Vesturland - 25.08.1927, Blaðsíða 2
2
vestukland.
taka til athugunar á ný ýmsar
þær tillögur til br. á stjórnar-
skránni, sem falliö liaía á undan-
gengnum þingum. Er þar fyrst á
að líta fækkun ráðherra og þing-
manna jafnhliða kjördæmamálinu.
Þá ætti og að taka til athug-
unar eina smábreytingu, sem flest-
ir virðast nú vera búnir að gleyma
en það er það, að láta Hæstarétt
dæma um kosningakærur þing-
manna.
Enn íækkar
í sveitunum!
Eftir síðustu manntalsskýrslum
Hagstofunnar er fólkinu enn að
fækka í sveitunum. Þetta er ótrú-
leg saga, en þó eflaust sönn.
Það er eðlilegt að þetta öfug-
streymi verði lítt skiljaulegt þeim,
sem hvorttveggja hafa reynt, að
vera í sveit og í kaupstað. Vinna
var áður talsvert hörð í sveitum,
oft vosbúð og sumstaðar ófrelsi.
Nú er þetta breytt. Erfið vinna i
sveitum er nú að mestu unnin
með hestum, klæðnaður þesshátt-
ar að um vosbúð er varla að tala.
Það er vísl varla hægt að hugsa
sér skemtilegri vinnu, ef nokkuð
er aðhafst, en heyvinnu í góðri
tíð.
Það væri holt fyrir ungt fólk,
sem lifir á vinnu sinni, að virða
fyrir sér og bera saman vinnu í
sveit og vinnu í kaupstað. Vor-
vinnan í sveit er ávinsla á túnum
víðast með hestum, jarðabætur
ýmiskonar og fjárgeymsla. Flest
þokkaleg vinna og heilnæm. Að
sumrinu er heyvinnan áreiðanlega
skemtilegasta vinna sem til er, og
auk þess óvenju heilnæm og oft-
ast létt. Vetrarvinna er sjaldan
annað en fjárgeymsla.
Kvenfólk vinnur nú orðið iítið
annað í sveitinni en innanhúss-
verk, þjónustustörf og matreiðslu,
nema rétt yfir sláttinn, og þá ekki
nema i bærilegu veðri.
A helgum skemtir sveitafólk sér
á ýmsati liátt, ekki á kaffihúsum
heldur á útreiðarferðum um sveit-
ina og til fegurstu staða í ná-
grenninu. Það þykir sjálfsagt að
ungt fólk skemti sér utn helgar,
og jafn sjálfsagt er að allir fái
hesta meðan til vinst.
Þeir, sem ekki eiga annars kost
en að búa i kaupstöðum, telja
það einn hinn eftirsóknarverðasta
hlut að geta dvalið i sveit. Sveit-
in er heilsuhæli, andlegt og lík-
amlegt. Sólskin og tárhreint loft
með hollri áreynslu og heilnæmu
kraftgóðu fæði gerir líkainann
hraustan. Og fegurð náttúrunnar
og uppgerðarlausir lifnaðarhættir
eru sóttvarnarmeðal anda manns-
Ins.
En hvað eru menn þá að flýja?
Menn eru raunar ekki að flýja,
héidur eru menn að leita fyrir sér,
þegar þeir yfirgefa sveitina og
hverfa til þorpa og kaupstaða.
Það er eirðarleysið og óframsýni
sem lætur inenn rangla af gróð-
urlendinu á mölinu. Maðurinn,
sem vinnur við kolauppskipun
svartur frá hvirfli til ilja og slit-
uppgefinn, gleymir alveg að bera
Gamiir ísfirðingar
Biðjið Afengisverslun ríkisins
fyrst og fremst um sherry,
portvín og madeira frá
KJÆR & SOMMERFELDT,
kprl. hirðsala, Kaupmannahöfn.
það saman við það, er hann stóð
við orfið létt og þokkalega búinn
og sló niður skrúðgrænt töðugres-
ið, og hann gleymir yfir svörtu
kaffinu og margarinsmurða rúg-
brauðinu, sem hann hefir til nátt-
verðar, heilnæma og staðgóða
sveitamatnum, og síst dettur hon-
urn í húga, er hann andar að sér
ryki, eða óþef trá rotnandi þara
og slori, að hann hefir fyrir ári
síðan daglega teigað tárhreint loft
með ilmi jurta og kjarrviða. Nei
honum dettur ekkert slikt í hug,
enginn samaiiburður. Hann hefir
skift um í hugsunarleysi og hann
heldur áfrain að lifa í hugsunar-
leysi á mölinni.
Litlu laglegu stúlkuuni nieð
hvíta skýluklútinn, sem eg sneri
tneð flekkuuin í fyrra, henni er
þó meiri vorkun. Nú spyrnir hún
áfram sporvagni ýinist tneð koium
eða saltfiski og hún hlær ekki eins
græskulaust og í fyrra. En við
vagninn dreymir hana um litla
fallega stúlku í silkisokkuin með
drengjakoll. Og ólukku öklasíða
pilsið er horfið. Útlendir og inn-
lendir geta séð hve fallega kálfa
hún hefir og knésbætur. Stúlkan
veit sem sé hvað hún vill. Hún
vill margmenriið.
