Vesturland - 17.07.1943, Síða 2
82
VESTURLAND
VESTURLAND
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Siguröur Bjarriason, frú Vigur
Silíurgata 0. Sími 5.
Skrifstofa Uppsölum,
sími 19 3.
Verð árgangsins 10 krónur.
Afgreiðslumaður:
Jón Hjörtur Finnbjarnarson.
Skipagata 7.
frá' völdum og Danakonungur
að taka við, sendiherrar cr-
lendra. ríkja, sem tekið hafa
sér aðsetur á Islandi yrðu að
flytja til kongsins Kaupmanna-
hafnar, íslenzk utanríkismál
flyttust yfir í danska utanríkis-
málaráðuneytið o. s. frv. Allt
þetta og margt fleira yrðu af-
leiðingar þess ef Islendingar
færu að telja sér trú um að
þeir þyrftu endilega að tala
við Dani um framtíðarlausn
Sjálfstæðismálsins og að Sam-
bandslögin væru í gildi löngu
eftir að þau væru orðin dauður
bókstafur.
Fákænska og fleðulæti.
En svo botnlaus er fákænsk-
an og fleðulætin ulan i „nor-
rænar sambúðarvenjur“ hjá
þeim, sem prjóna mórauða
sokkinn, að þeir sj á enga þess-
ara afleiðinga. Þeir sjá það
eitt, að íslenzka þjóðin þurfi
að bíða eftir því með lýðveld-
ismyndun að skiptaréttur stór-
veldanna verði settur að styrj-
öldinni lokinni og Dönum náð-
arsamlegast boðið að hlusta
þar á fyrir sina hönd — og Is-
lands.
Norræn samvinna.
Eru það álög á Alþýðu-
flokknum að flest það sem
hann kemur nálægt hljóti að
verða ljótleika og yfirdreps-
skap að bráð.
Norræn samvinna hefur ver-
ið öllum Islendingum hugleik-
ið mál. Islendingar hafa viljað
treysta sem best hin menning-
arlegu tengsl við Norðurlönd
og frændþjóðirnar, sem þau
byggja. En jarmur einstakra
Alþýðuflokksmanna í blöðum
flokksins undanfarið, um það,
að með því að lslendingar færu
að lögum og stofnuðu íslenskt
lýðveldi árið 1944, væri gengið
á svig við „norrænar sambúð-
arvenjur“, er á leiðinni að
skapa það almenningsálit að
norræn samvinna sé þá ekki
eins góður og hreinlegur hlut-
ur og þjóðin hingað til hefur
trúað. Þjóðin skilur það nefni-
lega ekki að það samræmist
ekki „norrænum sambúðar-
venjum“ að fara í öllu að lög-
um og gerðum samningum.
Óskar Jóhannesson
hreppstjóri á Þingeyri and-
aðist 14. þ. m.
Nýlátnar eru hér t bænum
Guðrún Ivarsdóttir og Mar-
grét Zakaríasdóttir.
Samvinnufélagsskapurinn má
ekki vera í tengslum við póli-
tízka flokka 1
- segir Aðalsteinn Eiriksson skólastjóri.
| snjallri ræðu, sem Aðalsteinn Eiríksson skólastjóri
flutti í þann mund er síðasta aðalfundi Kaupfélags
Isfirðinga lauk, benti hann á það, hversu fjarri sanni það
væri að samvinnufélagsskapurinn í landinu væri mark-
aður undir ákveðna pólitíska flokka.
I samvinnufélögunum væri fólk úr öllum stjórnmálaflokk-
um með hinar sundurleitustu skoðanir á þjóðmálum.
Til þess bæri þessvegna brýna nauðsyn að samvinnuielags-
skapurinn losaði sig úr öllum tengslum við pólitiska flokka
og starfaði fyrst og fremst sem óháður félagsskapur allra sam-
vinnumanna i landinu, hvaða þjóðmálaskoðun sem þeir að-
hylltust.
Vesturland getur fyllilega
tekið undir hin skorinorðu um-
mæli skóólastjórans.
