Vesturland - 13.08.1927, Page 4
4
VHSTUKLAND.
Hlutafélagið
DET KONDELIGE OCTROIEREDE ALMINDEUGE
BRANDASSURANCE-QOMPAGNY.
Umboðsmaður fyrir ísafjörð og nágrenni:
Arni .1. Arnason.
SÓLARSMJÖRLÍKIÐ
fáið þér ætíð nýtt á borðið, það er þvf
ljúffengast og' næringarmest.
I Allir, sem þurfa að nota
• KOLogSUT
Ijpf ættu sjálfs síns vegna að fá tilboðhjá okkur áður en þeir festa kaup.
Útveguni allar tegundir af KOLUM og SALTI, og seljum-j
ætíð með sanngjörnustu verði. sökum þess að við höfum bestu
bein sambönd, bæði um útvegun á kolum, salti og skipakosti.
I H. Benediktsson & Co.
P Sími 8 (tvær lfnur.) Símnefni: „Sallimport".
| Bernh. Petersen,
Símar 598 og 900,
Símnefni: „Saltimport.
Nýkomið:
BOLLAPÖR,
DISKAR,
KRÚSIR,
STEIKARFÖT,
TARÍNUR,
VATNSGLÖS,
VÍNGLÖS,
SNAPSGLÖS.
Ólalur Pásson.
Leiðrétting.
Herra ritstjóri!
í 25. tbl. blaðs yðar, sem út
kom 22. júlí s. 1. er grein, sem
heitir „Molar“. Þar stendur meðat
annars:
„í báðum kjörstjórnum höfðu
kommunistar gildan meirihluta og
neyttu þess til freklegra lögbrota
til framdráttar Haraldi. Kastaði
undirkjörstjórn frá mörgum at-
kvæðum sr. Sigurgeirs og fann
sér eina og aðra fjarstæðu tii.
Var t. d. kastað frá öllum þeim
atkvæðum hans, sem greidd voru
hjá hreppstjórum í öðrum kjör-
dæmum, ef kjósandi hafði ekki
verið staddur á heimili hreppstjóra.
Er þetta svo skýlaust lagabrot að
furðu djarft má kallasl. Var þetta
sýnilega fyrirfram hugsað klæki-
bragð, því sjálfir höfðu þeir kornrn-
unistar vandlega gætt þess að
flytja fjarstadda kjósendur sína
heim á heimili lireppstjóra til at-
kvæðagreiðslu, sem þó engin þörf
er á sanikv. kosningalögunum,
Atkvæði þeirra kjósenda sr. Sig-
urgeirs sem farið höfðu úr bæn-
um fyrir kjördag, en af einhverri
tilviljun voru komnir heím aftur,
voru öll ónýtt“.
Þar sem frásögn þessi er bæði
hlutdræg og röng, skorurn vér á
yður að birta í blaði yðar, sam-
kvæmt prentfrelsislögunum efirfar-
andi leiörétting.
Kjörstjórninni bárust 198 skrif-
leg atkvæði. Af þeim var 171 tek-
ið gilt. Eru þá eftir atkvæði frá
29 kjósendum.*) Á kjörfundinum
upplýstist að 18 þeirra værru
staddir í bænum og ákvað kjör-
stjórnin í e. hlj. að leggja alkvæði
þeirra til hliðar og gefa þeim kost
á að kjósa <) kjörstaðnum. En í
lok kosningarathafnarinnar að taka
gild atkvæði þeirra sem ekki væru
þá mættir. Kjósendur þessir mætlu
allir og kusu. Að þetta hafi ein-
ungis verið fylgismenn sr. Sigur-
geirs, eins og gefiö er i skyri i
frásögn yðar, er vitanlega alger-
lega rangt.
Þeirri reglu að taka ekki gild
skrifleg atkvæði kjósenda, sem
staddii eru á kjörstað, þegar
kosning fer fram, var fylgt hér
4923 og 1926. í seinna skiftið eftir
kröíu lögfræðings íhaldsmanna á
ísafirði.