Hvað segja nú bændur um það,
að reyna að togast enn um stund
á við kaupstaðina um unga fólk-
ið? Það er sýnt að skyr og rjómi
verður aflvanda fyrir boxamjólk
og rótarkaffi. Reyr- og birkiangan
stenst ekki gegn fjöruilm frá fiski-
úrgangi og þarahrönnum. Hrífan
stenst ekki fiskburstann, rokkur-
inn ekki kolavagninn, glófaxinn
ekki glóðarauga bifreiðarinnar. En
þó er annað, sem meiru veldur,
en alt þetta. Það eru góðtempl-
araskröll og kvikmyndasýningar.
Sveitirnar þurfa að taka upp
tíðar samkomur, þar þarf að vera
kæti og fjör; það þarf engin verk
að fella niður, en gerir lutidina
létta, og alla ánægðari með sín
kjör. Það er fásinnið, sem menn
þola ekki. Maður er manns gam-
an.
Féiursíld í skiftum fyrir
fig sei og flyt fóðursild heim til manua hvar sein er við Isa-
fjarðardjúp. Andviröi síldarinnar má greiðast með töðu.
Sendið pantanir sem fyrst.
0. G. Syre.
Úr Hagfíðmdumim.
Dýrtíðin.
Eftir meðalverði 57 innlendra
og útlendra vörutegunda (flestmat-
vörur) í smásölu í Reykjavik hefir
verðlagið breyst á þessu ári sem
hér segir:
Það sein í júlímán. 1914kostaði
100, kostaði í júlí í fyrra 250, í
október í fyrra 245, í maí þ. á.
232, í júní þ. á. 229 og í júlí í
sumar 236.
Innlendar vörur hafa lækkað
talsvert meira á árinu, heldur en
útlendu vörurnar. Samt er verð
innlendu vörutegundanna mun
hærra en þeirra útlendu miðað
♦
♦
♦
AKR A-smjörlíki
þykir ágætt viðbit og fæst
í öllum matvöruverslunum.
♦
♦
♦
Hráolíuhreifillinn „GREIU
er bygður úr aðeins úrvalsefni
og allur frágangur hinn vandað-
asti. Hann er traustur en óbrot-
inn, gangviss og olíuspar, með
ölluin nýtísku útbúnaði. Hinn á-
byggilegasti skipa- og bátahreyf-
ill. Festið ekki kaup án þess að
leita upplýsinga hjá umboðsmönn-
utn eða
P. A. Ólafsson
Reykjavík.
Kaffibætirinn „S Ó L E Y“.
Efnarannsókn hefir sannað, að hann stendur i engu að baki
þeiin kaffibæti, sem bestur hefir þótt á landi hér. Atvik hafa sýnt,
að vandlátustu kaffineytendur þekkja ekki tegundirnar i sundur á
öðru en umbúðunutn. Munið að nota brent off mal—
að kaifi frá Kafíibrenslu Reykjavíkur.
SÓLARSMJÖRLlKIÐ
iaiö j)éi' ætíð nýtt á borðið, það er því
Ijúffengast og næringarmest.
Hefl h á lc a r I tíi soiu.
Einnig góðar kjöttunnur.
Stefán J. Richter.
við verðlagið 1924, eða 249 rnóti
221.
Vöruverðið hefir farið hækkaridi
í júnímánuði s. 1.
Fróðlegt er að bera saman
smásöluverðið hér og í Rvík.
Kemur sumstaðar fram hinn ótrú-
legasti munur. Egg, mjólk, kinda-
kjöt og garðávextir er dýrara hér
en í Reykjavík. Brauð (rúgbrauð)
nautakjöt ísl. smjör og fiskur er
ódýrara.
Stjórnarmyndun.
Framsókn hefir safnast saman
i Rvík til að undirbúa skyndi-
brullaupið með bolsum og búa
upp flatsængina. Eru horfur á að
þar takist bráðar ástir.
í lokrekkjuna kvað vera ráðnir
Tryggvi Þórhallsson við stokk og
Jónas Jónsson við þil. Óvíst hver
til fóta verður hafður, en sagt er
að ýmsir séu þangað allfúsir.
Fi*á Isaílpdi.
Villeinoes kom í gær með olíu
til Landsverslunar. Fer aftur í
dag.
Dronning Alexandrine kom í
dag. Með henni kom leikfimis-
flokkur frá Danmörku undir stjórn
hins fræga kennara Niels Bukh.
Látnar eru hér á sjúkrahúsinu
Guðrún Jónsdóttir kona Sigurgeirs
Katarinussonar í Fremri-Arnardal
67 ára að aldri. og Ása Friðriks-
dóttir frá Súgandafirði.
Síldveiði hefir verið jöfn og all-
góð síðustu daga á reknetabátana
sem héðan ganga. Áframhaldandi
mikil veiði við Norðurland.
Fróði kom hér inn í gær. Hann
er búinn að fá rúml. hálft áttunda
þúsund tunnur og byrjaði þó veið-
ar nokkru seinna en flest skip
þau er veiða í herpinætur.
Prentsiniðja Vesturlands.