Vesturland

Årgang

Vesturland - 21.10.1933, Side 1

Vesturland - 21.10.1933, Side 1
VESTURLAND X. árgangur. ísafjörður, 21. okt. 1933. 30. tölublað. Breiðu spjótin. Allir þeir, sem eitthvað þekkja til um sögu islands, vita með hverjum hætti þjóðin glataði hinu torna frelsi. l>að voru einstakir ættarhöfðingjar, sem freistuðu að koma málum sínum betur til veg- ar með því að leggja þau til úr- skurðar á vald erlendra konunga, er iögðu grundvöllinn að gæfu- ráni þjóðarinnar. Á þann hátt fengu erlendir höfðingjar, einkum Nor- egskonungar, stöðugt meiri átyllu til afskifta af islenzkum málum og heimildir á íslenzkum eignum, sem lauk tneð því, að Noregskonungar fengu æðsta vald í Islenzkum mál- um; þó með nokkrum takmörk- unum af hálfu íslendinga, sem lltt stoðuðu i framkvæmd gegn liinu sterka konungsvaldi, sem magn- aðist æ því meir, er fram liðu stundir. Þjóðin ætti jafnan að vera þess minnug, að það voru einmitt ein- stakir islenzkir menn, sem voru þess valdandi, að þjóðin varðofur- seld úílendu valdi og öllum þeim j raunum sem af því leiddu. Hætt- an við íhlutun erlends valds er ávalt rnest fóigin í athöfnum þjóð- anna sjálfra, einkutn hjá smáþjóð- unum, sem jafnan þurfa ineira tii hinna stærri að sækja. Sagan endurtekur sig, segir Tr. Þórhailsson. Á siðustu tímum er farið að brydda á því aftur, að ísl. stjórn- málamenn og stjórnmálaflokkar leiti liösinnis erlendis sínum mál- stað til framdráttar. Það er kunnugt og játað af hlut- aðeigenduin, að um allmörg und- anfarin ár hafa jafnaðarmennirnir íslenzku háð sína baráttu að all- miklu leyti með erlendu fé. Um kommúnistana er sömu sögu að segja og því bætt við, af þeim, sem kunnugastir þykja, að margir af leiðandi mönnutn þess flokks séu á erlendum mála. Það er og kunnugt um Fram- sóknarflokkinn, að hann notaði mjög aðstöðu sfna við konungs- valdið í h:nu fræga þingrofi Tr. Þórhalissonar. Mætti og nefna fleiri dæmi, er hnigið hafa til líkr- ar áttar. Síðustu vikurnar hefir verið að gerast eitt dæmið sötnu tegundar, sem talar Ijóst um það, hve rikt það er orðið hjá sunrum islenzkum stjórnmálamönnum, að leita er- lendra áhrifa til þess að geta ef til vill borið hærri hlut með þeirra tilstyrk. íslenzkur stjórnmálamaður fer til stærstu viðskiftaþjóðarokkar og er þar með rr.álaleitanir og umtal um íslenzk utanríkismál, að því er fullyrt er af kunnugunr i þeim til- gangi, að geta því betur beygt andstæðinga sína hér heima. Með slíku háttalagi er rnesta voða stefnt að þjóðinni og frelsi hennar. Hepnist leikur þessi nú tnun þess varla langt að bíða, að hann verði endurtekinn af sama manni eða einhverjum öðrum. — Myndi þá og eigi líða á löngu, þar til erlend áhrifyrðu hér drotn- andi, fyrst i atvinnumálum og siðar í lagasetningu, þangað til þeir út- lendingar, sem hér þættust hafa mestra hagsmutra að gæta, yrðu öllu ráðandi. Beri þjóðin ekki gæfu til þess að stöðva slíka harmleiki þegar í byrjun, er litil eða engin von til þess að hann hætti fyr en sagan hefir endurtekið sig og þjóðin glat- að frelsi sínu, að öllu eða nokkru leyti. Það þurfa þvf sterk samtök allra þeirra manna, setn sjá hættuna og vilja bægja henni frá þjóðinni, til þess að taka fyrir kverkar slíkutn ósóma og láta engum haidast slíkt atferli uppi, hvaða flokkur eða tnaður sem í hlut á. n Jafnaðarblaðið hérna var fyrir skömmu, að flónska sig með for- ystugrein um einræðisvonir ihalds- ins. Var þar haldið fram, með venjulegri greind og velvilja i garð andstæðinganna, að Sjálfstæðis- flokkurinn vildi afnám þingræðis og lýðræðis hér á lanrii. „Og fái „ihaldið“ (o: Sjálfstæðisflokkurinn) stjórnartaumana muni það ekki sleppa þeim tneð góðu, hvað sem öllu þingræði liður." Og blaðið heldur enn áfram og farast svo orð: „Kaupfélög og annar félags- skapur bænda verður seldur í hendur kauptnönnum, — verklýðs- félögin verða uppleyst eða lögð undir ihaldið og rfkislögreglan aukin til þess að halda hinum óánægðu í skefjum”. Þetta er hér tilfært vegna þess, að einn af fulltrúum þjóðarinnar ber ábyrgð á þessu hjali, sem er líkast óráðshjali taugasjúklinga. Enginn fslenzkur stjórnmála- flokkur hefir gengið lengra í lýð- ræðisáttina en Sjálfstæðisflokkur- inn. Og sá flokkur, sem blaðið telst til, hefir verið samherji Sjálf- stæðisflokksins um þessi mál síð- ustu árin, liklega fremur tilknúður af vilja kjósendanna en foringjanna. Því slikar getsakir, að ástæðu- lausu, i annara garð vekja grun um það, að ekki sé alt hreint hjá þeim, sem þær gera. Og þaö því fretnur sem kunnugt er, að þessi fulltrúi og sá stjórnmálamaður, sem nú flýr á náðir erlendsvalds málum sínum til framdráitar, hafa staðið i náinni samvinnu. Tilraunirnar með að fá erlend áhrif á Islenzk mál sér hliðholl eru og vitanlega bundnar við það, af hálfu einstakra manna og flokka, að geta á þann hátt náð fremur einræði hér á landi. En þótt stjórnmálastriðið sé hart og óvægið hér innanlands, mega hvorki flokkahagsmunir eða bar- dagahiti villa neinum sýn eða trufla svo dómgreind hans og drengskap, að hann ekki heyri er ættjörðin kallar og varist að aðhafast neitt, sern henni getur orðið til tjóns.

x

Vesturland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.