Vesturland - 21.09.1933, Blaðsíða 3
VESTURLAND
63
Vesturland.
Útgef.: Sjálfstæðisfél. Vesturlands. j
Ritstjóri: Arngr. Fr. Bjarnason. 1
Útkomud.: miðvikud. og laugard. =
Verð til árainóta 4 kr. ;|
Gjaldd, 15. sept. í lausas. 15 aura. g
Augl.verð 1.50 cm. eind.
Stærri áugl. eftir samkomulagi. g
Sjávarútvegsnefndin.
Samkv. ályktun sfðasta Alþingis
hefir ríkisstjómin skipað 3ja manna
milliþinganefnd til þess að rann-
saka fjárhagsástand ög aflfomu-
horfur sjávarútvegsins.
Nefndina skipa þessir:
Jóh. Þ. Jósefsson alþm.,
Jón A. Jónsson fyrv. alþm.
Kr. Jónsson erindieki.
Formaður nefndarinnar er Jóh.
Þ. Jósefsson, en hann er nú í
Þýzkalandi að semja f. h. rikis-
stjórnarinnar um afurðasölu okkar
til Þýzkalands og gegnir Ólafur
Thors alþm. nefndarstörfum i tjar-
veru hans.
Mikilvægt verkefni liggur fyrir
nefnd þessari og væri óskandi að
hún bæri gæfu til þess að vinna
sjávarútvegnum sem mest gagn.
Skaðar og vatnsflóð.
Skaðarnir sunnanlands í rign-
ingunum um daginn urðu miklu
meiri og viðtækari, en komnar
voru fréttir af, er frá því var sagt
hér í blaðinu.
í Suðurdölum urðu miklir hey-
skaðar á mörgu'm bæjum.
Andakílsá gerði mikinn skaða
á þjóðveginum um Andakil og
heyskaðar urðu þar nokkrir.
í Hvitá í Árnessýslu kom flóð
svo mikið, að hún flæddi yfir
nokkurn hluta af Skeiðurr; varð
fólk að flýja bæina á nokkrum
stöðtun. Ölfusá óx svo, að samfelt
flóð mátti heita utn mest af Fló-
anum og nokkuð af Ölfusi. Varð
að fara á bátum milli sumra bæj-
anna, mcöan flóðið var mest. Urðu
miklir hcyskaöar víða á þessum
slóöum.
í Skaftafellssýslum urðu miklar
))BtomM"&ÖLSEINlC
Fyrirliggjandi:
H e s s i a n ,
Bindigarn og
Saumgarn.
skemdir á vegum og brúm vegna
vatnságangs; m. a. skemdist hin
mikla bríi á Jökulsá á Sðlheima-
sandi allmikið. Skriðuhlaup varð
úr brekku ofanvert við Víkurkaup-
tún, sem fór yfir peningshús og
hlöður, er stóðu á jaðri i kaup-
túninu. Eyðilagðist mikið af heyi,
er í hlöðunum var, og húsin
skemdust mikið.
Erling Ólafsson
songvari
kom hingað til ísafjarðar' s. 1.
sunnudag, og syngur í G. T.-
hiisinu hér í kvöld kl. 9. Erling
hefir -mikla Baryton-rödd og er ís-
firðingum að góðu kuunur, þar
sem hann hefir oft sungið hér
áður. í kvöld verða á söngskránni
mörg kunn íslenzk lög. Síðastliðið
vor söng Erling á grammafón-
plötur fyrir Columbtafélagið og
munu þær koma bráðlega á tnark-
aðinn. Bæjarbúar ættu að fjöl-
menna á söngskemtun hans f
kvöld.
Ungfrú Anná Ólafsdóttir aðstoð-
ar. Aðgöngumiðar fást hjá Jónasi
Tómassyni og við innganginn.
Til sSlu
eru neðantaldar eignir í Hnifsdal:
2 hndr. í jörðinni Heimabær
(sbr. f asteignamat Neðri-Hnffsdalur
IV), hálft íbúðarhús, hálft fjós,
hlaða og áburðarhús, hálf verbúð,
ehnfremur fiskhús, skíir og timbur-
hús, hálft fiskplan.
Nánari upplýsingar gefa
Valdemar Þorvarðsson
kaupmaður í Hnífsdal og
Páll Halldórsson,
Grettisgötu 81, Reykjavík.
Beztar líftryggingar
í Svea.
Umboðsmaður
Harald Aspelund.
Húsnæði óskast.
1. stórt herbergi, eða 2 litil,
með eldhúsi eða eldunarplássi
óskast strax eða 1. okt. — Upp-
lýsingar í Sundstræti 41, uppi.
Hálft húsið
Fjarðarstræti 38
er til sölu.
Upplýsingar gefur
Salómon Sumarliðason.
Tvenn ny aktygi til sölu.
Ritstjóri, vísar á.
Ágætur dúnn til sölu. R. v. á.