Vesturland - 18.11.1933, Blaðsíða 3
VESTURLAND
U43
Vesturland
1 Útgef. Sjálfstæðisfél. Vesturlands.
§§ Ritstjóri: Arngr. Fr. Bjarnason
M Útkomud.: miðvikud. og laugard.
Verð þessa árgangs 4 kr.
= Gjaldd. 15. sept. í lausas. 15 aura.
Augl.verð 1.50 cm. eind.
H Stærri augl. eftir samkomulagi.
kvæmt „Sunnmörposten", nr. 249,
25. okt. þ. á.)
Kunnugir segja að gangur þessa
fræga tólgarbita sé þessi: Pinnur
hafi komið með söguna að norð-
an og látið hana í Hannibal;
Hannibal lekið henni í Skutul og
Gunnar og þaðan hafi hún runnið
I útvarpið.
Ekki hefðu þeir félagar þurft
að ganga svona i vatnið, þvi
stærsta ambrastykki, sem fundist
hefir áður, vóg 15 kgr., en venjul.
töluvert minna.
Fréttir.
Messað
verður hér í kirkjunni kl. 2 á morg.
Nýir prestabústaðir á Vestfj.
Á Bíldudal við Arnarfjörð hefir
i sumar veriðreistnýttprestssetur
úr steinsteypu.
Ríkissjóður hefir keypt gömlu
landssímastöðina hér í bænum og
gert að prestssetri.
Krónuvelta
er hafin hér í bænum, til ágúða
fyrir dvalarheimili barna.
Bannið í Bandaríkjunum.
Samkv. ákvæðum í stjórnarskrá
Bandarikjanna, þurfa 36 ríki að
samþ. afnám áfengisbannsins. Hefir
atkv.gr. staðið yfir í hinum ýmsu
ríkjum frá því í sumar, én í síð-
ustu rikjunum nú nýlega. Hafa
úrslitin orðið þau, að afnám banns-
ins hefir verið samþ. með miklum
meirihl. í flestum rikjunum. Og
37 riki hafa samþykt afnám banns-
ins, sem falla mun úr gildi i Banda-
rikjunum 5. des. n. k.
Fiskútfíutningur }il Grikklauds
fyrir smærri fisk hefir verið góður
mestan hluta þessa árs, hvað verð
og eftirspurn snertir. En nýlega
Umbúðapappír, Bréfpokar
fást hjá
Helga Guðbjartssyni.
kom þar bobbi i bátinn og varð
eitt af fiutningaskipum Samlagsins
er komið var til Grikklands og
átti að afferma þar fisk, stöðvað
sökum þess, að yfirfærzla á gjald-
eyri^fæst nú ekki frá Grikklandi.
Hafa Grikkir samþykt, að kaupa
ekki af öðrum nema til jafns við
það, er þeir kaupa af þeim.
Umræddan farm varð því að
senda til ítaliu til söiu þar. Vegna
þessarar tafar skipins seinkar út-
flutningi fisks héða'n á markaðinn.
Er þess að vænta, að ríkis-
stjórnin bregði við og freisti þess,
að við getum haft óhindraðan
fiskmarkað i Grikklandi. Sá stuðn-
ingur ætti að vera sjálfsagður við
útveginn, að greitt væri fyrir sölu
fiskjarins, sem frekast er unt.
Fiskveiðar Færeyinga við Austur-
Grænland.
Færeyingar hafa til þessa ein-
ungis stundað fiskiveiðar við Vest-
ur-Grænland með mjög góðum
árangri undanfarin ár. Nú hafa
Færeyingar gert ráðstöfun til þess,
að gera út leiðangur til að stunda
veiðar .við Austur-Grænland. Er
leiðangur þessi gerður út með
samstarfi Fiskifél. Færeyinga og
iögþingsins og hefir lögþingið lof-
að að hlaupa undir bagga, ef tap
verður á útgerðinni.
Þjóðaratkv.greiðslan
um bannlögin.
Strandasýsla:
Já 177 231 Nei
Já hafa alls orðið 15784 eða
57,74%, en Nei 11624 eða 42,26%.
Samkv. fréttum úr Reykjavíker
talið liklegt, að frv. komi fram
nú á aukaþinginu um afnám banns-
ins. Er sjálfsagt að samhliða sé
gerður uridirbúningur til nýrrar
löggjafar um takmörkun áfengis-
sölu og áfengisvarnir.
Frá aukaþíngina,
Störf þingsins synda áfram í
mestu makindum, önnur en stjórn-
arbröltið. Til þess er hvprki spar-
aður timi né fyrirhðfn.
Þessi ný þingm. frumv. hafa
komið fram síðustu dagana:
Um ríkisábyrgð á 60 þús. kr.
láni til Austur-Húnavatnssýslu v/
rafvirkjunar Blönduóshrepps (flm.
Jón Pálmason).
Um að sðfnunarsj. íslands sé
óheimilt aðtaka hærri dráttarvexti
en s/4% f. hv. mánuð (flm. Bj.
Kr., I. P. og P. H.)
Um ríkisábyrgð á 70 þús. kr.
rekstrarláni fyrir tunnugerð Akur-
eyrar (flm. Guðbr. ísberg).
Um rikisábyrgð vegna bæjarútg.
f Reykjavík, ef til framkv. kæmi
(flm. Héðinn Valdemarsson).
Um sérstakan iögreghtstjóra i
Bolungavík (flm. Vilm. Jónsson).
er þetta sama frv. og Jón Auð-
unn flutti á síðasta Alþ.
Þingsál. till. flytja P. Halldós-
son o. fl. um að ríkisstj. sé heim-
ilað að kaupa lóð og hús Templ-
ara oið Vonarstr. fyrir 200 þús. kr.
„Hávarður ísfirðingur"
lagði af stað áleiðis til Engiands
i gærmorgun með 87 stnái. af
nýveiddum bátafiski.
„Karlsefni"
fór og áleiðis til Englandsí gær-
morgun með 98 smál. af nýv,
bátafiski.
Afli
hefir undanfarið verið sæmilegur
hjá þeim bátum, sem hafa getað
s'ótt nógu langt.
Á bæjarstj. fundi
Reykjavíkur í fyrrakvöld var ,sam-
þykt að stofna 100 mánna vara-^
lögreglu.
í verzlunarskólanum
eru nú 170 nemendur og 40 nem.
í kvöldskólad. skólans. Auk þess
stunda 25 nemendur ýmisl. tungu-
málanám við skólann.
Matgjafir
er ákveðið að hefja í barnaskól-
unum I Reykjavík nú á næstunni.