Vesturland

Ukioqatigiit

Vesturland - 17.07.1943, Qupperneq 2

Vesturland - 17.07.1943, Qupperneq 2
82 VESTURLAND VESTURLAND Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Siguröur Bjarriason, frú Vigur Silíurgata 0. Sími 5. Skrifstofa Uppsölum, sími 19 3. Verð árgangsins 10 krónur. Afgreiðslumaður: Jón Hjörtur Finnbjarnarson. Skipagata 7. frá' völdum og Danakonungur að taka við, sendiherrar cr- lendra. ríkja, sem tekið hafa sér aðsetur á Islandi yrðu að flytja til kongsins Kaupmanna- hafnar, íslenzk utanríkismál flyttust yfir í danska utanríkis- málaráðuneytið o. s. frv. Allt þetta og margt fleira yrðu af- leiðingar þess ef Islendingar færu að telja sér trú um að þeir þyrftu endilega að tala við Dani um framtíðarlausn Sjálfstæðismálsins og að Sam- bandslögin væru í gildi löngu eftir að þau væru orðin dauður bókstafur. Fákænska og fleðulæti. En svo botnlaus er fákænsk- an og fleðulætin ulan i „nor- rænar sambúðarvenjur“ hjá þeim, sem prjóna mórauða sokkinn, að þeir sj á enga þess- ara afleiðinga. Þeir sjá það eitt, að íslenzka þjóðin þurfi að bíða eftir því með lýðveld- ismyndun að skiptaréttur stór- veldanna verði settur að styrj- öldinni lokinni og Dönum náð- arsamlegast boðið að hlusta þar á fyrir sina hönd — og Is- lands. Norræn samvinna. Eru það álög á Alþýðu- flokknum að flest það sem hann kemur nálægt hljóti að verða ljótleika og yfirdreps- skap að bráð. Norræn samvinna hefur ver- ið öllum Islendingum hugleik- ið mál. Islendingar hafa viljað treysta sem best hin menning- arlegu tengsl við Norðurlönd og frændþjóðirnar, sem þau byggja. En jarmur einstakra Alþýðuflokksmanna í blöðum flokksins undanfarið, um það, að með því að lslendingar færu að lögum og stofnuðu íslenskt lýðveldi árið 1944, væri gengið á svig við „norrænar sambúð- arvenjur“, er á leiðinni að skapa það almenningsálit að norræn samvinna sé þá ekki eins góður og hreinlegur hlut- ur og þjóðin hingað til hefur trúað. Þjóðin skilur það nefni- lega ekki að það samræmist ekki „norrænum sambúðar- venjum“ að fara í öllu að lög- um og gerðum samningum. Óskar Jóhannesson hreppstjóri á Þingeyri and- aðist 14. þ. m. Nýlátnar eru hér t bænum Guðrún Ivarsdóttir og Mar- grét Zakaríasdóttir. Samvinnufélagsskapurinn má ekki vera í tengslum við póli- tízka flokka 1 - segir Aðalsteinn Eiriksson skólastjóri. | snjallri ræðu, sem Aðalsteinn Eiríksson skólastjóri flutti í þann mund er síðasta aðalfundi Kaupfélags Isfirðinga lauk, benti hann á það, hversu fjarri sanni það væri að samvinnufélagsskapurinn í landinu væri mark- aður undir ákveðna pólitíska flokka. I samvinnufélögunum væri fólk úr öllum stjórnmálaflokk- um með hinar sundurleitustu skoðanir á þjóðmálum. Til þess bæri þessvegna brýna nauðsyn að samvinnuielags- skapurinn losaði sig úr öllum tengslum við pólitiska flokka og starfaði fyrst og fremst sem óháður félagsskapur allra sam- vinnumanna i landinu, hvaða þjóðmálaskoðun sem þeir að- hylltust. Vesturland getur fyllilega tekið undir