Vesturland

Árgangur

Vesturland - 12.08.1933, Síða 1

Vesturland - 12.08.1933, Síða 1
VESTURLAND X. árgangur. ísafjörður, 12. ágúst 1933. 12. tölublað. Blekkingar ,Skutuls‘. Sagt er að Hannibal Valdemars- son kennari riti nú „Skutul” i fjar- veru þeirra Finns og Vilmundar. Bregður þar fjórðungi til fósturs og er hann auðsjáanlega, að reyna að setja ný met f stóryrðum og biekkingum. Gengur það eflaust ekki vel, þar sem svo mikið er fyrir af þeirri vöru áður, en sýni- lega vantar Hannibal ekki viljann og mega þeir virða það við hann, húsbændurnir. í „Skutli ' 4. þ. m. iiefir H. V. ritað grein, er hann nefnir: „Sigur- lygar Sjálfstæðismanna". (Foreldr- ar, sem eiga börn í höndum þessa „fræðara” og aðrir sem góðum siðum unna ættu að taka eftir hinu prúðmannlega orðbragði — eða hitt heldur —, sein þessi piltungi tem- ur sér I ræðu og riti). í grein þessari er þeim íávíslegu blekkingum haidið fram, að Sjálf- stæðisflokkurinn hafi tapað fylgi við síðustu Alþingiskosningar og að tala um sigurvinningar hjá flokknum, eins og gert hafi verið hér í blaöinu, sé bara gort. Fæstir myndu trúa að aðrir en forheitustu glæþamenn ættu til slíka óskammfeilni, að ætla að telja fólki trú um slíkar fjarstæður og haidið er fram í grein þessari. Tölurnar ijúga ekki, en það er hægt að Ijúga með tölum, sagði sr. Guðm. Guðm. einu sinni, og það gerir greinarhöf. ineð því, að taka þær tölur einar, sem eru lægri hjá Sjálfstæðisílokknum nú en við næst siðustu Alþ.kosningar, en sleppa tölum í öllum þeim kjördæmum, þar sem atkvæöatalan hækkaði. Br þetta að eins sýnishorn af venjulegum blekkingaraðferðum þeirra rauðu bandamannanna. Önnur mjög fáránleg blekking er og i grein þessari. Er hún svo úr garði gerð, að sú spurning hlýtur að vakna hjá hverjum alvar- lega hugsandi manni, að menn sem búa slikt til i fullri alvöru séu ann- aðhvort andlegir sjúklingar, sem eigi geti gert greinarmun á réttu og röngu, eða svo forhertir, að þeir haldi hikiaust fram ósannindum i stað sannieika. Það er sú blekking, að Fram- sóknarnienn hafi setið heima þús- undum saman nú við Alþingis- kosningarnar — og því bætt við, að það hafi átt að vera hegning á Framsókn fyrir samstarf við Sjálfstæðisflokkinn. Það er nauðsynlegt að rekja hér stuttiega feril þessara ósanninda. Fyrst eru þau borin fram í Tíman- um og á Jónas Jónsson auðsjá- anlega að huggast við þessa sjálfs- blekkingu — og hinn mikli ósigur Framsóknar «ð stafa af því, að ekki hafi verið fylgt bardagaaðferð hans til hins ítrasta, Síðan taka Alþýðuflokksblöðin upp þessa fá- ránlegu fjarstæðu með hjartanlegri gleði og sýnir það Ijósara en nokk- uð annað, hve sambandið er náið inilli þessara flokka og f raun og veru er um einn flokk að ræða, þótt gerfin séu mörg. Um þá mörgu kjósendur víðs- vegar á landinu, sem nú sátu heima.eða ckki gátu greitt atkvæði, veit vitanlega enginn hvaða flokki þeir hafa sérstaklega tilheyrt. Ef gera ætti skynsamlega áætlun um skiftingu þeirra milli flokka yrði sú eðlilegust, að skifta þeim eftir sömuhlulföllumoghinumsemkusu. Nokkru mun það hafa valdið um hve margir sátu heima nú, að tnargt af friðsömu og ærlegu fólki er orðið sárþreytt á blckkingum, rógi og skrilyrðum rauðu blað- anna og yill syo helzt hvergi nærri stjórnmálum koma. Að gefa Framsókn alla þessa kjósendur, eins og „Skutull" gcrir kemur að eins upp um strákinn Tuma. Aiþýðuflokksmenn sverja fastiega fyrir alt samstarf við Framsókn fyrir kosningar og eru með látalæti um að skamma hana dálítið, en tekur svo sárara til ósigra hennar, en jafn vel sinna eigin hrakfara. Ef um hegningu væri að ræða frá þessum kjóser.dum fyrir sam- starf við Sjálfstæðisflokkinn ætti hún engu síður að hitta sósíalist- ana en Framsókn, því sósialistar hafa að sumu leyti átt engu þýð- ingarminna samstarf með Sjálf- stæðisflokknum en Framsókn, en vitanlega er alt slikt skraf út i hött og sjáanlega sprottið af gremju yfir þvi, að kosningar sýndu greini- lega að þjóðin ber meira traust til Sjálfstæðisflokksins en hinna flokkatina. Og er það að vonum. Fleiri blekkingar eru í ritsmíð þessari og er hér ekki rúm til að rekja þær allar. En benda verður á þá regin-blekkingu, að svo er látið heita, sem Alþýðuflokkurinn hafi bætt við sig atkvæðum I þess- um kosningum og þannig unnið sigur. Er sú blekking þann veg tilbúin, að atkvæði þau sem Fram- sókn lánaði þessum pólitísku bræðrum sínum eru talin með sem hrein jafnaðarmannaatkvæði. Séu þau atkvæði dregin frá, miðað við það fylgi sem Framsókn fékk í þessum kjördæmum 1931 ogkunn- ugt er að öðru ieyti er um mikla afturför að ræða hjá Alþýðu- flokknum. Það hallast þvi ekki á með vit- ið og vöndunina hjá piltinum. Annars vegar er gort og fáfiæði, en hinsvegar sú forherta óskamm- feilni, að ganga á snið við allan sannleika. Eg trúi ckki öðru cn að allir réttsýnir ntenn hafi skömm á slikum málflutningi og láti þá sem slíkt aðhafast fá makleg málagjöld. En hversu kænlega sem þeir Skytlingar slá blekkingarvefinn stendur kosningasigur Sjálfstæðis- flokksins óhrakinn. Hann er staðreyud, sem ekki þýðir að mótmæla. X.

x

Vesturland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.