Vesturland

Volume

Vesturland - 21.06.1941, Page 2

Vesturland - 21.06.1941, Page 2
98 V ESTURLAND Sannleikurmn um byggingu sjómannaskóla. bað er kunnugt, að sjómenn cru fyrir nokkru almennt óánægð- ir með þau húsakynni sem ríkið hefir látið sér sæma að leggja til námsgreinum sjómannastétt- arinnar. Hefir þessi óánægja magnast við það, að svo að segja árlega hafa risið upp dýr- ar skólabyggitigar bæði í kaup- túnum og sveitum, en ekkert fé verið veitt til úrbóta um hús- næði til kenslu sjómanna, og aðalhúsnæðið, Sjómannaskólinn gamli, löngu orðinn ónothæfur I þessu skyni. .Sjómannavinirnir" í Alþýðu- flokknum töldu frumv. um bygg- ingu nýs sjómannaskóla væniegt til atkvæðaveiða og flutti Sig- urjón A. Ólafsson, „sem er sjó- mannavinur með slaufu," frum- varp um þetta á öndverðu ný- loknu þingi. En svo naumt var til tekið um fjárframlög ríkissjóðs til byggingarinnar, að ákveðið var í frumvarpinu, að byggingin tæki mörg ár — yrði einskonar tilraunadýr hinna dýrustu stríðs- ára. Mátti ætla að með því móti gæti hún sætt svipuðum forlög- um og Þjóðleikhúsið að verða seint nothæf. Komu því strax fram raddir I þinginu um að of skamt væri farið með framlagið og frumvarpið væri ófullnægjandi. Ólafur Thors atvinnumálaráð- herra hafði áður en frumvarpið kom fram gert ráðstafanir til þess, að hlutur sjómanna yrði réttur með byggingu sjómanna- skóla. Vildi Ól. Th. og þeir sem honum fylgdu að málum, að byggingin kæmist í framkvæmd tafarlaust og ekki láta skera framl.ögin við nögl. Flutti Ól. Thors því breytingartillögu við fjárlagafrumvarpið um 500 þús- undir króna til byggingar sjó- mannaskóla, og sú tillaga var samþykkt með atkvæðum Sjálf- stæðismanna og nokkurra Fram- sóknarmanna, sem töldu í alla staði óréttmætt, að bygging sjó- mannaskólans væri lengur dreg- in, ekki sízt þar sem sjómanna- stéttin átti mestan þátt I hinum miklu tekjum, sem streymt hafa f rfkissjóð undanfarið. En með þessu var atkvæða- veiðafrumvarp Alþýðuflokksins kviksett. Er að sjá á Skutlinum síðasta, að fiokkurinn haíi búist við að geta notað frumv. sem cinskonar staurakví um atkvæði þeirra sjómanna, sem fylgl hafa Alþýðuflokknum hingað til. En hjá skólastjóranum Hanni- bal Valdemarssyni hefir svo farið f frásögn þessa máls eins og tfðast áður, að hann hefir enda- skifti á sannleikanum. Þeir þing- menn, sem samþyktu tillögu Ólafs Thors, voru ekki „að láta sjómenn mæta afgangi eins og oft áður“ heldur einmitt að veita þeitn fullan rétt, sem sanngjarn- ir menn máttu játa að hefði ait of lengi dregist. Fjármálaráðherra Jakob Möll- er lýsti því yfir á Alþingi, að hann myndi f. h. ríkissjóðs greiða á yfirstandandi ári þá fjárhæð til byggingar sjómannaskóla, sem ákveðin var í tillögu Ólafs Thors, sem að framan er getið. Ekkert ætti því að vera til fyrirstöðu um það, að byrjað verði á bygg- ingu sjómannaskólans nú í sum- ar og henni haldið kappsamlega áfram. Nást með því tvö þýðing- armikil atriði: Sjómenn