Vesturland

Ukioqatigiit

Vesturland - 15.05.1927, Qupperneq 4

Vesturland - 15.05.1927, Qupperneq 4
4 VESTURLAND. Herradómur Högna Og hreinskilni Vesturlands. R'tstjóri „Vesturlands!,, Kunningi minn sendi mér ný- skeð 13. tbl. þ. á. af blaði þínu, dags. 12. þ. m., sem m. a. flytur frásögu af borgarafundi sem hér var haldinn. Þar sem þetta er nú í þriðja skifti sem þú lætur blað þitt flytja óþykkjugreinar í minn garð — og eg hefi áður ekki virt þær svars, en þú í ámintu blaði nú boðið rúm til andsvara, er rétt að eg reki þessa frásögu nokkuð, enda þótt ailir kunnugir viti, að hún er jafn fjarri réttu og gamla „Kára" greinin í „Vesturl.", sem sakaði mig um harðleikni i viðskiftum og samanburðurinn við Sölva Helgason; eða m. ö. o. venjuleg- ur Vesturlandssannleikur. Fyrst I frásögn þessari er sagt frá því, að borgarafundurinn hafi verið haldinn 27. mars. Vandalít- ið sýnist vera að fara rétt með þetta atriði, en það er nú öðru nser. Fundurinn var haldinn 27. febr. s. 1. þá er frá því sagt, að 40 borgarar hafi skorað á oddvita að boða til almenns sveitarfundar. Talan er rétt en hitt vafasamt, að telja eigi sem borgara alla sem gjalda til sveitar, ef þeir að lög- um hafa ekki atkvæði um þau málefni, en svo er meðal annars um greinarhöf., að því viðbættu að hann galt ekkert til sveitar s. 1. fardagaár, en hann var einn af þeim 40. Ekki er það heldur rétt, að Pétur Oddsson hafi lagt til „að dagskrá yrði sú sem borgarar báðu um". P. O. gerði tillögu um það I hreppsn., „að oddvita væri falið að ákveða fundardag og dagskrá", en oddviti gat þess á hreppsnefndarfundinum, að hann myndi taka á dagskrá þau mál, sem óskað hafði verið eftir, eins og hann gerði. bá er enn ein aths. við forsend- ur þessarar fundarfrásagnar. Hún er sú, að oddviti óskaði eftir þvi að vera laus við fundarstjórn, en greinarhöf. og ýmsir aðrir lögðust mjög fast á móti því og fengu samþ. fundarins fyrir þvi, að oddviti yrði fundarstjóri. Lýsti oddviti því þá strax yfir, að hann myndi eigi láta þá kosningn binda sig til þess að sitja lengur á fund- inum en honum Iikaði. Þá kemur sjálf fundarfrásögnin. Eins og getið er í gr. var fundur settur kl. rúml. 5 (nákv.l. 52l) síðd.) og stóð til kl. 3 að nóttu. Flest- um ókunnugum mun nú verða á að spyrja: Hvaða ógnarkökkur hefir setið í mönnunum, að þurfa allan þennan tíma til þess að koma því fram úr sér sem þeir ætluðu að segja? — og að því er skilst á frásögn „Vesturl." voru þó ekki búnir nema að nokkru leyti. Annað mun þá ekki síður furða, sem vanir eru slíkum fund- um. Hversvegna voru engar álykt- anir bornar fram í málum þeim, sem rædd voru? er ekki eitthvaö gruggugt þar á bak við — eða var fundarhaldið frá hálfu sumra jnanna tómur leikaraskapur? Barnavagn í ágætu standi til sölu. Einnig hjólhestur. Gestur J. Árskóg. Herkastalanum. Rangfærslunum og ósannindun- um í frásögninni hirði eg ekki að svara frekara; það er hvorttveggja svo auðsætt; t. d. að oddviti hafi oft verið ámintur. Á fundinum sátu eigi eingöngu fjöldi manna héðan, heldur einnig mestan hluta fundarins þrír merkir