Þau atkvæði, sem meirihluti
kjörstjórnar úrskurðaði ógild af
þeirri ástæðu einni, að kjósendur
höfðu greitt atkvæðin hjá hrepp-
Stjóra utan heimilis hans, voru 3
*) í mínu ungdæmi voru 198 : 171=^27.
Ritstj.
þrjú. Þegar fyrsta atkvæðið af
þessum þremur kom fram og þessi
stefna var tekin, vissi kjörstjórnin
ekkert um það, hve mörg atkvæði
þannig greidd kæmu, og þá ekkí
heldur hve mörg þeirra tilheyrðu
Haraldi. Nú er hennúkunnugt um
að eitt þeirra var frá fylgismanni
Haraldar. Það sem Vesturland
segir um þetta er því rangt.
Þau 6 atkvæöi, sem þá eru eít-
ir höfðu ýmsa ágalla. Voru 3
þeirra ógilt í e. hlj. en þrjú af
meirihluta.
Á pví sem hér hefir sagt verið
vonum vér að menn sjái að meiri-
hluti kjörstjórnar hefir hvorki fram-
ið lögbrot né haft í frammi klæki-
brögð til framdráttar Haraldi Guð-
mundssyni.
ísafirái 9. ágúst 1927.
> Eiríkur Einarsson
Jónas Tómasson.
Athugasemd.
Tæplega hefði mátt telja kjör-
stjórnarmeirihlutann hér úr hófi
hörundssáran, þó hann hefði borið
sig fyr upp undan því, sem liann
var sakaður um i Vesturlandi 22.
f. m. En því sfður verður þessutn
kjörstjórnarmönnum brugðið um
kjarkleysi, er þeir ganga nú hlffa-
lausir undir högg.
Kjörstjórnarmennirnir taka upp
í „Leiðrétting“ sína þau ummæli
Vesturlands, er þeir kvarta undan.
Er þar sagt, eins og lesendur
geta séð, að þeir hafi kastað frá
öllum þeim atkvæðum sr. Sigur-
geirs, sem greidd hafi verið utan
kjörstaðar, hafi þeir álitið að kjós-
andi væri kominn heim aftur í sitt
kjördæmi; svo og þeim, sem
greidd voru hjá hreppstjóra utan
heimilis lians. Þetta segir VI. að
sé skýlaust brot á kosningalög-
unurn.
Þeir félagar segja, að 29 atkv.
greidd utan kjörstaðar hafi verið
gerð ógild.
Margur lætur sér nú draga
minna.
Þá segja þeir. að 18 þessara
atkv. hafi verið ógild vegna þess
að kjósendurnir hafi verið komnir
heim í kjördæmið, og 3 vegna
þess, að þau voru ekki greidd á
heimiii hreppstjóra. (þetta er þó
ekki rétt samkv. kjörbókinni).
Ekki afsannar þetta það, sem
Vesturland sagði. Er beinlínis við-
urkenning á þvi.
Vesturland segir þetta vera ský-
laust tagabrot, og færði rök fyrir.
Því reyna þeir félagar ekki að
mótmæla, og því síður að afsanna.
Segja aðeins að þetta liafi áður
átt sér stað.
-Hér ber því alt að saina brunn-
inum. „Leiörétting" þeirra stað-
fcstir bara það, sem VI. sagði.
Aðeins segja þeir félagar eða gefa
í skyn, að Haraldur Guðinuuds'-
son hafi ekki síður getað átt þessi
atkvæði heldur en síra Sigurgeir.
Þessa vöru geta þeir keypt, sem
finst hún bóðleg, en það geri eg
ekki og líklega enginn lesandi
Vesturlands.
