Vesturland

Árgangur

Vesturland - 27.09.1927, Síða 3

Vesturland - 27.09.1927, Síða 3
VESTURLAND. 5 Verslun Karls Olgeirssonar hefir fengið mikið úrvál af nýjum vörum, iivergi ódýrari né betri. T. d.: Áteiknað í miklu úrvali, Prjónsilki, margir litir, Karlmannafatnaður og yfirfrakkar nýjasta gerð og ótal margt fleira. lon Flateyri. Ungfrú Anna Hall- dórsdóttir. „Brúarfoss“ kom að norðan á miðvikudags- kvöldið og tór áieiðis suður um nóttina. Með skipinu fór héðan Halldór Benediktsson skipstjóri með fjöl- skyldu sina alfluttur til Reykjavík- ur. Trúlofun sína hafa opinberað Ásgeir Arnason vélstjóri á Hávarði ís- firðing og ungfrú Theodóra Tóm- asdóttir. Einnig Karl Jónsson sjóm. Hnífsdal og ungfrú Guðrún Ein- arsdóttir í Krók. Söngur. Benedikt Elfar söngvari söng hér tvö kvöld. Tóku áheyrendur söng hans mjög vel, en fáir voru þeir bæði kvöldin. Ungfrú Áslattg Jóhannsdóttir aðstoðaði söngvarann. „Skemtilegt er tnyrkrið". Ef bæjarbúunt skyldi vera for- vitui á að vita, hvers vegna þeir þttrfa að þreifa sig áfram hér um göturnar á kvöldin, þá er ástæð- an sú, að „Ijósnefnd" hefir bann- að rafstöðvarstjóranum að veita strauni á götuleiðslurnar þegar dimt er. betta er það sem Skutull kallar Ijóslækningar. Frk. Gyða Maríasdóttir forstöðukona Húsmæðraskólans kom heim með „Dronning Alex- andrine“. — Hefir hún dvalið er- lendis i sumar. Mikill afli. Þorsteinn J. Eyfirðingur skip- stjóri á „Fróða" fiskaði 9400 tunn- ur af síld í sutnar. Hann byrjaöi þó veiðar seint; svo flest öll síld- veiðaskipin voru búin að fá mik- inn afla áður en hann byrjaði. Um 3000 tunnúr af aflanum lét hanu salta. Hitt fór í bræðslu á Sólbakka, og var stundum meir en sólarhrings sigling með afl- ann til hafnar þegar hann var tekinn austan við Sléttu. Flóttinn úr bænum. Þorsteinn J. Eyfirðingur skip- stjóri flutti búferlum héðan úr bænum með fjölskyldu sína s. 1. miðvikudag. Hann flytur til Reykja- víkur. Halldór Benediktsson skipstjóri fór alfarinn héðan úr bænum með fjölskyldu sína með síðustu ferð „Brúarfoss". Hann flutti einnig til Reykjavíkur. Guðmundur Júní Ásgeirsson skipstjóri fór héðan búfulum fi Kensla. Undirritaður tekur börn í stöfun á komandi vetri (frá 1. október) og veitir tilsögn í ölluin náms- greinum barnaskólans. Einnig kenni eg dönsku og e. t. v. ensku þeim, er þess óska. Hannibal Valdimarsson (Pósthúsinu, uppi.) Reykjavíkur með skipi sfnu e. s. „Eljan“. Guðmundur Þ. Guðmundsson skipstjóri flytur héðan með fjöl- skyldu sfna til Reykjavikur nú í haust. Sigurbjörn Kristjánsson fiski- matsmaður hefir selt íbúðarhús sitt hér í bæ og flytur með fjöl- skyldu sína til Reykjavíkur í haust. ísafjörður hefir lifað svo að segja eingöngu á sjónum, og hann er svo settur, að hann mun að mestu lifa á honum enn uin sinn. Sjór- inn er uppspretta þess, sem við öll hér í bæ lifum á að niestu beint eða óbeint. Það er þess vegna engin tilviljun, að hér hefir alist upp afburða atorkumikil sjó- mannastétt. Það hefir líka aldrei brugðist, að hvar við land sem ísfirsku fiskibátarnir hafa stundað veiðar, hvort heldur verið hafa þorskveiðar eða síldveiðar, þá hafa þeir verið aflahæstir. ísfirsku skipstjórarnir eru lands- kunnir aflamenn. Bn það er líka alkunna, að til þeirra safnast valdir menn i hvert