Vesturland

Árgangur

Vesturland - 13.08.1927, Síða 4

Vesturland - 13.08.1927, Síða 4
4 VHSTUKLAND. Hlutafélagið DET KONDELIGE OCTROIEREDE ALMINDEUGE BRANDASSURANCE-QOMPAGNY. Umboðsmaður fyrir ísafjörð og nágrenni: Arni .1. Arnason. SÓLARSMJÖRLÍKIÐ fáið þér ætíð nýtt á borðið, það er þvf ljúffengast og' næringarmest. I Allir, sem þurfa að nota • KOLogSUT Ijpf ættu sjálfs síns vegna að fá tilboðhjá okkur áður en þeir festa kaup. Útveguni allar tegundir af KOLUM og SALTI, og seljum-j ætíð með sanngjörnustu verði. sökum þess að við höfum bestu bein sambönd, bæði um útvegun á kolum, salti og skipakosti. I H. Benediktsson & Co. P Sími 8 (tvær lfnur.) Símnefni: „Sallimport". | Bernh. Petersen, Símar 598 og 900, Símnefni: „Saltimport. Nýkomið: BOLLAPÖR, DISKAR, KRÚSIR, STEIKARFÖT, TARÍNUR, VATNSGLÖS, VÍNGLÖS, SNAPSGLÖS. Ólalur Pásson. Leiðrétting. Herra ritstjóri! í 25. tbl. blaðs yðar, sem út kom 22. júlí s. 1. er grein, sem heitir „Molar“. Þar stendur meðat annars: „í báðum kjörstjórnum höfðu kommunistar gildan meirihluta og neyttu þess til freklegra lögbrota til framdráttar Haraldi. Kastaði undirkjörstjórn frá mörgum at- kvæðum sr. Sigurgeirs og fann sér eina og aðra fjarstæðu tii. Var t. d. kastað frá öllum þeim atkvæðum hans, sem greidd voru hjá hreppstjórum í öðrum kjör- dæmum, ef kjósandi hafði ekki verið staddur á heimili hreppstjóra. Er þetta svo skýlaust lagabrot að furðu djarft má kallasl. Var þetta sýnilega fyrirfram hugsað klæki- bragð, því sjálfir höfðu þeir kornrn- unistar vandlega gætt þess að flytja fjarstadda kjósendur sína heim á heimili lireppstjóra til at- kvæðagreiðslu, sem þó engin þörf er á sanikv. kosningalögunum, Atkvæði þeirra kjósenda sr. Sig- urgeirs sem farið höfðu úr bæn- um fyrir kjördag, en af einhverri tilviljun voru komnir heím aftur, voru öll ónýtt“. Þar sem frásögn þessi er bæði hlutdræg og röng, skorurn vér á yður að birta í blaði yðar, sam- kvæmt prentfrelsislögunum efirfar- andi leiörétting. Kjörstjórninni bárust 198 skrif- leg atkvæði. Af þeim var 171 tek- ið gilt. Eru þá eftir atkvæði frá 29 kjósendum.*) Á kjörfundinum upplýstist að 18 þeirra værru staddir í bænum og ákvað kjör- stjórnin í e. hlj. að leggja alkvæði þeirra til hliðar og gefa þeim kost á að kjósa <) kjörstaðnum. En í lok kosningarathafnarinnar að taka gild atkvæði þeirra sem ekki væru þá mættir. Kjósendur þessir mætlu allir og kusu. Að þetta hafi ein- ungis verið fylgismenn sr. Sigur- geirs, eins og gefiö er i skyri i frásögn yðar, er vitanlega alger- lega rangt. Þeirri reglu að taka ekki gild skrifleg atkvæði kjósenda, sem staddii eru á kjörstað, þegar kosning fer fram, var fylgt hér 4923 og 1926. í seinna skiftið eftir kröíu lögfræðings íhaldsmanna á ísafirði. Þau atkvæði, sem meirihluti kjörstjórnar úrskurðaði ógild af þeirri ástæðu einni, að kjósendur höfðu greitt atkvæðin hjá hrepp- Stjóra utan heimilis hans, voru 3 *) í mínu ungdæmi voru 198 : 171=^27. Ritstj. þrjú. Þegar fyrsta atkvæðið af þessum þremur kom fram og þessi stefna var tekin, vissi kjörstjórnin ekkert um það, hve mörg atkvæði þannig greidd kæmu, og þá ekkí heldur hve mörg þeirra tilheyrðu Haraldi. Nú er hennúkunnugt um að eitt þeirra var frá fylgismanni Haraldar. Það sem Vesturland segir um þetta er því rangt. Þau 6 atkvæöi, sem þá eru eít- ir höfðu ýmsa ágalla. Voru 3 þeirra ógilt í e. hlj. en þrjú af meirihluta. Á pví sem hér hefir sagt verið vonum vér að menn sjái að meiri- hluti kjörstjórnar hefir hvorki fram- ið lögbrot né haft í frammi klæki- brögð til framdráttar Haraldi Guð- mundssyni. ísafirái 9. ágúst 1927. > Eiríkur Einarsson Jónas Tómasson. Athugasemd. Tæplega hefði mátt telja kjör- stjórnarmeirihlutann hér úr hófi hörundssáran, þó hann hefði borið sig fyr upp undan því, sem liann var sakaður um i Vesturlandi 22. f. m. En því sfður verður þessutn kjörstjórnarmönnum brugðið um kjarkleysi, er þeir ganga nú hlffa- lausir undir högg. Kjörstjórnarmennirnir taka upp í „Leiðrétting“ sína þau ummæli Vesturlands, er