Eins og S j álf stæðismenn
höfðu forystu um það að leysa
Alþýðusamband Islands úr
hinum pólitísku viðjum, sem
það var bundið Alþýðuflokkn-
um, eins er það skoðun þeirra
að samvinnufélagsskapinn beri
að losa úr þeim pólitísku
tengslum, sem hann er í við
F ramsóknarf lokkinn. S tef na
Sjálfstæðismanna í verzlunar-
málum er sú, að lrjáls sam-
keppni fái að rikja milli hinna
A FORNUM VEGI
Ný „hreingerning?“ — Bréf úr vegavinnunni.
Heyrt á götuhorni.
G. G. skrifar: — „Mér hefir ný-
lega borist til eyrna frétt, sem ég
trui varla. Ég lieyri sagt, að einum
af skipstjórum Samvinnufélags Is-
firðinga, Hinrik Guðmundssyni,
skipstjóri á Auðbirni, liafi nýlega
verið sagl upp stöðu sinni sem
skipstjóra, með stuttum fyrirvara.
Þessi maður hefir verið skipstjóri
á þessum bát frá byrjun og jafnan
verið vel látinn og dugandi sjómað-
ur. Mér þykir furðulegt ef hann á
nú að gjalda þess að ólag hefir
um skeið verið á vél skips þess,
sem hann hefir stjórnað. Vitanlega
kemur ekki til mála að skipstjórinn
eigi minnstu sök á því. Mér finnst
þessi brottvikning hins reynda
skipstjóra afskaplega lítið drengi-
leg. Ég hefi líka heyrt að í stjórn
Samvinnufélagsins hafi ríkt um
Jiana mikill ágreiningur. Ég liefi
heyrt ýmsa sjómenn furða sig á
þessu atferli gagnvart jafn traust-
starfsmanni og Hinrik Guðmunds-
son hefir alltaf verið. Éf til vill er
þetta liður í „hreingerningu“
þeirri, sem hófst með aðförunum
gagnvart Gunnari Andrew og Jóni
Péturssyni. En mér finnst þetta
hálfgerður skollaleikur".
Ég liefi ekki miklu við þetta að
Ijæta. Ég hefi alltaf haldið að skip-
stjórar Samvinnufélagsins væru
allir sem einn bráðduglegir og
liappasælir sjómenn og þar væri
því ekki þörf neinnar „lireingern-
ingar eða brottrekstra.
„Strákur í vegavinnu skrifar: —
„Alveg gengur sú endemisvitleysa
fram af mér að við hér í veginum
skulum ekki mega vinna nema í
7% tíma núna yfir hásumarið. En
þetta mun vera samkvæmt samn-
ingum, sem Alþýðusambandið hefir
gert um vegavinnuna á öllu land-
inu. Almennt eru verkamenn sár-
óánægðir með þessa tilhögun. Þetta
hefur af okkur mikla peninga en
gerir mann hinsvegar hálfvitlaus-
an af því að liggja yfir 16 tíma í
tjöldum og hatast ekkert að. Ég
mótmæii pessu, ég vil fá mein
vinnu, ekkt undir tO tíma á dag.
Eg skil ekkert í verkalýðsféiögun-
um út um iand að iáta kommún-
ista í lieykjavik draga sig út í slíka
vitieysu lit skaöa og sKapraunar
fyrir alla þá, sem þessum ákvörö-
unum Alþýöusambandsins verða að
hlýta“.
Ég fellsi gjörsamlega á þá rnegin-
skoöun, sem fram kemur í þessu
bréfi vegavinnustráksins. 8 stunda
vinnudagurinn i vegavinnunni og
flestum framleiðslustörfum út á
landi er helber heimska, enda er
mér kunnugt um að ýms verkalýðs-
íéiög liafa mótmælt honum og kraf-
ist þess að unnið yrði í 10 klst. fyrir
dagvinnukaup. Það er alls ekki við
þvi að búast að ríkið vilji láta
vinna 2 klst. með eftirvinnukaupi
l. d. i vegavinnunni, svo gífurleg
hækkun, sem víða hefur orðið á
vegavinnukaupinu. Það getur verið
að 8 stunda vinnudagurinn eigi
rétt á sér hjá iðnaðarfólki í Reykja-
vík, sem sumt vinnur erfiða og
óholla vinnu. Við framleiðslustörf-
in eða opinberar framkvæmdir út
um land, er hann vitleysa, sem
verður að afnema liið bráðasta.