rúm. Þetta er eðlilegur og sjálfsagður hlutur. Menu sækja þangað, sem arðs- vonin er mest, og sá sem á margra völ, hirðir ekki það lélegasta. Nú eru fjórir þessara aðdráttar- manna ísafjarðar að fara héðan eða farnir þegar. Áður voru farnir Guðmundur Jónsson frá Tungu og Guðmundur Guðmundsson frá Eyri. Þetta er stærsta blóðtaka sem ísafjörður hefir fengið um tugi ára, en hún er þó miklu stærri en margur mun hyggja. Með þessum skipstjórum fer auð- vitað úrval háseta héðan, og þótt þeir fyrst f stað kunni að halda búsetu hér að nafninu, verður'það aldrei nema eina vertíð eða sVo. Þeir liverfa þangað, sem skipið er og skipstjórinn þeirra er búsetlur, því sú er reynslan, að erfitt er að ná góðu skiprúmi á öðrum lands- jaðri, þar sem um fjölda er að velja. ísfirsku bolsarnir geta verið stoltir af þvi, að líafa með þess- um mönnum stökt á flótta ein- hverjurn mestu fullhugum ísafjarð- ar. En það er ekki i neinni högg- orustu. Það hafa jafnan verið Ð. Samkvæmt beiðni Árna J. Arnasonar kaup- manns, fvrir hönd H. f. Hinar' samein. ísl. verslanir, ísafirði, verða boðnar upp og seldar ýmsar verslunarvörur, verslunafáhöld, bátar, eldiviður og’ marg’t ileira. Uppboðið byrjar mánudaginn 3. október n. k. kl, 10 f. h., í sölubúð firmans. Andvirði hins selda greiðisl. við hamarshögg að viðbættum 3°|0 inniieimtulaunum. Bæjarfógetinn á ísafirði, 22. september 1927. Oddur Gíslason. Einn ellefti hluti í ísluisinu í Hnífsdal, eign dánarbús Guðmund- ar Sveinssonar, er til sölu. Tilboð sendist und- irrituðum skiftaforstjórum dánarbúsins í síðasta lag’i 1. október n. k. ísafirði 24. september 1927. Magnús Thorsteinsson. Karl Olgeirsson. I Yfirfrakkar I Og | Karlmannaíöt | mikið og fallegt úrval | nýkomið f I | Soffíubúð. | '^IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIlF Konfectkassar, fleiri tegundir ódýrastir og bestir hjá Lopti Gunnarssyni. pestir sem gert hafa mestar land- auðnir. Og hér er það óstjórnar- pest bolsevismans, sem stökkvir bestu mönnum bæjarins á flótta og leggur Ísafjörð að meira eða ininna leyti í auðn. Ordsending. Leikflmisnámskeið. Eins og auglýst hefir verið hér í blaðinu, byrja eg bréflega leik- fimiskenslu nú í haust. Eu þar sem tímiim er orðiriu ínjög stuttur þar tit námskeiðið byrjar, vil eg biðja fólk sem sendir mér um- sóknir eftir þetinati tima, að taka þetta fram: Aldur, fæðingardag og ár, fult nafn, heimili, sýslu og póststöð. Náitiskeiðið er bæði fyrir kon- ur og karla. Verður nemendum skift í flokka eftir aldri. Jón Þorsteinsson írá Holsslöðuui. Til sölu er lítill mótorbátur ásamt 80 lóð- um með öllu tilheyrandi, alt fyrir 2200 krónur. Semjið sem fyrst við Ágúst Gíslason Brunngötu 21. Duglega og þrifna stúlku vantar. Upplýsingar á Her- kastalanum. ❖♦♦♦♦♦ ♦♦♦♦♦♦ <|Skófatnaðurinn* ♦í verslun M. Magnússonar^ ísafirði, ♦er traustur fallegur og ódýr.^ ^ Ávalt miklu úr að velja. ^ ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ íbúð til leigu í „afgreiðsluhúsi" Edinborgar, 3 hetbergi og eldhús. Elías lialldórsson. Gúmmístígvél fyrir börn og unglinga ágætar tegundir nýkomnar til Ó. J. Stefánssonar skósmiðs. Olíufötin komin aftur, þar á meðal drengjaplíuíöt. Ólafur Pálsson.

x

Vesturland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.