Vesturland - 25.11.1933, Blaðsíða 1
VESTURUND
(Niðurl.)
Ekki er hægt að skiljast svo
við^ umræður um fjárhagsáætlun-
ina, að ekki sé nefnd meðferð
meirihl. bæjarstjórnar á hafnar-
sjóði.
Hafnarsjóður er hin sístreym-
andi auðnulind ísafjarðar, meðan
verzlun og viðskifti eru ekki lögð
1 kaldakol hér vegna kúgunar og
óstjórnar.
En þessi auðnulind er fólgin i
freklegri aukaskattlagningu á alla
verzlun og viðskifti hér, sem al-
menningur verður að borga og
kemur það skýrt fram í þessari
áætlun, sem er að mestu sam-
hljóða áætlunum undanfarinna ára.
Alls eru tekjur hafnarinnar áætl-
aðar næsta ár 78 þús. og 800 kr.
og eru aðalliðir teknanna: Lesta-
gjald 19 þús. kr.; bryggjugjöld
9 þús. kr.; vörugjöld 17 þús. kr.;
af vörngeymsluhúsum og uppfyll-
ingu í Hæztakaupstað 6 þús. og
500 kr. og tekjur af Neðsta sam-
tals 24 þús. kr.; ýmsar tekjur 3
þús. og 300 kr. Gjöldin eru ails
áætluð 42 þús. og 800 kr. og sund-
urliðast þau þannig: stjórn hafn-
arinnar 10 þús. og 600 kr.; kostn.
og viðhald bæjarbryggju 2500 kr.;
vitarnir á Kirkjubólshlíð 3500 kr.;
viðhald húsa (annara en Neðsta)
2 þús. kr.; vátr., skattar, vextir o.
fl. vegna Neðsta 20 þús. og 800
kr. Tekjuafgangur 36 þús. kr. (þar
í meðt. áætl. 10 þús. kr. afb. af
Neðsta). Með þeim siglingum og
gjöldum sem höfnin hefir nú, á
því hafnarsjóður að græða um
40 þús. kr. á ári, og samkvæmt
hafnarlögum ísafj. er hann mynd-
aður til þess, að geta á hverjum
tima sem er annast nauðsynlegar
umbætur á höfninni og hafnar-
mannvirkjunum. Með þessa nauð-
syn eina fyrir augum er höfninni
leyft að taka þessi miklu gjöld;
þar sem hreinn gróði hennar er
frek 90% móts við þau miklu og
manni liggur við að segja ófor-
svaranlegu háu gjöld, sem höfnin
er látin bera af óskyldum venjul.
verkefnum hafnarsjóða.
Með þessum miklu tekjum hafn-
arsjóðs mætti gera ráð fyrir því,
að hér væri stór og öflugur hafn-
arsjóður, sem gripa mætti til, til
hafnarframkvæmda þegar atvinnu-
Utið væri eða þröngt I búi. Hagar
hér óvenju vel til um slikar fram-
kvæmdir, þar sem auðvelt er með
uppfyllingar umhverfis meginhluta
Pollsins og þær uppfyllingar sem
þegar hafa verið gerðar næst bæj-
arbryggjunni eru hafnarsj. gróða-
fyrirtæki. Hvað hefði ekki nú í
atvinnuleysinu hér mátt vinna að
slíkum uppfyllingum, ef hafnar-
sjóður hefði verið handtækur, en
i stað þess verður þvi fé af þessa
árs tekjurn, sem laust er, varið til
viðhalds og endurbóta i Neðsta.
Áður hefir verið hér í blaðinu
minst á nauðsyn bátahafnar og
eru vist flestir sammála umfram-
kvæmd hennar. En ekki verður
séð, að getu hafnarsjóðs verði
svo farið næstu árin, að hún geti
orðið framkvæmd, nema þá með
tómu lánsfé.
Eitt af allra verstu óhappaspor-
unum, sem meirihl. bæjarstjórnar
hefir stigið, er áreiöanlega það,
að festa þennan lifgjafa ísafjarðar,
sem vel mætti nefna hafnarsjóð.
Það væri alt annað ástandið en
nú er, ef þar væru fyrirl. nokkur
hundruð þús. kr., sem grípa mætti
til, til nýrra framkvæmda, þegar
annað brigðist.
En það er svo sem ekki hafnar-
sjóður einn, sem hefir farið þessa
leiðina hjá meirihl. bæjarstjórnar.
Allir sjóðir, sem bæjarstjórn
38. tölublað.
hefir umráð yfir, svo sem jarða-
kaupasjóður, lóðasjóður o. fl. eru
að sögn gersamlega eyddir.
Þaö hefir ekkert staðist ffyrir
þessum eyðslubelgjum. Þar sem
þeir hafa komið að kj.... eða
klóm fer alt í sömu hítina.
Enda þótt játað sé, að bærinn
hafi þurft að hlaupa undir bagga,
þegar mesta hrunið varð á út-
gerðinni hér og Samvinnufélagið
myndaðist, getur það ekki afsakað
ráðstöfun meirihl. á hafnarsjóði.
Hefði ábyrgð sú er bæjarfél. veitti
og stendur enn i átt að yera
nægileg stoð. Er það mjög ófbr-
sjálegt, að festa aðalsjóð sinn um
ófyrirsjáanlegan tima og jafnframt
taka á sig stórfelda ábyrgð, sem
bærinn naumast ris undir, ef illa
færi, gagnvart einu fyrirtæki.
Það er og því miður ekki sjá-
anlegt nú, að kaup þessi verði
hafnarsjóði að happi, þegar ails
er gætt, þó kaupverðið væri lágt
í fyrstu.
Sem dæmi má og neína, að
bæði á Akureyri og Siglufirði voru
stofnuð samvinnufélög til útgerðar
með líku sniði og hér,. þó datt
engum þar sú fásinna i hug, að
festa hafnarsjóð þessara staða f
fyrirtækjum vegna þessara félaga,
sem bæði hafa nú hætt störfum
með tapi fyrir hlutaðeig. bæjar-
félög vegna bakábyrgðar þeirra.
Þá er rétt að vikja nokkrum
orðum að bíórekstri bæjarsjóðs.
Þar stóð nú ekki litið til er þessi
rekstur var einokaður fyrir bæinn.
Átti það að verða stórgróði og
stofnaður sérstakur sjóður, Menn-
ingarsjóður, er gróðann átti að
hirða. Var honum m. a. ætlað að
létta á skólakostnaði bæjarins. Er
nú kominn nokkur reynd á þenn-
an rekstur, en gróðann hefir eng-
inn séð. Samkv. áætlun næsta árs
um tekjur og gjöld bíósins er
bæjarbúum ætlað að kaupa þar
aðgöngumiða fyrir 25 þús. kr.;
X. árgangur.
fsafjörður, 25. nóv. 1933.
*
Fjárhagsáætlun Isafjarðar 1934.