Vesturland - 04.10.1933, Blaðsíða 1
\
ESTURLAND
X. árgangur.
ísafjörður, 4. okt. 1933.
25. tölublað.
Rauðn frændnrnir.
)) BtoHÉNI IÖLSEINI
Spyrjið kaupmann yðar ef'ir
BensdorpÉs kakó.
í raun og veru er engan mun
hægt að gera þeirra stallbræðr-
anna, kratanna og kommúnistanna.
Stundum skamma kratarnir komm
únistana hástöfum og kalia þá
féndur allrar mannúðar, samherja
íhalds og þá skaðlegustu úlfa, setn
gangi i hinni blessuðu hjörðverka-
lýðsins, að ógleymdri allri stór-
yrðarununni og uppnefnunum, sem
kratar krydda ritsmíðar sínar með,
öðrum fremur.
En alt eru þetta eintóm látalæti
og loddaraleikur, til þess að leiða
athygli almennings frá því nána
samstarfi, sem þessir báðir flokkar
hafa til þess að ná tökum á al-
þýðu og geta svo á eftir lyft gæð-
ingum sfnum í einhverjar vegtyllur
og háttlaunaðar stöður eða feita
bitlinga, þótt enga verðleika hafi
til aðra en þá, aö hafa verið nógu
auðsveipir flokksþjónar og frakkir
i fagurgalanum við alþýðuna.
Hvergi hér á landi mun sam-
starf rauðu frændanna jafn áber-
andi og hér á ísafirði, enda eru
mannaskifti tíð á tnilli þeirra, svo
að sá sem áður var „yfirlýstur“
„kommi“ er orðinn „krati“ eftir
nokkurn tíma og þá venjulegast
tekinn strax í eitthvert „hreiðrið“
til umönnunar og nærður vel, á
kostnað alþýðu. Eru hér í bæ sv.o
mörg dæmi þessa, að óþarft er að
nefna nokkur sérstök. Hinsvegar
eru hér færri dæmin um að Jkrat-
arnir gangi y.fir til kommúnista,
því hér eru engin æti hjá . „I^omm-
unum“, sem enn e,ru hér mjög fá-
liðaðir, en þar sem „kqmmarnir“
hafa völdin hér á landi' er slikt
altítt.
Báðír þessir flokkar hafa það
sameiginlegt, að alt starf þeirra
er niðurrifsstarfsemi, án þess að
byggjá neitt nýtílegt upp i staðinn.
héif ve'kja törtrygni, úlfúð og stétta-
hátúr og eru spillendur alls frjáls
framtaks. Alla starfsemi á, eftir
þeirra kokkabók, að hneppa í ein-
okun ríkis og bæja
Stundum þegar frændurnir hafa
sezt í valdadýrðina með vilja al-
þýðu setja þeir á fót einhver fyrir-
tæki. Og eru nöfnin ávalt nógu
alþýðleg, t. d. kaupfélag alþýðu,
brauðgerð alþýðu o. s. frv. Og
ef sú forsjá hefir ekki fylgt I fyrstu,
að skíra króann nóg utan í al-
þýðudekrið er hann skírður upp
og gefið eitthvert gælunafn, svo
sem bjargráðafyrirtæki alþýðu eða
verkalýðsins. En reynslan er ávalt
sú, að allur þessi félagsskapur
er gerður fyrir fáa útvalda gæð-
inga, venjulegast mestu valda-
menn flokkanna, en alþýða hefir
þeirra engin not, nerna að geta
hampað tómum nöfnunum. Er
raunverulega myndin af slíkutn
fyrirtækjum venjulegast sú, að
inni situr feitur og háttlaunaður
forstjóri, en úti stendur atéinnu-
í laus og hungraður verkaníaður
eða veikakóna, sem þá fær fyrst
að skilja, að þaðan er engrar
líknar að vænta. Og að það var
að eins nafnið á leiknum, sem
var tiógu alþýðlegt. Hitt var ekki
tilgangurinn, að hann væri gerður
fyrír smælingjana.
Þessi starfsemi rauðu frændanna
hér á landi er ekki einstæð. Hún
hefir verið rekih með líkum svip
viðsvegar um lönd. Er nú viðast
svo kómið, að augu alþýðu hafa
opnast fyrir því, hvernig rauðu
frændttrnir hafa leikið á hana.
Lýsir það sér tneðal annars í
sífeldri fækkuh jnnan verkalýðsfé-
lagarina. T. d. hefir félögum í
verkalýðsfélögum1 á Englahdi
fækkað um 3 • iriiljónir manna á
s. 1. 10 árutn og heldur sú fækk-
un stöðugt áfram. Sama hefir og
reyndin orðið víóa annarstaðar.
Þrátt íyrir það, þótt rauðu
frændurnir berjist hér hraustlega,
styrktir af útlendu fjármagni, og
meðal annars reyni að ná tökum
á æskulýðnum með öllu hugsan-
legu móti, getur ekki hjá því farið,
að íslenzk alþýða láti þá ekki til
lengdar leika á vitstnuni sina
heldur láti þá fá maklegan dóm
fyrir alt smjaðrið og hræsnina,
sem þeir nota eingöngu sér til
upphefðar.
Það verður heldur ekki séð, að
hér á landi sé neinn réttlætanleg-
ur jarðvegur fyrir starfsemi rauðu
frændanna. Vélamenning stóriðn-
aðarlandanna er hér engin og þá
er ekki þéttbýlið þrándur í götu.
Alnbogarúm er hér ærið til orku
og athafna, hvort heldur er við
ræktun landsins eða veiða á hin-
um ólgandi sæ. En það munu
Iengst af verða aðalatvinnúvegir
okkar íslendinga.
Stéttahatur það, sem rauðu
frændurnir kynda svo dyggilega
undir, á sér og engan jarðveg
hér á landi, en leiðir af sér mikla
og margvíslega bölvun í sambúð
og störfum manna. í jafn fámennu
landi og okkar land er er það stór-
skaðlegt, að alt stjórnist af pólir
tískri flokkastarfsemi eða tilliti til
stétta. Með því vex klíkuskapur og
hræsni og hið rétta og sanna
frelsi fær ekki að njóta sín.
Sjálfstæðismaður.
Gagnfræðaskólinn var settur,2.
þ. m. Nemendatala ókunnug,