Vesturland - 02.09.1933, Síða 1
VESTURLA
X. árgangur.
Innflutningshðftin.
Það hefir verið sérstaklega ein-
kennandi fyrir alla stjórnartið
Framsóknar, að leggja sem fiest
bönd og höft á alla frjálsa verzlun.
Hefir þetta bæði verið gert með
allskonar einkasölubraski og nú
síðast með innflutningshöftunum.
Þegar innflutningshöftunum var
skelt á þóttu þau nauðsynleg til
þess.að bæta greiðslujöfnuð lands-
ins út á við. En þó viðurkentsé,
að þetta hafi getað verið rétt, eins
og þá stóð á, er það víst, að inn-
flutningshöftin eiga engan tilveru-
rétt Iengur, því það verður að
draga i efa, meðan ekki eru færð-
ar fram fullgildar sannanir fyrir
hinu gagnstæða, að þau bæti
greiðslujöfnuð rikisins nokkuð.
Nú myndi ekki verða ftutt inn
annað en það, sem nauðsynlegt
má teljast. En yrði um ónauð-
synlegan innflutning að ræða væri
rikissjóði innanhandar að fá svo
miklar tekjur af honum með háum
tolli, að það myndi bæta greiðslu-
getu hans meira en höftin.
Hjá kaupmönnum víðsvegar um
land er almenn óánægja yfir því,
að innflutningsleyfi hafi komið
mjög misjafnt niður og segjast
þeir verða afskiftir fyrir reykvísk-
um kaupsýslumönnum. Um þetta
skal ekkert fullyrt hér, en það er
fuilvist að innflutningshöftin hafa
Iagt verzlun ýmsra kaupsýslu-
manna sem verzla með nauðsynja-
vörur, t. d. skófatnað, svo að segja
i rústir, en lamað aðra stórlega.
Kemur þetta þungt niður, ekki
eingöngu á hlutaðeigandi mönn-
um sjálfum heldur bæjuin og hér-
uðum, sem einmitt hafa mestar
sínar tekjur af verzlunarstéttinni.
Hvert sem litið er sézt ekki
annað en ófarnaður af höftunum.
Það er þess vegna krafa frjáls-
hugsandi manna, að þau verði af-
numin sem allra fyrst.
ísafjörður, 2. sept. 1933.
Gunnars-slysið.
Nú er að fullu útséð um það,
að gufusk. Gunnar hafi farist með
allri áhöfn.
Hniga þar I valinn 5 vaskir
drengir, allir á bezta aldri, og er
að þeim mikilljmannskaðiog eftir-
sjá fyrir bæjarfélagið.
Hvernig slysið hafi borið að veit
enginn, en fullvíst má telja að það
hafi orðið einhversstaðar á Húna-
flóa.
Varðskipið Óðinn hefir samkv.
beiðni sýslumannsins hér, leitað
að skipinu viðsvegar um Húna-
flóa undanfarna daga, en ekkert
fundið.
Slys þetta ætti að vera sterk
hvöt fyrir alla góða menn til þess,
að búa sem allra bezt um alt ör-
yggi sjómanna; þessara vösku
hetja islenzku þjóðatinnar, sem
eiga í látlausu striði til þess að
sækja sér og allri þjóð sinni auð
og brauð í hafsins skaut.
Nöfn skipverja voru birt i síð-
asta blaði og munu vinir þeirra
eða vandamenn minnast þeirra
nánar við tækifæri.
Vaxíalækkun.
Landsbankinn hefir tilkynt lækk-
un vaxta frá 1. þ. m. þannig:
Innlánsvextir í sparisjóði 4°/0;
á viðtökuskírteinum 41/2°/o. en allir
útlánsvextir lækka um 1/st°/0.
Vaxtalækkun mun og vera í
undirbúningi hjá Útvegsbankanum.
Var fulltrúaráðsfundur haldinn i
gærkveldi til þess að ákveða um
hana, en engin opinber tilkynn-
ing komin um vaxtalækkun þar
enn þá.
16. tölublað.
Fæði
fæst keypt hjá
Unni Guðmundsdóttur,
Fjarðarstræti 27.
Stofuofn til sölu með tækifæris-
verði. Sveinbjörn Kristjánsson.
Fiskútflutningurinn
hefir verið yfirleitt mjög hægfara
það sem af ersumrinu. Valda því
meðal annars óvenju tniklir hitar
i markaðslöndunum i júlimánuði
og framan af ágúst og þar af leið-
andi dauf eftirspurn. Nú siðan leið
á sumarið hefir eftirspurnin á fiski
glæðst og hefir Sölusamlag ísl.
fiskiframleiðenda nú 8 skip hér
við land sem taka fisk og 1 er
nýfarið. Söluverð fiskjar er nú
svipað og verið hefir, stórfiskur
72—74 kr. skpd. og Labradör-
fiskur 57 kr. skpd. Eru horfur
sagðar á því, að þetta verð hald-
ist; tnáske hækki heldur. Heyrst
hefir að einstöku menn utan Sam-
lagsins hafi selt fyrir hærra verð.
En á fisk þann sem Samlagiðseldi
f fyrra mun verða borguð nokkur
uppbót, sem ekki er endanlega
uppgerð enn þá og má búast við
þvi, að svipað verði í ár.
Hér vestra hefir heyrst óánægja
hjá fiskieigendum út af þvi, hve
tregt gengi um útflutning fiskjar-
ins, sem fyrir nokkru er allur að
mestu verkaður. Hafa sumir haldið,
að við værum afskiftir mcð út-
flutning, og þólt súrt i broti, sem
vonlegt er. En þeim fiski sem út
er fluttur hjá Samlaginu hefir ver-
ið deilt á útfiytjendur eftir fiski-
magni.
Smokkveiði
stunda enn allmargir bátar í Arn-
arfirði og Tálknafirði. Komu tveir
bátar hingað i morgun með dá-
góðan afla.