Vesturland - 07.03.1942, Side 3
VESTURLAN D
35
Ur bæ og byggð.
heiði var sæmilega rudd á s. 1.
sumri innan takmarka Slranda-
sýslu og fyrir fjallvegafé, þá
skorar ;héraðsfundur N.-ísfirð-
inga á Alþingi að veita nægilegt
fé til ruðnings þessarar heiðar
innan takmarka Norður-ísafjarð-
arsýslu þegar á komandi sumri.
3. Almennur héraðsfundur N.-
ísf. skorar á Alþingi að ákveða
fjárframlag úr ríkissjóði á þessu
þingi til brúag'erðar á Selá í
Nauteyrarhreppi.
4. Héraðsfundur N.-ís. skorar
á Alþingi að veita riflegan styrk
til þjóðvegarins milli Hnífsdals
og Bolungavíkur.
5. Héraðsfundur N.-ís. skorar
á Alþingi að leggja á næstu fjár-
lögum 15. þús. kr. til Súðavíkur-
vegar.
6. Héraðsfundur N.-ís. skorar
á Alþingi að veita nægilegt fé
til landsslmalinu frá Dynjanda að
Furufirði þegar á þessu ári.
7. Héraðsfundur N.-ís. skorar
á Alþingi að veita fé á næstu
fjárlögum til lagningar nýrrar
símallnu frá Látrum I Aðalvik til
Atlastaða 1 Fljótavik.
8. Héraðsfundur N.-ís. skorar
á Landsimastjórnina at láta setja
upp símastöð á Kirkjubóli í
Langadal.
Allar þessar tillögur voru sam-
þykktar í einu hljóði.
Þeir Elias Ingimarsson, Grim-
ur Jónsson og Þórður Hjaltason
báru fram eftirfarandi tillögu, sem
var samþykkt í einu hljóði:
Héraðsfundur Norður-ísafjarð-
arsýslu, haldinn í Reykjanesi 5.
marz 1942, telur með öllu ástæðu-
laust að fresta alm. Alþingis-
kosningum lengur en til næsta
vors og skorar á stjórnarvöld
landsins, að láta þær fram fara
þá. Verði alm. kosningar til Al-
þingis ekki látnar fram fara í vor,
skorar fundurinn á dómsmála-
ráðherra að auglýsa aukakosn-
ingu í Norður-ísafjarðarsýslu og
láta hana fara fram, þar eð kjör-
dæmið er nú þingmanns laust.
Frá öðrum samþykktum hér-
aðsfundarins verður skýrt í næsta
blaöi. Framh.
f Valdimar örnólfsson
á Suðureyri, sem andaðisl þ.
27. febrúar s. 1. var jarðsunginn
í dag. — Verður hans minnst
nánar síðar hér i blaðinu.
Bió Alþýðuhússins
sýnir:
Laugardag kl. 9
og Sunnudag kl. 9:
Hver myrti’Möggu frænku?
Dularfull og spennandi am-
erisk sakamálakvikmynd.
Bönnuð börnum innan 16
ára.
Sunnudag kl. 5:
Barnasýning.
Smámyndasafn. Aðg. 75 aur.
Aðalfundur
Sjómannafélags ísfirðinga var
haldinn s. 1. mánudag. Fóru þar
fram venjuleg aðalfundarstörf.
Formaður félagsins var kosinn
Kristján Kristjánsson en vara-
form. Bjarni Guðnason, ritari
Ingibjartur Jónsson en vararitari
Pétur Einarsson, gjaldkeri Sig-
urgeir Sigurðsson en varagjald-
keri Össur Valdemarsson, fjár-
málaritari Bjarni Hansson.
Endurskoðendur voru kjörnir:
Högni Gunnarsson og Árni
Magnússon.
í stjórn styrktarsjóðs voru
kjörnir: Sigurgeir Sigurðsson,
Árni Magnússon og Kristján
Kristjánsson og i húsnefnd Árni
Magnússon ogKristján Kristjáns-
son. í Sjómannadagsráð voru
kjörnir: Högui Gunnarsson, Sig-
urgeir Sigurðsson og Kristján
Kristjánsson.
Reikningar félagsins fyrir s. 1.
tvö ár voru lesnir upp og samþ.
Þá var samþykkt að Sjómanna-
félagið gæfi 400 kr. í sundlaug-
arsjóð.
Árni Magnússon hreyfði því
á fundinum, að æskilegt væri
að sjómenn á minni bátum en
12 smál. fengju veikindafrl eins
og þeir sjómenn, sem eru á bát-
um stærri en 12 smál.
Eftir tillögu frá Högna Gunn-
arssyni var samþykkt með sam-
hljóða atkvæðum að fela stjórn-
inni að fara þess á leit við
útgerðarmenn, sem gera út skip
uudir 12 smál. niður i 6 smál.,
að sjómenn á bátum þeirra fengju
viku veikindafrí.
Fundurinn var allvel sóttur og
fór hið bezta fram.
Samningar
hafa nýlega tekist milli rikis-
stjórnarinnar og hinna erlendu
setuliða um takmörkun íslenzks
vinnuafls í þágu framkvæmda
herstjórnanna. Mun vera ráðgert
að fækka um 800 manns í þess-
ari vinnu. Fækkunin mun þó
koma þá fyrst til framkvæmda,
er eftirspurn eftir verkamönnum
til íslenzkra framleiðslustarfa, að
landbúnaði eða útgerð, eykst.
