Vesturland

Årgang

Vesturland - 13.10.1927, Side 3

Vesturland - 13.10.1927, Side 3
VESTURLAND. Á FRVSTIMG. Tek kjöt til íVvstingar í íshúsinu í Neðsta- kaupstaðnum. Haraldur Loftsson. Vélskip til sölu Vélskipjn FRIGG, líiFliOST og PEKCY eru til sölu. Nánari upplýsingar gefa stjórn íslands- banka Reykjavík og stjórn Útbús íslandsbanká r á Isaíirði. Er nú ekki verðið við nögl- skorið? O, eg varð nú að vera rými- legur, þegar um svona mikil og viss viðskifti var að ræða. Eg fæ 95 aura, en svo láta þeir sjálf- ir slátra á sinn kostnað. Það er svo. Att þú þetta fé alt sjálfur? O, nei. Sumt er nú aðfengið. Eg kom ekki hingað með nema tiltöluiega lítið af frálagsfé minu. Þú hefir nátturlega ekki átt svo mikið af fyrstaflokks kjötfé? Örlitið bros gægðist út í ann- að munnvik bónda, er hann leit niður á eina háhryggjaða, er sýndist komin vel af barnsaldri. Það er nú svona, að það er ekki hægt að bjóða öllum það sama, og maðirr verður að reyna að gera alla ánægða, sagði hann. Já, hefir hver það er hæfir, sagöi ritstj. Frá IsafiFÖi. Fyrirlestur Qrétar Fells, sem auglýstur er hér i blaðinu, var haldinn í gær- kveldi. Tiðarfar er hagstætt þessa daga og afla- brögð góð. Skipakomur. „Gul!foss“ kom að sunnan 11. þ. m. Fór suður aftur þann 12. „Island“ kom að sunnan þ. 12. á leið norður um land til útlanda. Frá Rvík komu hingað: Björn Magn- ússon símstjóri, Halldór Júlíus- son sýsluinaður, Páll Sigurðsson prestur í Bolungarvik, Vilmundur Jónsson héraðslæknir, Daníel J. Hörðdal málari. Stiílku vantar mig i vetur. Gæti komið til mála um formiddagsstúku. Ása Grímsson. = Yfirfrakkar ii §§ Og s j= Karlmannaföt = = mikið og fallegt úrval = i nýkomið í 1 = Soffíubúð. 1 ^lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllF Til söln er lítill mótorbátur ásaint 80 lóð- um með öllti tilheyrandi, alt fyrir 2200 krónur. Semjið sem fyrst við Ágúst Gíslason Brunngötu 21. Heigi Sigurgeirsson gullsmiður, ísafirði smíðar og grefur enn. Rojol sparar útgerðarmanninum fé en vélamanninum vinnu. Grjalddagi Vesturlands er 1. október. — Þetta eru kaup- endur vinsamlegast mintir á. Tilgang kveðst Q. B. hafa með þessum pésa sinum. Áður en hann skýrir frá honum, fer hann að reyna að telja mönnum trú um, að það sé þýðingarlftið aukaatriði, hvort menn trúi því að, Jesús Kristur sé eingetinn sonur guðs eða ekki. Hvað kemur manninum tii slíks? — Er það fáviska, eða. hvað? Það er varla hægt að ætl- ast til minna af presti en að hann viti, að kirkja Krists hefir ávalt talið málefni þetta þýðingarmik- ið meginatriði. Hyggur G. B. að þeir heilögu menn, sem sömdu postullegu trúarjátninguna, hafi tekið upp í liana atriði, setn þeir töldu þýðingarlftið aukaatriði. Til þess að geta haft þá skoðun, þarf mikla vanþekkingu á sögu kirkj- unnar. Nei, hér er um meginat- riði að ræða, meginatriði, sem er hyrningarsteinn undir trú manna á guðdóm lausnarans. Meginat- riði þetta byggist á ljósum og skýrum orðum heilagrar ritningar, og hefir verið játað af kirkju Krists frá elstu tímum ti! vorra daga. — Það er því rétt bjá G. B., að það mundi særa oss, sem þessa trú liöfum, ef hægt væri að ráðast á þetta atriði með beittum vopnum. Vopnin hans G. B. og skoðana- bræðra hans, hafa ekki reynst hættuleg, og munu ekki reynast það, svo vér þurfum varla að ótt- ast sár af þeirra völdum. Guð- dómur launsarans stendur svo föstum fótum, að hann bifast ekki fyrir slikri allögu. Af öllum göll- um pésans finst mér sá tilfinnan- legastur, að G. B. skýrir ekki frá því, við hvað hann styður trú síná á guðdóm lausnarans, fyrst hann hafnar þeim boðskap heilagr- ar ritningar að Jesús sé eingetinn sonur guðs. Þess hefði hann átt að geta utn leið og hann reynir að rífa niður forna grundvöllinn. Þarna lýsir niðurrífsstefna nútím- ans sér rétt o: að rlfa niður og byggja ekkert upp í staðinn. Þjóðin verður að risa öndverð gegp þessari óhollu stefnu á hvaða sviði, sem hún birtist. Á öllum sviðum er hún óholl, en ekki síst á trúmálasviðinu. Vandræðalegir eru vafningar G. B., þegar hann er að vinglast í kringum þetta svo nefnda auka- atriði sitt, og reyna að