 kr. gengi.
— Það verður því trauðla sagt,
að eg liafi farið óvarlega í út-
reikninginn.
Um liina staðina er það aðsegja,
að þar er alt hið sama frádregið,
nema tollur og kælihússgeymsla,
sem ekki kemur til greina, af því
verðið þar er miðað við cif-veró,
eins og hitm ntikli verðmunur í
S. Paulo t. d., og Rio, ber með
sér. — En geta má þess þó, í þessu
sambandi, að gengið á Milreis mun
víðast hvar reiknað lægra en það
raunverulega var á hinum ýntsu
tilfærðu tímum.
Eg hefi í bili ekki tóm til að
fara nánar út í útreiknings-til-
færslur hr. G. E. I Portúgal o. s.
frv., enda skiftir minna þó það
bíði. En það verður athugað síðar.
Framangreint er nægilegt til að
sýna, á hvaða rökum, staðhæfing-
ar hr. G. E. eru bygðar hvað Bras-
ilíu snertir, og svo mun reynast
vlðar, þegar nær er gengið.
Reykjavik, 15. rnars 1927.
Pétur A. Ólafsson.
Bæjarstjórnarfundur
var haldinn 6. þ. m. Á dagskrá
var:
Kærur um Alþingiskjörskrá. Þær
voru alls milli 30 og 40, en að-
eins 9 þeirra voru teknar til greina,
þannig að út af kjörskrá voru
teknir 7, en á hana bætt tveim.
Erindi frá Guðmundi Jónssyni
frá Mosdal um lóð undir hús til
iðnar hans vísað til byggingar-
nefndar.
Halldór B. Halldórsson sagði
upp leigu á fjörulóð, er hann
hefir leígt af bænunt.
Formaður Djúpbátsstjórnarinnar
sótti um rekstursstyrk til Djúp-
bátsins. Því erindi vísað til fjár-
hagsnefndar.
Sigurður Ásgeirsson bauð bæn-
utn kaup á lóð við Silíurgötu.
Málinu vísað til bygginganefnd-
ar.
Siðasta mál dagskrárinnar var
lausnarbeiðni oddvita frá oddvita-
síarfi bæjarstjórnar. Fór hann frant
á, að leytað yrði með atkvæða-
greiðslu vilja borgaranna í þessu
efni.
Sérstök nefnd var kosin til að
íhuga það mál og undirbúa það
til bæjarstjórnar, og hlutu sæti í
nefndinni: Oddviti, Matthías Ás-
geirsson og Jón M. Pétursson.
Fundur stóð lengi yfir og urðu
mestar umræður um kærurnar við
Alþingiskjörskrána. Meirihlutinn
semur og ræður kjörskránni og
skoðar hana setn fat, er sníða
beri svo að það falli sem hagan-
legast að hinum pólitíska flokks-
líkatna. En af því bolsevisminn er
ekki íturvaxinn, verður sumstaðar
að skera úr nokkuð truntalega,
en annarsstaðar að auka á af
öðru efni. Er þá meir farið eftir
lit en efnisgæðum. En skraddar-
arnir í meirihlutanum þola fátt
ver en það, að fundið sé að flík-
inni. Tóku þeir hverri aðfinslu svo
sem þeir væru stungnir á hol, og
bar orðbragð og raddblær þess
ljós merki, að stungurnar höfðu
lent nærri gallinu.
Ritstjóri Vesturlands neitaði sér
um að sitja nema 2 tíma á fund-
inum, og var þá ekki lokið um-
ræðum um fyrsta málið. Tók það
og lengstan tíma. Þó urðu tals-
verðar umræður um lausnarbeiðni
oddvita -- að Iokum. En langa
stund fyr en þær byrjuðu, þögðu
allir, og skildi enginn þá þögn, fyr
en upp stóð hinn orðvari Vilrnund-
ur og sagði, að meirihlutinn gæti
ekki tekið afstöðu til þessa máls,
jyr en minnihlutinn hefði sagt
hvað hann ætlaði að leggja til
málanna og skoraði á hann að
gera það.
Minnihlutafulltrúarnir töldu sig
ekki mundu fá ráðið úrslitum
þessa máls fremur en annara í
bæjarstjórn, og kom þeim ekki til
hugar, að meirihlutinn þurfti að
fá þessa vitneskju til þess að ltann
ekki lenti sama megin og minni-
hlutinn. Smaug málið svo í nefnd,
að hvorki meiri- né minnihluti
tók til þess afstöðu. Er þetta í
5. sinni, sem síofnað er til slíkrar
atkvæðagreiðslu hér á ísafirði.
Vilmundur kallaði þessa atkvæða-
greiðslu „skrípaleik", og mun
nafnið dregið af því, að hann og
nánustu fylgifiskar hans hafageng-
ist fyrir henni þrjú síðustu skiftin.
Oddvita er það að vonum mikið
áhugamál að losast við þessi störf,
setn orðin eru allumfangsmikil.