Annars talar kjörbókin full skýrt
í þessu máli. Þar oegir:
Haraldur Guðmundsson mót-
mælti atkvæði Jakobínu Þórðar-
dóttur sökum þess að hún hafði
ekki greitt atkv. á heimíli hrepps-
stjóra, Úrskurðað með 2 atkv.
gegn atkvæði Jóhanns Bárðarson-
ar að ógilda þetta atkvæði.
Af sömu ástæðu er ógilt atkv.
Óskar Samúelsdóttur með 2 atkv.
geng atkv. Jóh. Bárðarsonar.
Af sömu ástæðu er ógilt atkv.
Ólínu Tómasdóttur með 2 atkv.
gegn atkv. Jóh. Bárðarssotiar.
Af sömu ástæðu er ógilt atkv.
Sigríðar Eggertsdóttur með 2 atkv.
gegn atkv. Jóh. Bárðarssonar.
Atkv. Haíliöa Einarssonar er
ógilt með 2 atkv. gegn atkv. Jóh.
Bárðarssonar af þeirri ástæðu að
hann hafði fengið aðstoð fulltrúa
bæjarfógeta, en bæjarfógeti sjálf-
ur undirskrifað vottorðið.
Atkvæði Guðríðar Þórðardóttur
er ógilt með 2 atkv. gegn atkv.
Jóh. Bárðarssonar, afþeirri ástæðu,
að kjósandi liafði handsalað und-
irskriftina undir fylgibréfið.
Svona er byrjun undirkjörstjórn-
ar I meðferð fjargreiddu atkvæð-
anna, og þessu líkt er framhaldið.
Ekki eitt einasta atkvæði er ó-
gilt eftir kröfu síra Sigurgeirs eða
umboðsmanns hans, en nær því
öll gegn mótmælum þeirra.
Sýnist mönnum ekki nokkurn
vegin ótvíræður flokkslitur á þess-
um kjörstjórnargerðuni? Og sýn-
ist þeim nú ekki, kjörstjórnar-
mönnunum, nokkuð barnalegt að
ætla sér að blekkja nokkurn mann
í þessu máli?
Til skýringar iagalegu hliðinni
í þessu máli skal eg taka fram,
að löngu fyrir kosningar bar eg
það undir dómsmálaráðherra, hvorl
nauðsynlegt væri að kjósetidur
utan síns kjördæmis greiddu atkv.
Gamlir ísfirðingar
Biðjið Áfengisverslun ríkisins
fyrst og fremst um sherry,
portvín og madeira frá
KJÆR & SOMMERFELDT,
kgl. hirðsala, Kaupmannahöfn.
Tréskóstígvél.
Góð, létt og ódýrari en þekst
helir hér áður.
Fást hjá
Ó. J. Stefánssyni
skósinið.
á heimili t. d. hreppstjóra. Sagði
hann að því færi fjarri og gæfu
lögin ekkert tilefni til slfks skiln-
ings. Sömul. spurði eg hann, hvort
ónýta mætti skriflega greitt at-
kvæði, þótt kjósandi væri kominn
heim í sitt kjördæmi á kjördegi.
Gaf hatin þá skýringu, sem til-
færð er I Vesturlandi 22 f. m.
Enn fretnur skal eg taka fram,
að það athæfi undirkjörstjórnar,
að ógilda atkvæði þeirra tnanna,
sem aðstoð fengu hjá bæjarfógeta
og hreppstjóra, er ótvlrætt brot á
kosningalögunum, þvi I IU. gr.
(siðustu grein) laga nr. 47 frá
30. nóv. 1914, um atkvæðagreiðslu
utankjörstaðarmanna, stendur:
„Að öðru leyti gilda reglur
kosningalaganna um kosningar
þær, er í lögum þessum getur, að
því leyti, sem þær geta við átt“.
Og kosningalögin gera ráð fyr-
ir aðstoð fyrir þá menn, sem þess
þurfa.
Sigurður Kristján8Son.