Uegrt á götuhorni. — „Ilvers
vegna fæst vatnsbíllinn ekki út á
götuna?“
Svar: „Vegna þess að krötunum
er ekkert illa við rykið, því að
þeir eru svo vanir að slá ryki í
augun á fólkinu".
Þessi orðaskipti heyrði ég milli
tveggja manna, sem stóðu á götu-
horni í heimspekilegum hugleið-
ingum. Þrátt fyrir hið heimspeki-
lega yfirbragð þessara manna held
ég þó að þeir séu fyrst og fremst
raunsæismenn (realistar). Ég
byggi þá skoðun mína á orða-
skiptum þeirra, Það má hver lá
mér sem vill!
tveggja verzlunarforma, sam-
vinnuverzlunar og kaup-
mannaverzlunar. Almenningur
í landinu leggur svo sín lóð á
vogarskálina í þessari sam-
keppni með þvi að beina við-
skiptum sínum þangað, sem
sem kjörin eru best. Hin
frjálsa samkeppni tryggir það,
að hvorugum aðilanum, sam-
vinnufélögunum eða kaup-
mönnunum skapist einokunar-
aðstaða. A þessu ríkir vaxandi
skilningur með þjóðinni. Þess-
vegna verður að vænta þess, að
þeirri misnotkun samvinnufé-
laganna, sem Framsóknar-
flokkurinn hefur leyft sér í
pólitískum tilgangi, verði út-
rýmt. Um þá kröfu verða allir,
sem skapa vilja heilbrigt
verzlunarástand í landinu að
fylkja sér.
Úr bæ og byggð
1 Grunnavík
hafa hlutir sjómanna orðið
með langbezta móti á vorvertíð-
inni. Þaðan hafa gengið 4 vél-
bátar og hafði sá hæsti þeirra
2900 kr. hlut. Skilyrði til út-
gerðar í Grunnavík hafa batn-
að verulega við bryggju þá,
sem þar hefur verið byggð og
áformað er að lengja nokkuð.
Hefur Alþingi veitt 15 þús. kr.
til þeirrar framkvæmdar.
Mun hreppurinn hefjast handa
bráðlega um lengingu bryggj-
unnar, þegar honum verður
kleift að leggja fram fé gegn
framlagi ríkissjóðs.
Vtsvörin í Bolungavík.
I Hólshreppi er niðurjöfnun
útsvara nýlokið. Var jafnað
niður kr. 161.600.00 á 271
gjaldenda. I fyrra var jafnað
niður rúmlega 116 þús. kr. á
294 gj aldendur. Yfir 1000.00
króna útsvar bera nú þessir
gjaldendur:
kr.
Benedikt E. Jónsson 1120.00
Benedikt Þ. Benediktss. 1 120.00
Bernódus Halldórsson 4 675.00
Bjarni Eiríksson 14 900.00
Einar Guðfinnsson 21 500.00
Egill Guðmundsson 1 030.00
Friði-ik Teitsson 3 100.00
Gísli S. Kristjánsson 1150.00
Guðfinnur Einarsson 1 265.00
Hálfdán Einarsson 1 385 00
Ishúsf. Bolungav. h/f 3 850.00
Jakob Þorláksson 1 970.00
Jón Kr. Elíasson 1 915.00
Jón Guðfinnsson 3 790.00
Kristján E. Kristjánss. 3 950.00
Kristj án Þ. Kristj ánss. 1 035.00
Magnús Kristjánsson 3 500.00
Páll Sigurðsson 1 690.00
Pétur Jónsson 1 265.00
Salomon B. Kristjánss. 1 330.00
Sigurgeir Sigurðsson 1 320.00
Sigurmundur Sigurðss. 2 325.00
Sigurður M. Hclgason 1 100.00
Sveinn Halldórsson 1 165.00
SteingrímurBjarnason 1100.00
Þorbergur Magnússon 1 720.00