Vesturland

Árgangur

Vesturland - 07.10.1933, Blaðsíða 1

Vesturland - 07.10.1933, Blaðsíða 1
VESTURLAND X. árgangur. ísafjörður, 7. okt. 1933. 26. tölublað. Lítið svar til samfylkingarinnar. Þeir mega eiga það kratabrodd- arnir hérna, að þeir halda vel hópinn utan að sinni eigin veg- semd. Sé stuggað við einuui er heil samfylkingarruna þegar mynd- uð honum tii varnar. Þetta sannast á veslings Hanni- bal. Nú er sjálfur skátaforinginn, uppsólaður alla Ieið frá Qödöllö, leiddur fram á vigvöliinn starfs- bróður sínutn til aðstoðar. Eru þeir báðir gustmiklir að vanda, en lítt kennir þar röksemda. Er helzt svo að sjá, semþæreigi lítt heima f umræðum um skóla- mál, að áliti þessara heiðursbolsa. Minna aðfarir þeirra starfsbræöra mig helzt á hjáleigubónda sein Finnur hét og átti seppa tvo, er hann kallaði Kark og Kjamma. Voru þeir félagar fljótir til hlaupa kringum hjörð karlsins. VarFinn- ur drjúgur yfir seppaeigninni og hafði að viðkvæði: Þeir klára sig, hann Karkur og Kjammi. En eitt sinn tvístruðu þeir Karkur og Kjamnii allri hjörðinni fyrirFinni. Reiddist hann þá -og lét lóga báðum. Andinn I skrifum þeirra starfs- bræðra er sá, að hér sé ekkert að I skólamálunum. Alt sem futidið sé að sé bara fjandskapur ihalds- ins við alla mentun og menningu. íhaldsmennirnir leggi alla skóla í einelti með rógi og ofsóknum. Það séu þeirra ær og kýr eins og við megi búast af hreinræktuðum íhaldssálum o. s. frv. Það eru heldur röksemdir þetta frá hendi lærðra kcnnara og það I umræðum um skólainál, sem þeir ættu þó helzt að vera heima I. Og á sama tíma og þeir starfs- bræður eru að skrifa þetta gerast þau eins dæmi i skólamálum ísa- fjarðar, að margir foreldrar bind- ast samtökum um að fá bætur á kenslu og rekstri skólans. Og skólanefnd, þar sem ábyrgðar- maður blaðs þess, er flytur skrif þessi, er aðalhöfuðið, játar að óá- nægjan sé á rökum bygð. Aðrir aðstandendur skólans og barnanna játa þetta sama. Og þeir sem hlut eiga að máli lofa allir bótogbetrun. Eg veit ekki til, að litil blaða- grein hafi fyr haft hér svipuðáhrif. Þvi auðvitað var sá aðaltilgangur þessara umræða frá upphafi, að vekja fólk til athugunar á ástandi skólamálanna alment, þó byrjað væri á kenslu H. V., sem dæmi um hve þessi pólitiski kensluósómi er kominn langt og að beinlinis gefnu tilefni frá H. V. sjálfum. Þeir starfsbræður hrópa nú upp og segja: Skólamálin eiga að vera ópólitísk. En það ér bölvað fhald- ið sem nú er að gera þau póii- tisk, m. a. með þvf að stugga við keunurutn með svæsuum stjórnmálaskoðunum. Til þess að benda á hin hrein- ræktuðu óheilindi fóstbræðranna i fullyrðingum þessum skal hér rifj- að upp það, sem alkunnugt er um þessi skólamál, ekki eingöngu hér á ísafirði, heldur svo að segja í hverri skólasmugu á landinu. Það er kappið, brögðin og jafnvel fjár- austur sem ekkert hefir verið spar- að af hálfu Hrifiunga og Krata til þess að koma sinum gæðingum að skólunum, bæði sem kennur- um og i stjórn þeirra. Og svo undarlega hefir brugð- ið við um þessi mál, að venjulegir Framsóknarmenn hafa lftið dugað til þessa, að áliti samherjanna. Til þess að vera reglulega vel valdir þurftu þeir, sem eitthvað reyndi á, t. d. skólastjórar ogkenn- arar við æðrieða fjölmennari skóla, að vera kommúnistar eða kratar. Framsóknarmenn máttu vera far- kennarar eða f hinum afskektari skólum, ef þeir vorudálítið rauðir. Og hvernig hefir staðið og stend- ur á öllu þessu bramli og brauki Hriflunga ogkrata f skólamálunutn? Er það til þess, að ná meiri og betri mentun? Nei. Þartala verkin. Er það til þess, að ná i há laun og góðar stöður? Já, auðvitað meðfram, þvi þeir sem rauðastir eru hafa eftir plagsið Fróðárhirð- arinnar drjúga bitlinga utan um aðallaunin. En aðalrótin að öllu braukinu og bramlinu er sú, að geta á þennan hátt náð tökum á uppvax- andi æsku þjóðarinnar á hverjum tima og sveigt hana til fylgis við sfnar stjórnmálaskoðanir. Þetta er margoft játað f viðræð- um, af hlutaðeigendum sjálfum. svo þar þýðir ekki að þræta. Hitt er annað mál, að þetta vopn mun snúast i höndum þessara póli- tisku Jesúfta, þvi æskan heimtar ávalt sanna og hreina baráttu, en fær andstygð á yfirdrepsskapnum. Borgari. (Framh.) Pétur Þorvarðsson Iézt hér f sjúkrahúsinu 2. þ. m. Pétur var gamall isfirðingur, fædd- ur að Fossum hér f firðinum, son- ur Þorvarðar Sigurðssonar bónda þar og Sigriðar Pálsdóttur, en ólst að miklu leyti upp hér i bæ og var um tíma við verzlunarstörf hjá Ásgeirsverzlun. Sfðustu árin var P. Þ. við verzl. P. Oddssonar i Bolungavlk, en rak sfðan smá- verzlun sjálfur, þar til heilsan þraut á s. I. ári. Hjálpræðisherinn byrjar vetrarstarfsemi sina 10. þ. m. Kærleiksbandið veitir unglingum til 12 ára ókeypis handavinnu- kenslu og hefst hún kl. 6l/2 slðd. hvern þriðjudag. Æskulýðsstarf- semin kennir unglingum frá 12—18 ára ókeypis handavinnu og hefst hún kl. 8'/a síðd. hvern þriðjudag. Er það ekki pólitík? „VI.“ sendi miða til skólastj. Gagn- fr.skólans og barnaskólans, eftir að þeir voru settir, til þess að fá tölu nemenda til birtingar, en hefir ekk- ert svar fengið.

x

Vesturland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.