borgarar frá ísafirði, þeir: Magn. Magnússon kaupm., Jón Brynjólfsson útgerð- arm. og Jóh. Bárðarson bæjarfull- trúi. Hefðir þú, ritstj. góður getað fengið hjá þeim hlutlausa frásögn eða álit og eg tel að hverjum ritstj. sem hefði viljað vita hið rétta sé skylt að gera það, áður en hann birtir eitt eða annað op- inberlega. Og því heldur geri eg þá kröfu til þín um þetta atriði, að þá hefir mikið breyst trúin á vitsmuni þína, ef þú ekki hefir strax séð i gegnum jafn götótta flík og þessi frásögn er. Alt tal greinarhöf. um fundar- lokin er svo ósvífnislegt, að sér- staka óskammfeilni þarf til. Hann getur þess, að heyrst hafi hrópað: „Niður með oddvita". Þaðerrétt, en greinarhöf. lætur þess ógetið hver það gerði. Hrópið gerði út- úrdrukkinn auðnuleysis jafnaldri greinarhöf., en enginn tók undir það, — jafnvel ekki greinarhöf., sem margir myndu telja maklega að slíkum félagsskap kominn. Eins er um það, að fundinum hafi ekki verið haldið áfram. Þar sem umræðutími var ótakmarkað- ur hefði hann getað staðið æði lengi. Svo er annað, sem margir munu kannast við frá slíkum fund- um, að þegar þeir hafa staðið jafn lengi og þessi er allur þorri fólks farinn og slíkir fundir þá réttnefndari fámennir en almennir. Svo var einnig með þennan fund. Kl. 3 sátu í húsinu rúml. 20 manns og ekki nærri allir af þeim áttu atkvæðisrétt um sveitarmál. Hvað gat það þýtt að halda svo fámenn- um fundi áfram? — Af hreppsn. hálfu var líka rétt á eftir (5. mars) boðið að halda fundinum áfram og var oddviti þess nijög fýsandi. En þá vildu þeir, sem mest hafa haft sig frammi I þessum málum, engan fund. Eg vil þessa vegna biðja þig, ritstj. góður — þótt verið geti að meinbón sé, — að áður en þú eða hlaupgjarnir æskumenn I skjóli þinu fitja næst upp, að í frásögn- inni verði heldur meiri hreinskilni og ofurlítið drenglyndi. Sannleiks- ást nefnir maður ekki, því eins og þér mun kunnugt forðast allir að nefna snöru í hengds manns húsi. Bol.vík, 30. aprfl 1927. Arngr. Fr. Bjarnason. Athugasemd. Eins og lesendum Vesturlands er kunnugt, fékk hr. Högni Gunn- arsson í Boiungarvík 12. april s. I. birta í blaðinu grein um borgara- fund f Bolungarvík. Gat eg þess í aths., að mér þætti ekki senni- legt, að lesendur blaðsins hefðu áhuga fyrir þessu máli. Hélt að Hráolíuhreifillinn ,,GREI“ er bygður úr aðeins úrvalsefni og allur frágangur hinn vandað- asti. Hann er traustur en óbrot- inn, gangviss og olluspar, með öllum nýtísku útbúnaði. Hinn á- byggilegasti skipa- og bátahreyf- ill. Festið ekki kaup án þess afr leita upplýsinga hjá umboðsmönn- um eða P. A. Ólafsson Reykjavík. jlliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiliiliiiiiiiliiiiiiiiiililiililliiiiiiinililliilllit | Ljósakrónur og lampar. | 1 Fjölbreyttasta úrval á íslandi f hjá | Jóni Sigurðssyní | 1 Austurstr. 