fá við- unandi skólahús fyrir sínar sér- námsgreinir og iðnaðarmenn fá nauðsynlega vinnu. Vitanlega veiður bygging skól- ans verulega dýrari nú en á venjulegum tímum. En í það dugar ekki að horfa. En lang- dýrust hefði bygging sjómanna- skólans orðið með þeim hætti, sem Alþýðuflokkurinn stefndi að með sínu frumvarpi. Á þann hátt hefði verið unnið að bygging- unni á mörgum árum, með stöð- ugt hækkandi verðlagi, og sjó- mennirnir rnátt biða enn árum saman eftir nýju skólabygging- unni, — enginn veit hve lengi. Þetta vildi Ólafur Thors og þeir, sem honum fylgdu að mál- um, koma í veg fyrir — og það tókst. Þess vegna sýður gremjan í skólastjóranum hérna og öðrum Alþýðuflokksmönnum, sem æll- uðu að fiska vel á frumvarps- beituna. Minningarguðsþjónusta um skipverjana á vélbátnum Hólmsteini fór fratn í Þingeyrar- kirkju 18. þ. m. Var athöfnin hin hátlðlegasta. Sóknarprestur sr. Sigurður Qíslason prédikaði og las minningarljóð, er hann hafði orkt, en frk. Camilla Proppé söng einsöng. — Fjölmenni var mikið. Eimskipið Hvassafell strandaði við Fáskrúðsfjörð 18. þ. m. Rakst það á grynningar í þoku og kom strax leki að skip- inu. Skipverjar komust þó heilu og höldnu til lands við Hafnar- nes á skipsbátnum. Hvassafell var 212 smál. brutto. Eigandi útgerðarfélag Kea á Ak- ureyri. Var skipið gamalt og slitið og því ólíklegt að því verði bjargað til nota, enda var það strax daginn eftir strandið orðið fult af sjó. Hvassafell var nú í fiskkaup- um á Austfjörðum. Er strand skipsins Austfirðingum mikill bagi. Síra Halldór Koibeinz áð Stað í Súgandafirði hefir verið kjörinn prestur að Mæli- felli í Skagafirði. Axel Dahlmann héraðslæknir í Hesteyrarhér- aði andaðist af slysförum 16. þ. m. Axel var fæddur á Akureyri 15. júní 1904. Foreldrar hans voru hjónin Ingibjörg og Jón Dahlmann ljósmyndari, sem nú dvelur hér í bænum hjá Sigurði póstmeistara syni sínum, en Ingi- björg andaðist s. 1. sumar. Axel tók stúdentspróf 1927 og sigldi nokkru síðan til Kaupm.- hafnar og fór í tannlæknaskól- ann þar, en hætti því námi eftir tvö ár. Kom Axei þá aftur heim til íslands og innritaðist i lækna- deild háskólans og lauk þar prófi 1939. Að loknu námi var Axel ýmist við störf á Landakotsspí- talanum eða Landsspltalanum, unz hann var skipaður héraðs- læknir í Hesteyrarhéraði 1. okt. s. 1., en á háskólaárunum gegndi hann oft héraðslæknisstörfutn í ýmsum héruðum um skemri eða lengri tíma og kynti sig jafnan vel. Á skóla- og stúdentsárunum voru það einkum þrír menn, er Axel var mjög samrýmdur, þeir Pétur Hafstein lögfræðingur, er druknaði á heimleið frá Englandi, og Leifur Guðmundsson sjóliðs- foringi, er fórst í flugvél yfir Kaupmannahöfn. Saknaði hann alla æfi þessara félaga sinna. Þriðji félagi hans er enn á lífi, Pétur Benediktsson, sendifulltrúi íslands í London. Bæjarstjórnarfundur var haldinn hér 20. þ. m. Þetta gerðist m. a.: Samþyktar tiilögur framfærzlu- nefndar um meðlag óskilgetinna barna meðlagsárið l.