Vesturland - 19.08.1933, Qupperneq 2
50
VESTURLAND
aði nú skilyrðislaust að komast
að jötunni. Hann hafði auk þcss
með ráðsmennsku sinni sett Sam-
vinnufélag ísfirðinga nær því á
höfuðið, en hins vegar tryggt sér
það, að eigendur bátanna, Bjarn-
anna cða Rússanna, sem þeir
ýmist eru nefndir, gæti ekki rifið
sig lausa, með því að lokka eig-
endurna til að selja félaginu bát-
ana. Og meiri hluta bæjarstjórn-
arinnar hefir hann ginnt til að
ábyrgjast fyrir félagið og lána
það, sem lánað varð úr hafnar-
sjóði, svo að bæjarsjóður er svo
galtómur, sem verða má. Báta-
höfnin verður ekki bygð af því
að allt sem hafnarsjóður hefir
getað við sig losað, er fast I
Samvinnufélaginu.
Þessi sæmilega efnaði og tekju-
mikli sjóður getur ekki lagt fram
50 þús. kr. árlega I næstu ár,
hvað þá 50 þús. kr. til þess að
geta látið byrja á verkinu, þvl að
hvað á þá að halda uppi fjármála-
stjórn bolsanna? Og sjúkrahúsið
mjólkar ekki nema takmarirað,
sem aðrar mjólkurkýr, þó góðar
séu.
Nei, nei, það er farið að rjúka
úr jörðunni undir fótum Finns
og hann veit, að eldurinn æðir
undir. Það er eina ráðið að bjarga
sér f burtu fyr en I ótima er kom-
ið og fsfirzku kjósendurnir hafa
hjálpað honum drengilega. Einn
góðan bita hjá rlkinu og hann er
sloppinn!
Vilmundur! Sýndu nú dugnað
þinn og stappaðu upp nýrri tó-
bakseinkasölu handa F. J. eða nýrri
síldareinkasöiu handa honum til
að setja á hausinn eða einhverj-
um fjandanum öðrum, svo að
hann sleppi héðan áður en allt
hans hrófatildur hrynur ofan á
hann og kannske mer hann til
bana. Hvernig heldur þú að Finni
Iiði hér, þegar augu kjósenda
hans fara að opnast og þeir sjá,
hvernig hann hefir allt í pottinn
búið fyrir þá? Ertu ekkert hrædd-
ur um að ísfirðingar, sem eru í
blóðheitara lagi, kunni að vega
hann í ógáti?
H a k i.
f
Jón Þorvaldsson
héraðslæknir.
Hann var fæddur hér á ísafirði
15. júní 1867 og andaðist I Reykja-
vík 3. júnl þ. á., eftir uppskurð.
Foreldrar hans voru hin nafn-
kunnu hjón: Þorvaldur Jónsson
héraðslæknir og Þórunn Jónsdóttir.
Jón gekk í latínuskólann I Reykja-
vík, varð stúdent 1888, en lauk
lofsamlegu prófi f læknisfræði
1892 og varð þá aðstoðarlæknir
föðurs síns hér á ísafirði. Þótti
hann heppinn læknir og var vel
látinn. 1901 var Jón skipaður hér-
aðslæknir í Hesteyrarhéraði og
þjónaði því alla tíð þangað til á
s. 1. vori, að hann fékk lausn frá
embætti. Var Jón vinsæll maður
í héraði sínu og merkur eins og
hann átti kyn til. Ekkja Jóns af
síðara hjónabandi, er Maitha S.
Bachmann, frá Patreksfirði.
„Vesturl." flytur nú minningar-
ljóð um J. Þ., eftir síra Jónm.
Halldórsson á Stað I Grunnavík:
Yzt og nyrst á norðurleiðum
við náin kynni feikna og ísa,
þar sem hæst úr hafi rfsa
heljaríjöll með jökulbreiðum,
þar sem landsins - kröppumkjörum
Kaldbaks arfur býr í hreysum,
áttu spor mcð frægðarförum
f fannariki og vegaleysum.
Býr við skort og brotasilfur
og bakraun menning Hornstrand-
anna,
áþekk kjörum útlaganna,
að þeim reiddar þingsins kylfur.
Við samgöngur og sfmaleysi,
sortahrið og vetrar-nauðir,
ei landsstjórn veit.þóttlöngudauðir
liggi menn í köldu hreysi.
Vel er þegar verkin tala
— vikin þó að skilji leiðin —
yzt til nesja, innst til dala
um þig stafa geislar heiðir,
hvar sem menn á fundum finnast
eða förnum vegum mætast —
á læknirinn er ljúft að minnast,
er lét svo margra vonir rætast.
Óhamingju útnesjánna
alla tíma vopnin bita,
að fá þig hér ei framar lita
finnst mér ofraun þinna granna^
Seint og ekki sumir gáðu
að sæmdarlífi ykkar hjóna,
lifðuð til að lækna og þjóna,
Iaunin smá að ending þáðuð.
Nú Ijómar yfir norðurvegi
nóttlaus veröld yls og blóma,.
svo lfður fram með láni og sóma
og Iýkur góðs manns æfidegi.
Þar sem góðra manna getur,
gifta þjóðar höfði lyftir,
að brottför þeirra er sælusviftir
sumri hallar, nálgast vetur..
Kærleiksstarf f kyrþey unnið
kveikir ljós yfir dauðans ósum,.
er sem minning ilmi af rósum,
er æfiskeiðið fagra er runnið.
í júni-ljóma laufguð gröfin
laugast bjartar sumarnætur
hans, sem kunni á böli bætur
bónleiðra við norðurhöfin.
Þar var traust og tryggð með festu
tállaust mál og göfgi sálar,
síðar þegar sagan málar
sinna lækna myndir beztu
ofarlega ætla eg reynist
útlaganna heilsuvörður
— enn þá lifa Helga og Hörður
í Hólmanum, þó að sumum leynist.
Sveinn Árnason
fiskimatsmaður kom hingað með
Dettifossi 9. þ. m. hefir dvalið hér
undanfarið til þess að ræða við
útgerðarmenn um hina nýju fisk-
verkun, er hann fékk einkaleyfi á
um næstu 5 ár á síðasta Alþingi.
Hefir Sveinn kallað fisk þennan
Magna, en það er sama verkun og
þekt er frá New.-Foundlandi undir
nafninu Shore. Er fiskur þessi eftir-
sótt vara sumstaðar í fiskmarkaðs-
iöndum okkar og stórfiskurinn
einkum I hærra verði, en fiskur
verkaður á annan hátt.
Sveinn hefir verkað Magnafisk
um alllangt skeið og kveður verk-
unina yfirleitt hafa tekist vel og
gefa góðar vonir um að hún ryðji
sér braut smámsaman.
Sveinn er eindregið fylgjandi því
að tekinn sé alment upp pækil-
söltun á fiski og telur að á þann
fáum við istendingar miklu verð-
meiri fisk en ella.