Vesturland

Árgangur

Vesturland - 30.12.1933, Síða 1

Vesturland - 30.12.1933, Síða 1
VESTURLAND X. árgangur. fsafjörður, 30. desember 47.-48. tölublað. Gleðilegt ár! Þökk fyrir liðna árið! I 1 9 3 3 I Hi1lllllllllllllllll!l!llillllllllllillllll!llllllllllllllllllllllllll!l£ Árið, sem er að kveðja, heflr veriö að mörgu einstakt ár fyrir íslenzku þjóðina. Veðráttufar, sem afkoma okkar aðalatvinnuvega er svo mjög byggð á, hefir verið mun hagstæðara en í meðalárum, og hvað allan jarðargróður snertir einstakt í sinni röð um mestan hluta landsins. Hér verða rifjaðir upp helztu at- burðir ársins, bæði almennir og sem sérstaklega eru bundnir við Vestfirði. Stjórnmálin. 1 stjórnmálunum má óefað telja merkaeta atburðinn hina Dýju stjórn- arskra og kosningalög þau, er henni fylgja. Festir hin nýja stjórn- arskrá lýðræðið í landinu og eykur það með kosningarrétti allra þegna 21 árs og eldri. Ber að fagna þvi, að sú réttarbót hefir loks unnist. Af öðrum lögum má telja lögin um Kreppulánasjóð. Eru þau gerð til bjargar því bágborna ástandi, sem landbúnaður okkar var kom- inn í. Hafa þegar um J/s íslenzkra bænda sótt um kreppulán. Munu mjög skiftar skoðanir um, hvort löggjöf þessi muni koma að því gagni, sem jil var ætlast. En sjálf- sagt er að vænta þess, að hún eigi sína hlutdeild í að bæta framtíðar- gengi íslenzks landbúnaðar. Mörg fleiri merk lög mætti og nefna, svo sem hin nýju ábúðarlög. Á árinu var og skipuð milli- þinganefnd til ránnsiknar á ástandi sjávarútvegsins og gera tillögur um bætur á hag hans. Er sjálfsagt að vænta góðs af tillögum hennar. Enda veitir þar sízt af, svo að* þrengdur sem sjávarútvegurinn er nú víða hér á landi, bæði smærri og stærri útvegurinn. Á árinu fóru fram Alþingiskosn- ingar vegna samþykkta stjórnar- skrárinnar á vetrarþinginu. Fóru þær, sem kunnugt er svo, að Sjálfstæð- isflokkurinn íékk 48®/0 af grniddum atkvæðum. Sýnir sú niðurstaða greinilega, að þjóðin er nú að hverfa frá bruðlunarstefnu undan- farinna ára. Er það og að vonum, þegar þjóðin verður að horfast í augu við vandræðin, sem afleið- ingar hennar hafa skapað. Af atburðum þeim, sem gerst hafa nú nýverið i stjórnmálalífi okkar, verður að telja það lang- líklegast að Sjálfstæðisflokkurinn verði öflugasti og sterkasti flokkur- inn við alþingiskosningar þær, sem fram eiga að fara á næstk. sumri. Atvinnuvegir. Þeir hafa verið i líku horfi og undanfarið. Þó er stöðugt að verða meiri og sterkari breyting í þá att að íramleiða i landinu sjálfu sem mest af þörfum þjóðarinnar. Eru það mikilvæg straumhvörf, sem eru að gerast á því sviði, sem sjálfsagt styrkjast og eflast á næstu árum. Eru það engir draumórar, þótt spáð sé, að íslendingar flytji innan skamms töluvert af iðjuvörum til annara þjóða. Með framsýni og samstarfi má á þann hátt stytta hinn langa vinDuleysistíma almenns verkalýðs, sem getur orðib ólækn- andi böl, ef ekki er gert við í tíma. Er innlendur iðnaður stöðugt að færast í aukana, og með samtök- um og vaxandi fyrirhyggju má vænta, að hann taki nýja fjörkippi. Til skilnings á þessum óleystu verkefnum Islendinga hefir ísleDzka vikan, sem haldin var a þessu ári, mikið stutt og samstarf margra áhugasamra þjóðhollra manna um að bjargast við það, sem innlent er, og veita með því íslenzkum höndum vinnu, sem annars væru iðjulausar. Landbúnaður. Landbúnaðurinn hefir yflrleitt gengið vel á árinu sem er að líða. Þó hafa hamslaus votviðri sunnan og suðvestanlands spillt svo nýt- ingu heyja og garðávaxta, að upp- skeran varð minni að notum en í meðalári, Sumstaðar eyðilagðist garðávaxtauppskera að öllu leyti og olli það miklu tjóni. Hér á Vest- fjörðum varð allur heyfengur með allra mesta móti, sem nokkuru sinni hefir verið. Skar það nú úr, að heyfengur mátti heita mestallur töðufengur og flæðiengjahey. Garðrækt heflr stórum aukist hór á Vestfjörðum síðustu ár og varð uppskera nú með allra mesta móti. Hafa nú margir bændur hér vestra góðan stuðning af garðrækt, þótt Bala garðávaxta gæti verið örari og betri með samstarfi aðila. Með aukinni ræktun hefir véla- notkun í búnaðinum farið stöðugt vaxandi undanfarin ár. í ár voru fluttar til landsins 80 sláttuvólar, 40 rakstrarvélar og 5 heysnún- ingsvólar. Verðlag á landbúnaðarvörum var mikið bærra en síðastliðið og sala þeirra örari. Má nú svo heita, að mastallar landbúnaðarafurðir séu þegar seldar. Ull seldist nú um 40°/, hærra en síðastl. ár. Gærur um 60% hærra og kjöt um 30— 40% hærra. Framhald á 5. síðu.

x

Vesturland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.