ágústl94l til 31. júlí 1942: Til fuílra 4 ára kr. 650.00 — — 4—7-----------510.00 _ _ 8—14--------- 600.00 — — 15—16— — 300.00 Samþykt að veita Blóma- og trjáræktarfélaginu 1200 kr. styrk. Samþykt að leggja 10 þúsund krónur til byggingar nýs Djúp- báts og að fyrirtækið verði sjálfs- eignarstofnun. Stjórn sé skipuð 5 mönnum; 2 kosnum af bæjar- stjórn; 2 kosnum af sýslunefnd Norður-ísafjarðarsýslu, en ríkis- stjórn tilnefni 5. manninn. Samþykt að styrkja bókasafn Sjúkrahússins með 300 kr. Lagður var fram reikningur hafnarsjóðs fyrir s. I. ár. Sam- kvæmt reikningnum nema skuld- lausar eignir hafnarsjóðs liðl. 827 þús. krónum, en sumar eign- irnar gefa lítinn beinan arð, t. d. Bátahöfnin, sem á reikningnum er uppfærð fyrir 392 þúsund krónur og Skipeyrin, uppfærð á 30 þús. krónur. Afgangur sam- Ijvæmt rekstrarreikningi nemur kr. 41458.66. Messað verður hér í kirkjunni á sunnud. kl, 2 síödegis. Bókhlaðan hefir nú fengið nýustu bæk- urnar — sitt litið af hverju: Sögubókum, fræðibókum og ljóðum. Sólon íslandus, önnur útgáfa. Og sólin rennur upp. Á hverfanda hveli, fyrstu fjögur heftin. Ofvitinn, annað bindi, Þórbergur Þórðarson. Prestasögur II, Óscar Clausen. Baráttan um heirnshöfin. Sannleikurinn um hvíta sykurinn. Vasasöngbókin, önnur útgáfa, aukin. Jónas Tómasson. Hjartanlegar þakkir vottum við hjónunum frú El- ísabetu Hjaltadóttur og Einari Guðfinnssyni og frú Vilborgu Guðmundsdóttur og Eggert Har- aldssyni í Bolungavlk fyrir auð- sýnda hjálp og samúð við and- lát og jarðarför okkar ástkæru móður, frú Hervarar Helgadóttur. Kristján Oddsson. Helgi Oddsson Minningarguðsþjónusta um Ásgeir Sigurðsson, for- mann á vélbátnum Hólmsteini frá Þingeyri var haldinn I Hnífs- dal s. 1. sunnudag, að viðstöddu fjölmenni. — Ásgeir var sonur hjónanna: Sigríðar Salomons- dóttur og Sigurðar Jónassonar og var að eins tuttugu ára gam- all. Stundaði Ásgeir sjófræði- nám á Akureyri I vetur og lauk því með ágætu prófi. Var Ás- geir einkar efnilegur maður og líklegur til þess að verða mjög aflasæll. Hervör Helgadóttir, ckkja Odds Oddssonar hins nafnkunna formanns og sjósókn- ara, andaðist I Bolungavik 11. þ. m. Hervör var fædd að Hafra- felli hér í Skutilsfirði 5. júnl 1864. Þau Hervör og Oddur eignuð- ust 11 börn, af þeim eru að eins tveir synir lifandi: Kristján, sjó- maður á Flateyri, og Helgi, verkamaður I Bolungavik. Hefir Helgi alla tíð verið hjá foreldr- um sinum og annaðist móður 6ína eftir lát föður síns (1935). ÍJtgerð í Fljótavík. Frá Fljótavík á Homströndum gengu I vor 4 bátar og öfluðu allir vel, en hlutarhæztur var Geirmundur Júlíusson. Aflinn var nær allur tekinn inn á Fljóta- vikinni; stundum örskamt frá landi. Mjög kvarta Fljótvíkingar undan því, að dragnótaveiðar spilli fiskveiðum. Segja að varla verði fiskvait eítir að dragnól hefir farið yfir fiskisvæðin, þólt nægur afii hafi verið áður.

x

Vesturland

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.