blása það aftur út, til þess að réttlæta fram- komu pésans. í þessum vafningum fer hamj, alt í einu, að hnýta í kenningar kirkjunnar, en virðist þó ekki liafa hugmynd um, að liann er sjálfur að halda að þjóð- inni nýrri kennisetningu utn Krist. Kennisetningu, sem ekki að eins skyggir á Krist, heldur gerir til- raun til að rífa hann úr hjarta þjóðarinnar. Kennisetningum kirkj- unnar hefir, að vísu, verið ábóta- vanl í ýmsu, eins og öðrutn verk- um mannanna, en þessi kentii- setning lians G. B. bætir ekki úr því. Loks kemst G. B. að því atrið- inu, sem virðist vera aðal ástæð- an fyrir því, að hann ritar pésann, o: þetta, að manni einum hafi verið sýnd övirðing, sökum þesS, að hann lét í ljósi þá skoðun sína, að Jesús hafi verið Jósepsson, og bendir á frásögn „Bjarma" í nóv. 1926. Mun G. B. eiga við það, að fræðslumálastjóri Á. Á. lét þessa skoðun i ljósi á sameigin- legum safnaðarfundi í Reykjavik í fyrra haust. Eg man ekki eftir að „Bjarmi" skýrði frá því, að safnaðafundttrinn hefði sýnt Á. Á. óvirðingu, þvi tæplega getur G. B. talið það óvirðingu, þótt fund- urinn syngi gnllfagurt vers eftir trúarskáldíð góða Hallgríms Pét- ursson, vers, sem lifir áhversmanns vörum um alt ísland. Eg var hrif- inn af því, hve fagurlega fundur- ,nn bar fram játningu sína og andmæli. Sumir líta svo á, að Á. Á. hafi gert sér óvirðing, með því að bera fram þessa játningu sína. Það finst tnér fjarri sanni. Það er ávalt viröingarvert að konia hreinn til dyranna. Hitt er annað mál, að bæði eg og aðrir, sem fylgja kenningu kirkjunnar í þessu efni, hefðum kosið að fræðslumálastjórinn hefði getað tekið af hjarta undir sálmsversið. í niðurlagsorðum þessa kafla pésans reynir G. B. að slá skuld- inni upp á kennara sfna við háskól- ann. Mér er að vísu ekki kunnugt um það, livernig fræðslunni í guðfræði er farið þar, en eg hefi ástæðu til að halda, að þetta sé ekki með öllu rétt hjá G. B. — Kennararnir munu vera svo við- sýnir menn, að þeir munti ekki leitast við að þvínga neinn á- kveðinn skilning, hvorki i þessu né öðru efui, inn í lijörtu nern- endanna. Það er skylda kennar- anna, að skýra frá hinum ýmsu skoðunum, bæði í þessu og öðru, sem fram hafa komið, og við hvað skoðanirnar hafa verið studdar; en svo er það nemandans að tneta og velja. Tilsögn keunarans er ekkert anttað en leiðbeining við sjálfsnám og rannsókn nentand- ans. - Háskólakennararnir vita það vel, að þeir eru að leiðbeina frjálsutn rannsakandi mannsönd- um, og eftir þeim skilningi hygg eg að þeir hagi fræðslunni. — Annað væri óafsakanlegt. Hverjar mundu nú afleiðingarn- ar vera af því, ef G. B. og skoð- anabræður hans hefðu á réttu að standa í þessu efni? Mér getur ekki betur skilist, en að þær hlytu að vera mjög víð- tækar. Ef Jesús er Jósepsson, hljóta ýmsar kenningar kirkjunnar að kollvarpast eða gerbreytast, svo scm kenningiti um guðlega þrenn- ingu, um endurlausnina, um upp- risu lausnarans o. fl. o. fl. Biblían verður að endursemjast, því nema verður úr henni röngu lærdómana um Jesúm Krist, sömuleiðis verð- ur að endursemja postullegu trú- arjátninguna, ltelgisiðabókina og sálmabókina. Ef Jesús er Jósepsson, er þá nokkurt vit í því, að kenna börn- um að játa trú á Jesúm Krist, sern guðs einka son getinn af lieilögunt anda? Er þá nokk- urt vit í því, að skira börn og ferma uppá slíka trúarjátningu? Er þá nokkurt vit í þvi að syngja sálma um guðs eingetinn son! eða sálma, sem innihalda kenn- ingar, sem hljóta að hverfa með þessari kenningu. Allir hljóta að sjá, að þetta nær engri átt. Hér hlyti því að vera fyrir hendi nýtt gerbreytingar stríð á sviði ti úarbragðanna. Ef G. B., og skoðunarbræður lians, trúa þvi að sannleikurinn sé þeirra megin í þessu efni, liljóta þeir að hefja stríðið,' þvl eg geri ráð fyrir að þeir elski sannleikann og berjist fyrir sigri lians. Hefjist þeir ekki handa og gerist þeir ekki frömuðir i sliku stríði, eru þeir ekki skoðCmum sínum trúir, og verður það þá að skoðast svo, að þeir vantreysti sinni eigin sanrtfæringu. Böðvar Bjarnason.

x

Vesturland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.