hin skorinorðu um- mæli skóólastjórans. Eins og S j álf stæðismenn höfðu forystu um það að leysa Alþýðusamband Islands úr hinum pólitísku viðjum, sem það var bundið Alþýðuflokkn- um, eins er það skoðun þeirra að samvinnufélagsskapinn beri að losa úr þeim pólitísku tengslum, sem hann er í við F ramsóknarf lokkinn. S tef na Sjálfstæðismanna í verzlunar- málum er sú, að lrjáls sam- keppni fái að rikja milli hinna A FORNUM VEGI Ný „hreingerning?“ — Bréf úr vegavinnunni. Heyrt á götuhorni. G. G. skrifar: — „Mér hefir ný- lega borist til eyrna frétt, sem ég trui varla. Ég lieyri sagt, að einum af skipstjórum Samvinnufélags Is- firðinga, Hinrik Guðmundssyni, skipstjóri á Auðbirni, liafi nýlega verið sagl upp stöðu sinni sem skipstjóra, með stuttum fyrirvara. Þessi maður hefir verið skipstjóri á þessum bát frá byrjun og jafnan verið vel látinn og dugandi sjómað- ur. Mér þykir furðulegt ef hann á nú að gjalda þess að ólag hefir um skeið verið á vél skips þess, sem hann hefir stjórnað. Vitanlega kemur ekki til mála að skipstjórinn eigi minnstu sök á því. Mér finnst þessi brottvikning hins reynda skipstjóra afskaplega lítið drengi- leg. Ég hefi líka heyrt að í stjórn Samvinnufélagsins hafi ríkt um Jiana mikill ágreiningur. Ég liefi heyrt ýmsa sjómenn furða sig á þessu atferli gagnvart jafn traust- starfsmanni og Hinrik Guðmunds- son hefir alltaf verið. Éf til vill er þetta liður í „hreingerningu“ þeirri, sem hófst með aðförunum gagnvart Gunnari Andrew og Jóni Péturssyni. En mér finnst þetta hálfgerður skollaleikur". Ég liefi ekki miklu við þetta að Ijæta. Ég hefi alltaf haldið að skip- stjórar Samvinnufélagsins væru allir sem einn bráðduglegir og liappasælir sjómenn og þar væri því ekki þörf neinnar „lireingern- ingar eða brottrekstra. „Strákur í vegavinnu skrifar: — „Alveg gengur sú endemisvitleysa fram af mér að við hér í veginum skulum ekki mega vinna nema í 7% tíma núna yfir hásumarið. En þetta mun vera samkvæmt samn- ingum, sem Alþýðusambandið hefir gert um vegavinnuna á öllu land- inu. Almennt eru verkamenn sár- óánægðir með þessa tilhögun. Þetta hefur af okkur mikla peninga en gerir mann hinsvegar hálfvitlaus- an af því að liggja yfir 16 tíma í tjöldum og hatast ekkert að. Ég mótmæii pessu, ég vil fá mein vinnu, ekkt undir tO tíma á dag. Eg skil ekkert í verkalýðsféiögun- um út um iand að iáta kommún- ista í lieykjavik draga sig út í slíka vitieysu lit skaöa og sKapraunar fyrir alla þá, sem þessum ákvörö- unum Alþýöusambandsins verða að hlýta“. Ég fellsi gjörsamlega á þá rnegin- skoöun, sem fram kemur í þessu bréfi vegavinnustráksins. 8 stunda vinnudagurinn i vegavinnunni og flestum framleiðslustörfum út á landi er helber heimska, enda er mér kunnugt um að ýms verkalýðs- íéiög liafa mótmælt honum og kraf- ist þess að unnið yrði í 10 klst. fyrir dagvinnukaup. Það er alls ekki við þvi að búast að ríkið vilji láta vinna 2 klst. með eftirvinnukaupi l. d. i vegavinnunni, svo gífurleg hækkun, sem víða hefur orðið á vegavinnukaupinu. Það getur verið að 8 stunda vinnudagurinn eigi rétt á sér hjá iðnaðarfólki í Reykja- vík, sem sumt vinnur erfiða og óholla vinnu. Við framleiðslustörf- in eða opinberar framkvæmdir út um land, er hann vitleysa, sem verður að afnema liið bráðasta. Uegrt á götuhorni. — „Ilvers vegna fæst vatnsbíllinn ekki út á götuna?