Vesturland - 09.09.1933, Qupperneq 1
X. árgangur.
ísafiörður, 9. sept. 1933.
18. tölublað.
Innflutnmgshöítm.
Þér hafið, hr. ritstj., vikið rétt og
maklega að innflutningshöftunum
i „VI.“ 2. þ. m. og er eg yður
þakklátur fyrir.
En betur má, ef duga skal. Þvi
tnargir menn, einkum innan Fram-
sóknarfiokksins, virðast haldnir af
þeirri blindu, að innflutningshöftin
séu bót þeirra meina sem þjá verzl-
un landsmanna og búskap ríkis-
sjóðs.
En sannleikurinn um innflutn-
ingsböftin er sá, að þau virðast
sett með það eitt fyrir augum, að
iama verzlun allra kaupsýslu-
rnanna, en til bjargar kaupfélög-
unum, sem þrátt fyrir skattfrelsi
og mörg önnur sijórnarfríðindi
eiga eríitt uppdráttar í samkcpni
við kaupmer.n og eru sum að
veslast alveg upp.
Að minsta kosti er framkvæmd
haftanna hagað á þennan veg, því
sagt er að kaupfélögin fái ótak-
markaðan innflutning, þótt öðrum
sé harðlega neitað. Höftin koma
því ekkert við verzlunarrekstur
þeirra, en lama og hindra rekstur
annara kaupsýsiumanna.
Til dæmis um hve ‘ nærri inn-
flutningshöftin ganga rekstri ein-
stakra kauprnanna skal eg nefna,
að einn starfsbróðir minn hér í bæ
fékk innflutningsleyfi fyrir einar
450 d. kr. siðastl. ár; umaltann-
að var synjað. í ár hefir honum
engu betur gengið að fá leyfi.
Maður þessi hafði áður ágæta
verzlun, en úr henni hefir nú dreg-
ið svo, að hún má heita alveg
þorrin. En samt mun hlutaðeigandi
ekki gefast upp að sinni, þrátt fyr-
ír háit útsvar til bæjarins, sem
ekki hefir tekið lillit til hvernig
ástatt er um verzlun hans.
Svipaða eða litlu betri sögu hafa
margir aðrir kaupmenn að segja.
En þótt sýnast megi, að slík ráð
ættu að bíta til framdráttar kaup-
féiögunum, mun það sannast, að
þau fitni ekki mikið á þessu, en
komi jafn mögur og þau voru áð-
ur frá stjórnarmatborðinu. A. m. k.
hefir sú orðið reyndin hingað til,
að öll fríðindin hafa ekki megnað
að fleyta þefm lengra áfram en
kaupcýslumönnum aiment. Skal
því slept hér að rekja ástæðurnar
til þessa.
Sjáifstæðisflokkurinn hefir verið
ákveðið fylgjandi frjálsri verzlun,
en engu fengið umþokað um af-
nám innflutningshaftanna til þessa.
En hann má ekki láta baráttu sina
niður falla, heldur berjast ótrauð-
ui þangað til innflutningshöftin
eru með öllu afnumin.
Kaupmaður.
Stórflóð og skemdir
í Norðurárdal í Borgarfirði.
í rigningunum undanfarið hefir
vöxtur mikill hlaupið t ár allar og
urðu að þvi svo mikil brögð í
Norðurárdal i Borgarfirði, að þar
brauzt fram vatnsflóð mikið 7. þ.
m., sem olii miklu tjóni. Skolaði
flóðið burtu tveimur steypubrúm
af Bjarnardalsá, skamt fyrir neðan
Dalsmynni, og hinni þriðju af
Litluá, skamt frá Hvammi.
Flóðið náði yfir mikinn hluta
af Borgarneshreppiogsópaði burtu
heyi, er úti var, af mörgum bæj-
um. Er gizkað á, að það hafi
numið samtals á 4. þús. hestburða.
Flóðið hefir og tekið allmargt
fé, því þegar í gærdag höfðu
margar kindur fundist dauðar og
flóðsvæðið þó ekki alt kannað.
Nokkur vöxtur hafði og hlaupið
í Hvifá og áin valdið skemdum
á þjóðveginum hjá Hvitárvöllum
og Ferjukoti.
Skriða hafði hlaupið á túnið
á Qullberastöðutn i Lundareykja-
dal og skemt það rnikið.
Flóð þetta er sagt hið mesta,
sem komið hefir síðustu 60 árin.
Jóhannes Jóhannesson
áður bóndi á Ytra-Lóni á Langa-
nesi (faðir sr. Þorsteinsí Vatnsfirði)
lézt hér á sjúkrahúsinu í gær-
morgun. Jóhannes var fæddur 27.
april 1863 og var mesti myndar-
bóndi á sinni tlð oggegndi mjög
opinberum störfum í sveit sinni.
Gáfaður maður og vel hagorður.
Ekkja hans er Þuríður Þorsteins-
dóttir. Fluttu þau hjón hingað
vestur nú í sumar.
Auk sr. Þorsteins áttu þau hjón
annan son á lífi, Ara, sem bú-
settur er á Þórshöfn.
Halldóra Sumarliðason Lewis,
dóttir þjóðhagans Sumarliða gull-
smiðs i Æðey, kom hingað með
Dettifossi til þess að heimsækja
ættstöðvar og venzl.afólk föður
sins.
Halldóra hefir undanfarið gengt
ábyrgðarmikilli stöðu í mentamál-
um Washington-ríkis og getið sér
mikið lof fyrir.
Línuveiðarinn Geysir
frá Bfldudal strandaði nýlega ná-
lægt Ásmundarstöðum á Melrakka-
sléttu. Náði varðskipið Óðinn skip-
inu út aftur og fór með það til
Raufarhafnar. Reyndist skipið lltið
skemt við bráðabirgðarskoðun, er
þar fór fram.
Messað
verður hér í kirkjunni kl. 2 á
morgun.
Knattspyrnumót 2. og 3. flokks
fer fram hér á íþróttavellinum á
morgun. Mótin hefjast: 3. fl. kl. 2
og 2. fl. kl. 5 e. h.
Niðnrsnðudósir.
Ingvar Vigfússon selur heima-
unnar dósir. Einnig dósir með
þéttu loki.
Innlend vinna. Lágt verð.
Skemtileg stofa, fyrir
einhleypa, til leigu.
Guðm. Pétursson.