Vesturland

Árgangur

Vesturland - 03.10.1931, Blaðsíða 3

Vesturland - 03.10.1931, Blaðsíða 3
VESTURLAND 3 Ýmislegt. Hraðsala. Oft hefir heyrst um það talað, að þingmenn gerðu góða verslun með atkvæði sitt. Venjulega þurfa þó nýir þinginenn að venjast dá- litið andrúmsloftinu á þingi, áður en þeir byrja að versla. I sumar sannaðist það þó, að til eru þing- menn svo vel af guði gerðir, að þeir svo að segja eru fæddir versl- unarvara. Svo var það um þing- mann ísfirðinga. Fyrsta daginn sem hann var á þingi, var kaup- samningurinn undirskrifaður. Nú vita það allir, að þann dag samdi hann um landlæknisembættið gegn því að sjá um að stjórnin fengi greiða afgreiðslu mála sinna i efri deild. Hann blátt áfram hefði gengið úr sósaflokknum, ef flokks- bræður hans hefðu ekki gengið inn á þetta. Vilmundur mun haía hraðsölu- met í atkvæðabraski. Hefir hver til síns ágætis nokkuð. Vöxtur Laufásbúsins. Stjórnin er nú í óða önn að innrétta íbúð fyrir Vilmund í Lauf- ási. Átti þetta að fara leynt i fyrstu, en er nú á allra vitorði, og henda rnenn að þvl mikið gaman. Ekki er þó ástæðan sú, að það sé alveg einsdæmi að þingmenn séu keyptir, en nokkuð þykir það nýstárlegt að sá keypti sé beinlínis skoðaður sem hús- dýr. Hugmyndin um ríkisjötuna fer að verða nokkúð bókstaílega út- færð. Væri nú gaman að vita hvort stjórnin hefir ekki fengið eitthvað úr bústofnslánadeild Bún- aðarbankans til kaupanna. Allt fyrir Dani. Sleikjuháttur og hundsleg und- irgefni íslensku stjómarinnar við Dani er orðið almennt hneykslis- mál. Það er svo að þeir Danir, sem best eru gerðir, hafa orðið ógeð á þessari. flattnögun ráð- herranna jafnvel fyrir fréftasnöt- um og hótelþjónum, yfir höfuð öllu, sem danskt er. - Síðasta hneykslið, sem mikið er um talað, varð út af Qræn- landsmálinu. Trampe þurfti svo sem að láta Dani vita, að við ís- lendingar vildum engan rétt eiga á Grænlandi, ef það skyldi verða til styggðar móðurlandinu. Þessi ályktun, sem Alþingi gerði f Grænlandsmálinu, var bara til mótmæla Norðmönnum, og eigin- lega ætluð danska málstaðnum til styrktar! Hann kann að fara með ís- lenska málstaðinn hann Trampe Spor sósíalista. England hefir verið talið einna sterkast allra rikja í heimi fjár- hagslega. Þó hefir stjórn sósíal- ista tekist á sjtuttum tima að sigla þvl I strand fjárhagslega. Enska stjórnin komst að á mörgum og fögrum loforðum. Stærst þeirra var það, að létta af atvinnuleysinu. Efndirnar hafa orðir þær, að atvinnuleysið hefir ankist óhemjulega, jafnframt því sem ógrynni fjár hefir verið varið af opinberu fé í atvintiuleysis- styrki. En sósíalístar hafa jafnframt náð meiri og meiri áhrifum á iðn- aðinn í Bretlandi, en það hefir haft þau áhrif, að breskur iðnað- ur er ekki lengur samkeppnisfær á heimsmarkaðinum fyrií dýrleika sakir. Vér íslendingar höfum fengið eitt dæmi um það, hvernig fer með þann atvinnurekstur, sem sósíalistar ná yfirráðum yfir. Það eru ekki nema fjögur ár síðan þeir fengu svo að segja