7. Reykjavik Simi 830 g ^ílllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllllllllllllllllF Hangikjöt, Smjör, Skyr, Egg á 20 aura. Ólafur Pálsson. Margar tegundir af Blóm- sveigum og böndum. Lík- kistur og líkklæði ódýrast hjá Árna Olafssyni. þeir létu ekki fremur en eg, ná- grannakryt I Bolungarvík koma sér við. Mér er auðvitað með öllu ó- kunnugt um þau mál, sem þeir herrar H. G. og A. F. B. deila um, og er sú deila mér alger- lega óviðkomandi, þar eð báðir bera með undirskrift sinni fulla ábyrgð þess er þeir skrifa. Eg sá ekki ástæðu til að neita H. G. um rúm fyrir grein hans, af því að hún var kurteislega orð- uð, og gaf eg mótpartinum leyfi til andsvara í blaðinu í þvi trausti, að hann gætti hins sama, þótt sú von hafi ekki viljað rætast. Það mun nokkuð sjaldgæft, að kurteislegu tilboði blaðstjóra um rúm í blaði hans, til að ræða honum alóviðkomandi mál, sé svarað með klúryrtum sköinmum í garð blaðsins. Hitt mun einnig sjaldgæft, að menn sem komnir eru til aldurs og þroska, kunni ekki að greina inilli þess, sem menn fá birt í blaði undir eigin nafni og á eigin ábyrgð, og orða blaðsins sjálfs. En þótt hvort- tveggja þetta liafi lient hr. A. F. B., læt eg það ekki breyta neinu um tilboð mitt. Eg sé að A. F. B. hefir alt frá síðustu þingkosningum byrgt með sér þunga gremju. Slík gremja gerir ekki einasta að þjá þá menn sjálfa, er hana bera, heldur skap- ar hún bölsýni og þá vanstillingu í %skapsmunum, sem vel getur einnig skaðað aðra. Eg tel þvf heilsufarslega nauðsyn að slíkt fái útrás, ekki síst er það verður öðrum að skaðlausu. — Eg veit að lesendur Vesturlands telja það hvorki óeðlilegt né ó- viðeigandi, þótt eg mælti á sfnum tlma á móti kosningu A. F. B. i N.-ísafjarðarsýslu. Eg hafði áður mælt með öðrum manni til þing- menskunnar þar, og hlaut því að Gúmmístígvél fýrir börn, þrjár tegundir. Góð og ódýr. Nýkomin til Ó. J. Stefánssonar. Skilvinduolía. kr. 1.75 flaskan. Ólafur Pál8son. AtJiugið þetta: Þegar menn kaupa málningar- vörur, ættu þeir að athuga, að það besta er billegast. Hefi nú flestar tegundir af farva og lökkum til liúsa og skipa, einnig veggfóður og pappa á loft og veggi, sem eiga að málast, maskínupappír, pensla, brons o. fl. Vinn alt fljótt og vel. Finnbjörn málari. taka hart á því, er A. F. B. kom til liöfuðs honum og reyndi að kljúfa þann flokk, er að kosningu hans stóð. Verður A. F. B. ein- göngu að kenna sér sjálfum, að hann lagði út i þá ófæru, eins og hitt, að honum hafði ekki tckist að vinna sér það traust I héraði, er gert gæti fallið mildara. Sama er um passann: „Hvern á að kjósa?" A. F. B. hafði ekki rnín ráð við, er hann gaf, hapn út. Og hefði eg haft tækifæri til, hafði eg eflaust verjð svo einlæg- ur, að ráða honum frá að birta svo leiðinlegt sjálfshól. Um passa Sölva Helgasonar er það að segja, að hann hefir aldrei: verið neitt leyndarskjal. Og» ekki fæ eg séð, að það rýrði neitt sóma Arngrims, þótt menn sæju, að uppi hefðu verið á undan honum menn með viðunanlegt sjálfsálit.*) Sigurður Kristjánsson. *) Eg vil nota tækifœrið til þeíá að auglýsa eftir blaði þvl af Vesturlandi, sem passarnir eru birtir I. Það er 17.. tölublað I. árgangs, og verður hvert ein- tak af þvi borgað með, e i n n i k r ó n u á afgreiðslu blaðsins. S. K.

x

Vesturland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.