Hlýtur og hver sá, er þessum mál-
utn á að stjórna, að finna, á hve
miklu kviksyndi hann stendur og
vonleysi um svívirðulausa land-
töku, þótt ekki tryði hann því
fornkveðna: Að sjaldan ræður sá
sigri, er heimskan her leiðir.
Borgarafundur
í Bolungavik.
Herra ritstjóri „Vesturlands"!
Eg bjóst við, að lesendur blaðs
yðar gætu haft ganan af nokkrum
Iínum um borgarafund, sem hald-
inn var hér sunnudaginn 27. f. m.
Fjörutíu borgarar höfðu skorað
á oddvita, að boða til almenns
sveitarfundar og taka þar þrjú á-
kveðið mál til umræðu og skýr-
inga beiðst á þeim. Var þessi á-
skorun síðan rædd á tveimur
hreppsnefndarfundum og var odd-
vita falið að ákveða fundardaginn,
en engin dagskrá var sett á fund-
arauglýsinguna, og hafði þó einn
nefndarmaðurirtn, Pétur Oddsson,
lagt til, að dagskráin yrði sú, sem
borgarar báðu um, ásamt fleiri
ntálum.
Fundinn setti oddviti kl. rúml.
5 síðd. Gat hann um áskorunina
og þau mál, sem þar liafði verið
beðið um, en þau voru:
1. Innheimta sveitargjaldanna.
2. Hreppsreikningurinn m. aths.
3. Nökkvamálið.
Tjáði oddviti þá, að ltann heföi
hugsað sér sem 4. mál á dagskrá
Fjallskilamál, og gaf síðan orðið.
Jóhannes Teitsson lagði fram
tillögu um, hver dagskráin skyldi
vera, og var fjórða málið þar
vantraustsyfirlýsing á oddvita frá
Örnólfi Hálfdánssyni. Vildi odd-
viti ekki lesa tillöguna upp, og
kvað vanalegt að oddviti réði dag-
skránni. Aftur liélt Jóh. Teitsson
því fram, að það stæði sérstak-
lega á með þennan fund. Var síð-
an borið undir fundinn, hvort odd-
viti skyldi ráða dagskránni eða
borgarar, og var samþ. að borg-
arar réðu henni.
Urðu síðan miklar umræður um
innheimtuna af hálfu borgara töl-
uðu aðallega Jóh. Teitsson og
Högni Gunnarsson, einnig Bárð-
"eir sem vilja ala sér upp sjálf-
ir rófnafræ, geta fengið til þess
leiðbeiningar og ágætt íslenskt
fræ hjá
Sigurði Kristjánssyni
Hafnarstræti 1.
Til leigu.
Nokkur hluti af bæjarhúsum á
Garðstöðum, er til leigu nú þeg-
ar. Talið við
Ögursystur.
Franskt
alklæði
nýkomið í
Verslun Dagsbrún.
ur Jónsson og nokkrir fleiri. Voru
ýmsar fyrirspurnir gerðar til odd-
vita og hreppsnefndarinnar i heild,
en fáum þeirra svarað og þótti
fundarmönnum það kynlegt. Virt-
ist það kotha í ljós af umræðun-
um, að ólag nokkurt væri á inn-
heimtunni. Var svo við það mál
skilið, að næsta litlar upplýsíngar
fengust, og engin ályktutt gerð.
Næsta mál hreppsreikn. ásamt
ath. Las oddviti ttpp reikning
hreppsins fyrir síðastliðið fardaga-
ár, ásamt ath. endurskoðenda og
svörum reikningshaldara. Einnig
las hann upp bréf frá sér til end-
urskoðenda og svar þeirra, við-
vikjandi kviksögum, sem honum
höfðu borist um störf sín. Hélt
hann síðan langa ræðu utn þann
söguburð. Þótti þá mörgum mjög
vikið frá málefninu, og var odd-
viti oft ámintur um að halda sér
við málefnið. Umræður urðu tals-
verðar, en engin ályktun gerð.
3ja mál „Nökkvamálið". Urðu
um það nokkrar umræður. Var
þess vænst að oddviti rekti gang
málsins frá byrjun, og skýrði frá
þeim ályktunum og framkvæmd-
um, sem gerðar hafa verið í þvi,
en það fór mjög á aðra leið. Voru
þó ýmsar fyrirspurnir gerðar, en
þeim fáum svarað.
' Þegar hér var komið, var kl.
orðin þrjú um nóttina og gekk
þá oddv. af fundi. Var skorað á
hann að sitja fundin til enda eða
slíta honum á viðeigandi hátt, en
það kom fyrir ekkert. Heyrðistþá
hrópað „niður með oddvita“.
Voru menn yfirleitt mjög óánægð-
ir tneð fundin og una Iítt þessum
málalokum.
Högni Gunnarsson.
Ath.
Þótt Vesturlandi þyki það ekki
líklega til getið, að lesendur þess
alment hafi mikinn áhuga á sveit-
armálefnum Bolungarvíkur, sér það
ekki ástæðu til aö sinja hr. Högna
Gunnarssyni rúms fyrir þessa grein.
og er þá hlutaðeigendum einnig
heimilt i blaðinu hæfilegt rúm til
andsvara.
Ritstj.