Vesturland

Árgangur

Vesturland - 21.10.1933, Síða 2

Vesturland - 21.10.1933, Síða 2
118 VESTURLAND íslenzka þjóðin verður að vera rninnug endurtekinna dæma mann- kynssögunnar um það, að frelsi smáþjóða er í stöðugri hættu, ef þess er ekki vandiega gætt. Nú er hið unga fullveldi vort veikara en nokkru sinni fyr vegna sívaxandi útlendra ríkisskulda. — Hinsvegar eru atvinnuhættir allir enn fábreyttir og vér eigum það að mestu undir viðskiftaaðstöðu vorri hjá örfáum þjóðum hver af- koma atvinnuveganna erá hverjum tíma. Fáar smáþjóðir hafa því ríkari hvöt en vér til þess að varast alt það, er veikt geti afstöðu vora. En það er ofseint að byrgja brunninn, þegar barnið er dottið í hann. Varist þess vegna hin breiðu spjót þeirra manna eða flokka, sem setja sina hagsmuni ofar hags- tnunum þjóðarinnar. Sumar kveður. Vetur heilsar. Árstíðaskifti eru jafnan mikii- vægur viðburður hjá okkur ís- lendingum, sem eigum svo mikið undir mislyndri og misskiftri veðr- áttu um afkomu atvinnuvega okk- ar á sjó og landi. / Blessaö sumarið kvaddi í gær með hiýrri suðvestanátt og nokkru þvassviðri. Mun það einmælt, að það hafi verið mesta árgæsku- sumar hér um sióðir, er elztu menn muna. Hefir svo og verið víðast um land, einkum austanlands og norðan. Á Suður og suðvestur- landi hafa úrkomur verið svo miklar, að bjargræði bænda hefir illa nýzt, en uppskera hvervetna mikil. Til sjávarins hefir verið óvenju- leg fiskitregða umhverfis alt land, mestalt sumarið. Og kvarta veiði- skip enn undan lítilli fiskmergð, hvar sem reynt er. Síldaraflinn var þó meiri en nokkru sinni áður. Er það ekki litil auðlegð sem hann færir þjóðinni siðustu árin, ein- mitt á þeim tlma, sem oft er minna en ella utn annan afla. Veturinn heilsar í dag, með blíðum svip og björtu veðri, hvernig sem hann reynist. Óskum öll og vonum, að hann færi okk- ur björg og blessun úr auðlind- um hafsins og verði öllum far- sæll og hamingjusamur vetur. En búum okkur undir að mæta erfið- leikum hans, eftir því sem hver og einn bezt getur. Þökk fyrir sumarið! Gleöilegan vetur! Fréttip. Frá ísl. blaðaheiminum. Framsóknarmenn efna nú til nýs dagsblaðs í Reykjavik og safna fé til þess af miklum móði. Hafa þegar safnast um 100 þús. kr., að sögn. Er blaðinu ætlað að hefja göngu sina um mánaðamótin. „Framsókn" og „Tíminn“ eiga að koma út óbreytt til nýárs, en renna þá inn í þetta nýja blaðafyrirtæki. Alþýðublaðið á að stækka um næstk. mánaðamót, í líka stærð og Mbl. er nú og öðlast þá nýja ritstjóra. Er sagt að Rútur Valde- marsson verði aðalritstiórinn. Nýr læknisbústaður hefir verið reistur í Ögri í sumar og er nú fullgerður. Kreppulánasjóðsnefnd N.-lsafjarðarsýslu byrjar störf sín í byrjun næsta mánaðar hér á ísa- firði. Jörundur Brynjólfsson alþm. hefir verið hér i bænum nokkurn tíma við endurskoðun á útibúi Landsbaukans. Eggert Stefánsson söngvari, söng i G. T.-húsinu I gærkveldi. Aðra söngskemtun hélt Eggert i kirkjunni á sunnudags- kvöldið. Vélfræðinámsskeið á Flateyri. Að tilhlutun fiskid. Hvöt heldur Fiskifélag íslands nú vélfræði- námsskeið á Flateyri. Nemendur eru 24. Kennari Guðm. Jónsson frá Stokkseyri. Kvöldskóli iðnaðarmanna var settur 16. þ. m. í skólanum eru um 60 nemendur. Aðalsafnaðarfundur ísafjarðarsóknar var haldinn hér í kirkjunni s. 1. sunnudag. Voru þar gerðar þessar samþyktir: Að sóknargjöld yrðu óbreytt. Að taka upp legkaup, samkv. lögum frá s. 1. ári. Samþ. voru reikningar kirkj- unnar, kirkjubyggingarsjóðs og orgelsjóðs fyrir árið 1932. — Til aðgerða á kirkjunni hafði verið varið rúmum 8 þús. kr. Fjársöfnunarnefnd kirkjunnar var endurkosin. Ýms fleiri mál voru tll umræðu á fundinum. Ritstj, „Vesturlands“ brá sér til Rvikur umsíðustu helgi og sá því ekki um útgáfu síðasta tbl. „Vl.“ Ókeypis tilsögn I lampaskermasaum veitir frk. Guð- björg Guðjó.nsdóttir. Hlutaveltu heldur kvenfélagið Hlíf í G. T. húsinu kl. 2 á morgun. Ágóðan- um verður varið til líknarstarfsemi félagsins. Höfuðið við steininn. „Skuiull“ er enn að berja höfð- inu við steininn og þræta fyrir rit- fölsun sína úr „Vesturl.“ Á víst enginn annars von úr þeirri átt. Engin framför. Finnur Jónsson, áður póstafgr. maður hér, ritar nú „Skutul“ í fjar- veru Hannibals, en hvergi sést þar vottur vaxandi skilnings. Sömu máttlausu sneiðyrðin til andstæð- inganna, en ekki snert við því að ræða um deiluatriðin. Er líkast þvf, sem Skytlingar finni á hve hálum is þeir standa, og sleppi þvi alveg að ræða um málefnin. Finnur Jónsson forstjóri er i Skutli að fræða um það, að ritstj. „Vesturl.“ noti ýms gerfinöfn undir greinar í blaðið. Er hérmeð skorað á F. J., að sanna þessar staðhæfingar sínar. Vonandi fer F. J. ekki huldu höfði með sann- anirnar og birtir þær bráðlega.

x

Vesturland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.