Vesturland

Ukioqatigiit

Vesturland - 02.09.1933, Qupperneq 2

Vesturland - 02.09.1933, Qupperneq 2
62 VESTURLAN D Vegamál Vestfjarða. Greinin um vegamál Vestfjarða í 14. bl. hefir vakið mikla athygli og áhuga fyrir þvf, að fá bilvega- samband milli ísafjarðar og Vest- fjarðanna. Sumir hafa látið I Ijósi, að lítt myndi að marka áætlun þá, sem blaðið skýrlr frá, og að verk- ið verði miklu dýrara 1 framkvæmd. Hefir blaðið átt tal urn þetta at- riðí að nýju við Lýð Jónsson og hann endurtekið það sem sagt var um þetta I 14. bl., að því viðbættu, að áætlun sina um kostnað við Heiðarveginn sjálfan telji hann varlega og full hátt áætlaða. Aðrir telja veginn koma lítt að notum, þótt lagður verði, vegna snjóa, nema stuttan tima úr árinu. Er það satt, að snjóalög eru hér oft mikil, en þó má fyllilega áætla, að vegurinn yrði fær a. m. k. 4 mánuði snjóa vegna, eftir þvf sein tiðarfar hefir verið nú um mörg ár. Stundum lengur. Bændur í Önundarfirði hafa bundist samtökum um það, að leggja fram vinnu til vegagerðar frá Vifilsmýrum að Mosvöllum nú í haust, sem greiðist aftur af fjár- hæð þeirri, sem lögð er til vegar- ins á næsta ári. Bresti ekki áhuga og kjark má brúa þessa vegatorfæru, Breiða- dalsheiðina, mjög bráðlega. Nú í haust verður frarnkvæmd vegaransókn af Lýð Jónssyni alla leið úr Dýrafjarðarbotni suður á Þorskafjarðarheiði eða Steingríms- fjarðarheiði. Verður athugað veg- arstæði á fjallgarðinum milli Vest- fjaröa og ísafjarðardjúps, þar sein áður var talinn Glámujökull, en nú er löngu snjólaust með öllu, jafn vel snemma sumars. Hefir snjó- Iínan hér vestra mikið hækkað slðustu 50 árin og væri ransókn á þvf visindalegt verkefni. Eignakaup. Einar Guðfinnsson kaupm. i Bol- ungavik hefir nýl. keypt mestan part af eignum db. P. Oddssonar. Kaupverðið er sagt 51 þús. kr. Vesturland kemur framvegis út tvisvar í viku. Auglýsendur skili augl. timanlega. Fréttir. Aðalf. Prestafélags Vestfjarða stendur yfir þessa dagana á Bíldu- dal í Arnarfirði. Vesturl. mun sið- ar skýra frá þvi helzta sem gerist á fundinum. Hollenzkir stúdentar, 11 að tölu, dvöldu á ýmsum heim- ilum hér við ísafjarðardjúp frá þvi í byrjun júlímán. og fóru með Goðafossi 26. f. m. Vinna þeir að ýmsum heimilisstörfum, aðallega heyverkun, og taka ekki kaup fyrir, en leggja stund á að kynnast fólk- inu og héraðinu umhverfis. AIls komu nú hingað til lands 21 stú- dentar; voru nokkrir þeirra stúlk- ur. Vistuðust 10 þeirra sunnan- lands, flestir í Borgarfirði og Döl- um. Torfi Hjartarson sá um vistar- staði handa stúdentunum cg eins i fyrra, en þá komu þeir fyrst hingað. Stúdenlarnir Iáta mjög vel yfir dvöl sinni á íslandi og höfðu flestir þeirra lært nokkuð í íslenzku þennan stulta dvalartima. Bændur, sem stúdentar þessir hafa verið hjá, bera þeim bezta orð. Búist cr við að hollenzkir stú- dentar komi hingað næsta ár, því nú komust ekki allir að, sem fara vildu. Grænlandsfarið Gertrud Rask kom hingað 1. þ. m. beina leið frá Scoresbysund i Grænlandi, til þess að taka hér vistir og kol. Skipið fer héðan til Angmagsalik f Grænlandi. Gertrud Rask hefir verið f sumar við Grænland, til aðstoðar leiðangri Lauge Koh’s Grænlandskönnuðs. Norska ransóknarskipið Heim- land I kom hingað fyrri hl. vik- unnar, til þess að taka hér vistir og kol. Skip þetta hefir verið við fiskiransóknir f hafinn vestan og norðan við ísland og alt austur undir Grænland. Vélsk. Harpan kom hingað af sildveiðum 31. f.m. Hefir aflaö um 5 þús. tn., en salt- að mest allan aflann og útkoman því sæmileg. Togarinn Hafsteinn kom af sildvciðum 1. þ. m. Hefir fengið mjög lftinn afla. AUs um 4 þús. tn. Hanniba! skeifur! Vesalings Hannibal Valdemars- son hefir orðið allskelfdur yfir grein minni „Smávegis úr ríki bolsanna", í 10. tbl. Vesturl., 29. júli þ. á. — Var i þeirri grein, með látlausum og almennum orðum fyrst skýrt frá setningu, er tveir menn heyrðu hann hvísla að Finni Jónssyni, húsbónda sfnum; inni í stofu á ísafirði. Þá er i öðrum kafla greinarinn- ar, sem nefndur er „Sannsögli Hannibals”, borinn saman frétta- burður hans í Skutli, 12. júlíþ. á, við það, er sjónar- og heyrnar- vottur á fundi, sem haldinn var i Bolungavík i sumar, sagði méraf fundinum. Hr. H. V. byrjar á því að segja, að greinin sé að nokkru leyti böggulsleg klúryrði og svivirðing- ar um sig. Til þess að sýna hv. lesendum fram á sannleiksást H. V., skal eg benda á það, að í greininni er ekki neipa eitt veru- legt klúryrði, sem tekið er upp úr Skutli, þar setn einhverjir menn eru kallaðir „helvítis kvikindi“. En að öllum líkindum er frásögn Skutuls hér ónákvæm, það má telja nokkurn veginn víst, að þar hafi verið átt við hr. H. V. einan. Þá telur hr. H. V. það bert, að Vesturlandsmenn kalli nú Bolunga- vik „riki bolsanna“, og er hreyk- inn yfir að hafa fundið það upp, en fer þar auðvitað á hundavaði, eins og eðli hans er. Mér þykir ólíklegt, að Vesturlandsmenn fari að gefa Bolungavik nokkurt það nafn, sem hún á ekki skilið, eða voru þeir kannske úr Bolungavík kommúnistarnir fjórtán, sem sviku frambjóðanda sinn, svo að Vilm. landlæknir flaut inn með 11 atkv. mun? Og voru það ekki einmitt Bolvíkingar, sem i fyrra fluttu hr. H. V. frá sér, eins og eitthvert pestfangið kvikindi, sem þeir hvorki vildu hafa né lfðahjásér? Og þó gín hatin bráðsólginn yfir þeirri eigin flugu sinni, að Bol- ungavík sé nefnd „riki bolsanna!" Er maðurinn virkilega gersneydd- ur heilbrigðri hugsun og skyn- semi? Þessu næst fer hr. H. V. að

x

Vesturland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.