“ Svar: „Vegna þess að krötunum er ekkert illa við rykið, því að þeir eru svo vanir að slá ryki í augun á fólkinu". Þessi orðaskipti heyrði ég milli tveggja manna, sem stóðu á götu- horni í heimspekilegum hugleið- ingum. Þrátt fyrir hið heimspeki- lega yfirbragð þessara manna held ég þó að þeir séu fyrst og fremst raunsæismenn (realistar). Ég byggi þá skoðun mína á orða- skiptum þeirra, Það má hver lá mér sem vill! tveggja verzlunarforma, sam- vinnuverzlunar og kaup- mannaverzlunar. Almenningur í landinu leggur svo sín lóð á vogarskálina í þessari sam- keppni með þvi að beina við- skiptum sínum þangað, sem sem kjörin eru best. Hin frjálsa samkeppni tryggir það, að hvorugum aðilanum, sam- vinnufélögunum eða kaup- mönnunum skapist einokunar- aðstaða. A þessu ríkir vaxandi skilningur með þjóðinni. Þess- vegna verður að vænta þess, að þeirri misnotkun samvinnufé- laganna, sem Framsóknar- flokkurinn hefur leyft sér í pólitískum tilgangi, verði út- rýmt. Um þá kröfu verða allir, sem skapa vilja heilbrigt verzlunarástand í landinu að fylkja sér. Úr bæ og byggð 1 Grunnavík hafa hlutir sjómanna orðið með langbezta móti á vorvertíð- inni. Þaðan hafa gengið 4 vél- bátar og hafði sá hæsti þeirra 2900 kr. hlut. Skilyrði til út- gerðar í Grunnavík hafa batn- að verulega við bryggju þá, sem þar hefur verið byggð og áformað er að lengja nokkuð. Hefur Alþingi veitt 15 þús. kr. til þeirrar framkvæmdar. Mun hreppurinn hefjast handa bráðlega um lengingu bryggj- unnar, þegar honum verður kleift að leggja fram fé gegn framlagi ríkissjóðs. Vtsvörin í Bolungavík. I Hólshreppi er niðurjöfnun útsvara nýlokið. Var jafnað niður kr. 161.600.00 á 271 gjaldenda. I fyrra var jafnað niður rúmlega 116 þús. kr. á 294 gj aldendur. Yfir 1000.00 króna útsvar bera nú þessir gjaldendur: kr. Benedikt E. Jónsson 1120.00 Benedikt Þ. Benediktss. 1 120.00 Bernódus Halldórsson 4 675.00 Bjarni Eiríksson 14 900.00 Einar Guðfinnsson 21 500.00 Egill Guðmundsson 1 030.00 Friði-ik Teitsson 3 100.00 Gísli S. Kristjánsson 1150.00 Guðfinnur Einarsson 1 265.00 Hálfdán Einarsson 1 385 00 Ishúsf. Bolungav. h/f 3 850.00 Jakob Þorláksson 1 970.00 Jón Kr. Elíasson 1 915.00 Jón Guðfinnsson 3 790.00 Kristján E. Kristjánss. 3 950.00 Kristj án Þ. Kristj ánss. 1 035.00 Magnús Kristjánsson 3 500.00 Páll Sigurðsson 1 690.00 Pétur Jónsson 1 265.00 Salomon B. Kristjánss. 1 330.00 Sigurgeir Sigurðsson 1 320.00 Sigurmundur Sigurðss. 2 325.00 Sigurður M. Hclgason 1 100.00 Sveinn Halldórsson 1 165.00 SteingrímurBjarnason 1100.00 Þorbergur Magnússon 1 720.00

x

Vesturland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.