þeir kvarta undan. Er þar sagt, eins og lesendur geta séð, að þeir hafi kastað frá öllum þeim atkvæðum sr. Sigur- geirs, sem greidd hafi verið utan kjörstaðar, hafi þeir álitið að kjós- andi væri kominn heim aftur í sitt kjördæmi; svo og þeim, sem greidd voru hjá hreppstjóra utan heimilis lians. Þetta segir VI. að sé skýlaust brot á kosningalög- unurn. Þeir félagar segja, að 29 atkv. greidd utan kjörstaðar hafi verið gerð ógild. Margur lætur sér nú draga minna. Þá segja þeir. að 18 þessara atkv. hafi verið ógild vegna þess að kjósendurnir hafi verið komnir heim í kjördæmið, og 3 vegna þess, að þau voru ekki greidd á heimiii hreppstjóra. (þetta er þó ekki rétt samkv. kjörbókinni). Ekki afsannar þetta það, sem Vesturland sagði. Er beinlínis við- urkenning á þvi. Vesturland segir þetta vera ský- laust tagabrot, og færði rök fyrir. Því reyna þeir félagar ekki að mótmæla, og því síður að afsanna. Segja aðeins að þetta liafi áður átt sér stað. -Hér ber því alt að saina brunn- inum. „Leiörétting" þeirra stað- fcstir bara það, sem VI. sagði. Aðeins segja þeir félagar eða gefa í skyn, að Haraldur Guðinuuds'- son hafi ekki síður getað átt þessi atkvæði heldur en síra Sigurgeir. Þessa vöru geta þeir keypt, sem finst hún bóðleg, en það geri eg ekki og líklega enginn lesandi Vesturlands. Annars talar kjörbókin full skýrt í þessu máli. Þar oegir: Haraldur Guðmundsson mót- mælti atkvæði Jakobínu Þórðar- dóttur sökum þess að hún hafði ekki greitt atkv. á heimíli hrepps- stjóra, Úrskurðað með 2 atkv. gegn atkvæði Jóhanns Bárðarson- ar að ógilda þetta atkvæði. Af sömu ástæðu er ógilt atkv. Óskar Samúelsdóttur með 2 atkv. geng atkv. Jóh. Bárðarsonar. Af sömu ástæðu er ógilt atkv. Ólínu Tómasdóttur með 2 atkv. gegn atkv. Jóh. Bárðarssotiar. Af sömu ástæðu er ógilt atkv. Sigríðar Eggertsdóttur með 2 atkv. gegn atkv. Jóh. Bárðarssonar. Atkv. Haíliöa Einarssonar er ógilt með 2 atkv. gegn atkv. Jóh. Bárðarssonar af þeirri ástæðu að hann hafði fengið aðstoð fulltrúa bæjarfógeta, en bæjarfógeti sjálf- ur undirskrifað vottorðið. Atkvæði Guðríðar Þórðardóttur er ógilt með 2 atkv. gegn atkv. Jóh. Bárðarssonar, afþeirri ástæðu, að kjósandi liafði handsalað und- irskriftina undir fylgibréfið. Svona er byrjun undirkjörstjórn- ar I meðferð fjargreiddu atkvæð- anna, og þessu líkt er framhaldið. Ekki eitt einasta atkvæði er ó- gilt eftir kröfu síra Sigurgeirs eða umboðsmanns hans, en nær því öll gegn mótmælum þeirra. Sýnist mönnum ekki nokkurn vegin ótvíræður flokkslitur á þess- um kjörstjórnargerðuni? Og sýn- ist þeim nú ekki, kjörstjórnar- mönnunum, nokkuð barnalegt að ætla sér að blekkja nokkurn mann í þessu máli? Til skýringar iagalegu hliðinni í þessu máli skal eg taka fram, að löngu fyrir kosningar bar eg það undir dómsmálaráðherra, hvorl nauðsynlegt væri að kjósetidur utan síns kjördæmis greiddu atkv. Gamlir ísfirðingar Biðjið Áfengisverslun ríkisins fyrst og fremst um sherry, portvín og madeira frá KJÆR & SOMMERFELDT, kgl. hirðsala, Kaupmannahöfn. Tréskóstígvél. Góð, létt og ódýrari en þekst helir hér áður. Fást hjá Ó. J. Stefánssyni skósinið. á heimili t. d. hreppstjóra. Sagði hann að því færi fjarri og gæfu lögin ekkert tilefni til slfks skiln- ings. Sömul. spurði eg hann, hvort ónýta mætti skriflega greitt at- kvæði, þótt kjósandi væri kominn heim í sitt kjördæmi á kjördegi. Gaf hatin þá skýringu, sem til- færð er I Vesturlandi 22 f. m. Enn fretnur skal eg taka fram, að það athæfi undirkjörstjórnar, að ógilda atkvæði þeirra tnanna, sem aðstoð fengu hjá bæjarfógeta og hreppstjóra, er ótvlrætt brot á kosningalögunum, þvi I IU. gr. (siðustu grein) laga nr. 47 frá 30. nóv. 1914, um atkvæðagreiðslu utankjörstaðarmanna, stendur: „Að öðru leyti gilda reglur kosningalaganna um kosningar þær, er í lögum þessum getur, að því leyti, sem þær geta við átt“. Og kosningalögin gera ráð fyr- ir aðstoð fyrir þá menn, sem þess þurfa. Sigurður Kristján8Son.

x

Vesturland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.