ótak- mörkuð umráð yfir síldarfram- leiðslu vorri, og nú má líka svo heita að þessi atvinnurckstur sé alveg kominn úr höndum íslend- inga. Utlendingar hafa átt léttan leik við að leggja islensku síldar- framleiðsluna undir sig, er við sltka var að eiga. Margt er líkt með skyldum. Nedre Eiker hérað i Noregi var fyrir tveim áratugum í miklum blóma fjárhagslega, og borgar- arnir vel síæðir. Þá náðu sósíal- istar þar meirihluta í stjórn hverr- ar sveilar, og hafa ráðið öllu í héraðinu stðan. Hefir öllu verið endavelt, en skrum og gort af framkvæmdunum og „glæsilegri afkomu“ gengið fjöllunum hærra. Alveg nýlega sendi þó héraðs- stjórnin rikinu bænarskrá um hjálp og varð þá að játa, að allt væri upp etið, sem af borgurunum er hægt að reita, en skattarnir hafa verið og eru drápsklyfjar á gjald- endum. Nánar er svo frá skýrt, að þess- um kröfum sé ófullnægt af hinum tóma kassa: Ógreiddir vextir og afborganir kr. 67721.00. Skuld við atvinnuleysissjóð kr. 116526.00. Ógr. fylkisskattur kr. 118682.00. Skuld við sjúkrasjóð héraðs- ins kr. 38770.00. Ógreiddar ávísanir og reikn- ingar kr. 135000.00. Ógreidd.læknishjálp kr. 1000.00. Ógr. laun starfsm. kr. 56524.00. Ógr. ellistyrkur kr. 30000.00. Finst mönnum þetta minna nokkuð á 10 ára stjórn flokks- bræðranna, bæjarstjórnarmeirihlut- ans á ísafirði. Gengisfall. Síðan greinin um gengisfallið var rltuð, hefir það spurst að Danir hafa leyst þjóðbankann frá gullinnlausnarskyldunni, og lækk- að gengi danskrar krónu i hlut- falli við lækkun sterlingspundsins. Svipuð lækkun á gengi hefir átt sér stað hjá hinum norðurlanda þjóðunum. Nú hefir gengi íslenskrar krónu einnig verið lækkað hér á landi, þannig að hún fylgir gengi ster- lingspundsins. Aíli ísfirskra skipa síðastliðið sumar. Á síldveiðum: Ásbjörn . . 8718 tunnur. Auðbjörn . 8438 — Gunnbjörti. 11648 ísbjörn . . . 10279 Sæbjörti . . 8787 Valbjörn . . 9276 — Vébjörn . . 10026 Percy . . . 8200 — Svalan . . . 5500 — Ölver.... 11000 Samtals 91872 tunnur. Mest af þessari sild hefir verið látið í bræðslu, lltið eitt saltað og látið í ishús. Á handfæraveiðum: Hekla . . 302 skpd. á 16 Bolli . . . 300 — á 15 Geysir . . 105 — á 9 Svend . 81 — á 12 Björn . . 290 — á 18 Gammur. 82 — á 7 Hermann 105 — á 9 Munimi 160 — á 12 vikum. Samtals 1425 skpd. Hér eru reiknuð 250 kgr. af saltfiski upp úr skipi í skippundið. Frá ísafipdi. Hjúskapur. Hinn 26. f. in. voru þau ungfrú Steinunn Ásgeirsdóttir og Þórhall- ur kaupm. Leósson gefin saman i hjónaband af prófastinum, séra Sigurg. Sigurðssyni. Fór vigslan fram á heimili foreldra brúðurinn- ar, á Kafé Uppsölum, og sat fjöldi boðsgesta þar veislu á eftir at- höfnina. Siðastl. laugardag voru ungfrú Hrefna Samúelsdóttir og Sverre Tynes gefiti saman hér í kirkjunni. Fór athöfnin fram fyrir lokuðum dyrum, einungis að viðstöddum boðsgestum. Veisla var haldin á eftir á Kafé Uppsölum og sátu hana um 60 manns, flest að- standendendur brúðhjónanna. Vesturland árnar báðum brúð- hjónunum