Mun fækkunin fyrst og fremst
koma niður á þeim verkamönn-
um, sem utan af landi eru og
leitað hafa til Reykjavikur. Er
það gott dæmi upp á þjóðholl-
ustu kommúnista og sósíalista,
að þeir ætla nú að ærast út af
þessum ráðstöfunum, sem miða
að þvl, að tryggja það, að ís-
lendingar geti haldið framleiðslu
sinni áfram. Er allt á sömu bók-
ina lært hjá þeim iánlitiu lags-
bræðrum.
Bæjarstjórnarkosningar
fara fram i Reykjavik sunnu-
daginn 15. marz n. k. Útvarps-
umræður um bæjarmál fóru fram
3. og 4. þ. m. Einnig verða út-
varpsumræður 12. þ. m.
TILKYNNING
frá Gjaldeyris- og innflutningsnefnd.
Hér með tilkyrinist öllum þeim, sem nú hafa í höndum gjald-
eyrisleyfi, fyrir greiðslum til Bandarikjanna og Canada, að þeir
þurfa, áður en þeir geta snúið sér til bankanna til kaupa á gjaldeyri
samkvæmt leyfum þessum, að leggja þau tram til skrásetningar á
skrifstofu Gjaldeyris- og innflutningsnefndar og gera þá um leið
grein fyrir þvl, hjá hvörum bankanum gjaldeyririnn óskast keyptur.
Skrásetningu þessari, sem aðeins tekur til þeirra leyfa, sem
nú eru í umferð, skal lokið fyrir 15. marz næstkomandi, og verða
þau leyfi, sem ekki hefir verið komið tneð til skrásetningar fyrir
þann tíma, felld úr gildi.
Jafnframt skal vakin athygli þeirra, sem hafa í höndutn gjald-
eyris- og innflutningsleyfi, sem féllu úr gildi 31. desember 1941
eða fyrr, að ef þeir hafa gert ráðstafanir tíl vörukaupa samkvæmt
þeim, þurfa þeir að gera skriflega grein fyrir því við nefndina og
sækja um framlengingu á leyfunum fyrir 15. marz næstkomandi,
enda verða utnsóknir urn slíkt, sem fram koma eftir þann tima,
ekki teknar til greina.
Ennfremur skal það tekið fram, að framvegis þegar sótf er um
gjaldeyris- og innflutningsleyfi fyrir vörutn frá Bandarlkjunum eða
Canada skal tilgreina magn (þunga) Vörunnar, eftir því sem við
verður komið, svo og fob-verð að viðbættri vátryggingu og einnig
í hvaða banka gjaldeyririnn óskast keyptur.
Reykjavík, 28. febrúar 1942.
Gjaldeyris- og innflutningsnefnd.
Alþingi það sem nú er sest á
rökstóla, ætti að setja lög þess
efnis, að hvert sjávarþorp um
land allt væri skyldugt til þess
að stofna, innan sinna vébanda,
sllkan sjóð og nú hefir verið
lýst, ætti þar að vera ákveðið
hvert tillag rikissjóðs væri tij
sjóðanna og mætti það á þess-
um tímum ekki vera minna en
tvöfalt á við gjald frá aflaskipt-
um sjómanna. Tillag rikissjóðs
mætti svo minka eða jafnvel
alveg fella niður þegar sjóðirnir
hafa náð því marki sem æski-
legt þætti.
Hér hefir verið gert ráð fyrir
að rikissjóður styrkti sjóði þessa.
Ef eitthvað verður úr því, að
stofnaður verði sérstakur sjóður
til þess að standa straum af
þeim kostnaði sem leiða kann
af ráðstöfunum, sem gerðar
kunna að verða til þess, að halda
niðri dýrtíðinni, þá liggur beint
við að ætla þeim sjóð þetta
hlutverk ríkissjóðs.
í stuttri blaðagrein er ekki
hægt að fara ítarlega út i þetta
mál í einstökum atriðum og læt
ég því það sem hér hefir verið
sagt nægja að sinni, en þyki
einhverjum það þess vert að
ræða málið, þá reyni ég að skýra
betur það sem fyrir tnér vakir.
Framleiðslustörfin.
Framhald af 1. síðu.
lendu setuliðum. Hún'hefir nóg-
um öðrum störfum að gegna.
Og þau störf eru engin dægur-
fyrirbrigði eins og öll þjóðin
vonar að setuliðsvinnan sé. Á
þvi að hin hversdagslegu störf
séu unninn veltur öll framtlð
þjóðarinnar. Þess vegna fylgir
þjóðin einhuga hverri þeirri ráð-
slöfun, sem miðar í þá átt að
tryggja það, að þessi störf séu
unnin.
Ráðstafanir ríkisstjórnarinnar
til takmörkunar íslenzks vinnu-
afls í þágu setuliðanna, sem
drepið er á annarstaðar hér í
blaðinu, eru þvi sjálfsagðar og
eðlilegar.
Umsóknafrestur
er runninn út utn héraðslækrt-
isembættið hér á ísafirði. Þessir
læknar hafa sótt um embættið:
Bjarni Guðmundsson, Flateyri,
Knútur Kristinsson, Hornafirði,
Ólafur Ólafsson, Stykkishólmi og
Baldur Johnsen, Ögri.
Búnaðarþing
er að hefjast i Reykjavík þessa
dagana. Sitja það af hálfu Vest-
firðinga, Páll Pálsson bóndi i
Þúfum, Kristinn Guðlaugsson
Núpi, en hann er form. Bún.s.b.
Vestfj., og Gunnar Þórðarson
Grænumýrartungu.
Góð stúlka óskast i vist
nú þegar, eða frá 1. mal, til
Halldórs Halldórssonar banka-
stjóra.
Auglýsingum.
sem birtast eiga i blaðinu,
verður að skiia eigi síðar en á
föstudag.
*