allra heiila. Landlæknir hefir Vilmundur Jónsson verið skipaður frá 1. þ. m. Flutti hann með fjölskyldu sína alfluttur til Reykjavíkur með „Goðafossi“. Kvöldskemtun heldur Blóm- og trjáræktarfélag- ið næstkomandi föstudagskvöld. (9. þ. m.) Félagið hefir þegar hafið undirbúning til að stækka blómagarð sinn um helming á næsta ári og gengur ágóðinn af skemtuninni til þess. Blómagarður sá, sem félagið þegar hefir koinið upp, er fegursti bletturinn i bænum og augljós vottur um ósérplægni og úthald þeirra sem unnið hafa árum sam- an að því að gera liann sem feg- urstan, þó oftast hafi verið þröngt um fjárhaginn. En þó þessir menn hafi náð markinu í bili ætla þeir Kanpi sænsk ríkisskuldabréf, (ríkishappdrætti) frá 1921, 1923, 1889, 18^3. Sendið skuldabréfin, og eg sendi greiðslu um hæl. — Magnús Stefánsson Spltalastíg 1. Reykjavik. Skrifborð til sölu. — Guðjón E. Jónsson. ekki að leggja árar í bát. Garð- urinn á að stækka, segja þeir, afnvel alla leið inn að Sjónarhæð áður lýkur. En Róm var ekki byggð á einum degi. ísfirðingar sýna bezt skilning sinn á hinu góða markmiði fé- lagsskapar þessa með því að fjölmenna á kvöldskemtunina n.k. föstudagskvöld. Hússala. Þeir Kristján H. Jónsson stýri- maðui og Steinn Leós hafa keypt húseign Magnúsar Magnússonar kaupni., Hafnarstærti 11, frá 1. þ. m. Er Kristján eigandi syðri enda hússins en Steinn norður endans. Munu hinir uýju eigend- ur starfrækja þar verzluti í fram- tíðinni, hvor i sínu lagi. Eti fyrst uin sinit hefir seljandinn tekið búðirnar á Ieigu á meðan hann er að selja vöruleyfar sínar. „Venator“, enskur togari kotn hingað þann 1. þ. m. og á að taka hér fisk í is, af bátum hér við Djúp, og flytja til Englands. Vegna storma hefir enginn getað róið þessa daga og liggur togarinn því hér enn. Er þetta einn af leigutogui- um félags þess, sem Jón Auðunn alþm. veitir forstöðu hér. Vegna aflaleysis hér vestra undanfarið hafa þessir togarar flutt út Isfisk frá norðurlandinu síðasta mánuð og hefir Jón Auðunn því dvalið þar I þeim erindum síðan þingi var slitið, en er nú kominn aftur til bæjarins. „Volesus“ leigutogari sama félags var að leggja af stað til Engiands aðfara- nótt 27. f. m., með ca. 80 tons af ísuðum fiski, er hann á fullri ferð rakst á Grenjanesboða á Þistil- firði. Var strandvarnarskipið Ægir kallað á vettvang og náði það togaranum af boðanum síðastl. mánudagsmorguu (þ. 28. f. m.) Gat hafði komið á skipið og var gert við það til bráðabirgða svo að það gat haldið áfram ferð sinni til Englands. „Goðafoss" kom hingað að norðan þann 3. þ. m. Kom hann við á Hest- eyri og tók þar sildartnjöl og lýsi hjá h.f. Kveldúlfi. „Island“ kotn hingað að norðan i gær (4. þ. m.) og hélt áfram til Rvlkur sama dag. Farþegar héðan: Guð- inundur Hannesson bæjarfógeti og frú og Hannes sonur þeirra, Magnús Magnússon kaupmaður og frú, frú Sigríður Axelson, Hai- ald Aspelund kaupm. o. fl.

x

Vesturland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.