Vesturland - 28.08.1943, Síða 1
VESTURLAND
BLAÐ VEST FIRZKRA SJÁLFSTÆÐISMANNA
ísafjöi'ður, 28. ágúst 1943.
27. tölublað.
Nauðsyn nýrrar flokkaskipt-
ingar á íslandi.
Núverandi flokkaskipting er loskennd
og óeðliieg.
A tburðir þeir, sem gerst hafa í íslenzkum stjórnmál-
um s.l. 12 mánuði sýna, að flokkaskiptingin í land-
inu hefur veitt hinu aldagamla þingræði voru þung
högg og stór.
Alþingi hefur elcki reynst þess megnugt að framkvæma
þá þingræðislegu skyldu sína að mynda ríkisstjórn. Þessvegna
fer óþingræðisleg ríkisstjórn nú með völd í landinu. En hverjar
eru orsakir þess að svo er komið og hvernig verður úr bætt?
Hjálpar Kínverjum.
XX. árgangur.
Undip fölsku
flaggi.
Um jólaleytið s. I. ár
fæddist sú kynlega
kviksaga í höfuðborg ís-
lands, að þekktur maður í
borginni, docent í guðfræði
við Háskóla Islands, hefði
hengt sig á aðfangadags-
kvöld í hinni fögru kapellu
Háskólans.
Saga þessi flaug um borg-
ina eins og eldur í sinu. En
örlög sín fékk þessi kvik-
saga ekki umflúið, fremur
en aðrar slúðursögur, þau,
að reynast markleysa og
tilhæfulaus þvættingur frá
upphafi til enda. Fór því
svo að brátt var þessi
reykvíska jólasaga dauð og
gleymd.
En þótt furðulegt sé,
fannst þó sá maður, sem
fannst þessi miður smekk-
lega jólasaga verðskulda
frekari frægð og lengra líf.
Og það furðulegasta af öllu
furðulegu var það, að sá
maður var sjálfur hinn
ógæfusami docent henging-
arsögunnar. Téður docent
tók sig nú til og skrifaði 12
blaðsíðna langa ritg. í eitt
víðlesnasta tímarit lands-
ins, Helgafell, um hina
meintu hengingu sína fyrir
háaltari Háskólakapellunn-
ar.
Mun furðulegri ritsmíð
sjaldan hafa verið léð rúm
í íslenzku tímariti. Lepur
höfundar hennar þar fjöl-
margar útgáfur hinnar ó-
þriflegu slúðursögu, smjatt-
ar á þeim með mærðar-
kenndum fjálgleik, fléttar
inn í þær nýjar slúðursögur
um aðra menn og lýkur síð-
an ritsmíð sinni í einskærri
botnleysu. öll ber ritsmíð
þessi með sér hina sérkenni-
legustu ósmekkvísi og yfir-
borðshátt er nálgast sefa-
sjúkt rugl.
★
Þennan höfund hinnar
furðulegu tímaritsgreinar
hefur Alþýðuflokkurinn á
Framh. á 2. síðu.
Orsakir.
Ef litið er á orsakii’nar er
þar fyrst til að taka að enginn
einn flokkur hefur meirihluta
á Alþingi og þarmeð mögu-
leika til þess að mynda einn
ríkisstjórn. — Flokkaskipting-
unni og sjálfx’i hinni pólitísku
baráttu er hinsvegar þannig
háttað að í bili virðist sam-
vinna þingflokka, tveggj a,
þi-iggja eða fögra, vera ókleif.
Þannig var þetta á s.l. veti’i og
allar líkur eru tif að svo sé enn.
Þegar þessir þrengingartím-
ar íslenzk þingræðis eru at-
liugaðir er athyglisvert að líta
til þeirra þjóða er þroskaðast
þingræði eiga, svo sem Breta
og Bandarikjamanna.
Tveir flokkar.
Með þessum þjóðum hefur
styrkleiki þingræðisins allan
þess aldur byggst á því, að ein-
ungis hefur verið um að ræða
tvo meginflokka í landinu. 1
Bandaríkjunum hafa demo-
kratar og republikar farið með
völdin á víxl, en i Englandi
Toryar og Wiggar. Síðar hefur
flokkaskipting Englendinga
haldist á hinum gamla grund-
velli en baráttan staðið milli
íhaldsmanna, sem lengstum
hafa farið þar með völd, og
verkamannaflokksins, . sem
einnig hefur verið sterkur
flokkur. I báðum þessum lönd-
um hefir þingræðið staðið
mjög föstum fótum og þarf
ekki að fara í neinar grafgöt-
ur um það, að orsök þess er
fyrst og fremst flokkaskipting-
in og hið fasta og örugga form
hennar.
Á Norðurlöndum, sem einn-
ig hjuggu fyrir stríð við þrosk-
að þingræði, hefur flokkaskipt-
ingin að vísu ekki verið í jafn
föstu sniði þótt segja megi að
i meginatriðum hafi öryggi
Framh. á 4. síðu.
Leiðarþingum
í Norður-ísafjarðar-
sýslu lokið.
eiðai’þing hefur þingmað-
ur Norður-Isfirðinga, Sig-
urður Bjai-nason frá Vigur
haldið i sumar í öllum hrepp-
um sýslunnar. Er þeim nýlok-
ið í þorpunum. Var hið sein-
asta í Súðavík s.l. sunnudag.
Hefur sú ráðabreytni mælst
rnjög vel fyrir i héraðinu, en
eins, og kunnugt er vanrækti
fyrrverandi þingmaður sýsl-
unnar, alþýðuflokksmaðurinn,
sem hvarf, með öllu allt slíkt
samband og samvinnu við hér-
aðsbúa.
Þi'átt fyrir mikið annríki á
sjó og landi lxafa þessi leiðai’-
þing verið mjög sæmilega sótt
og sumstaðar ágætlega.
Er það ætlan þingnlannsins
að lialda slík leiðarþing í kj ör-
dæminu framvegis, helzt ekki
sjaldnar en annað hvort ár.
Alþýðuhlaðið og Skutull liafa
undanfarið í'eynt að telja sér
trú um það að þessi leiðarþing
liafi ýmist vei’ið mjög fásótt
eða fallið niður vegna lélegrar
aðsóknar. Verður ekki annað
sagt en að kratarnir gripi nú
orðið til ofur harnalegra hug-
hreystinga í þeirri limafalls-
sýki sem nú hrjáir flokks-
skrifli þeirra. Norðux’-Isfirð-
ingar og þingmaður þeirra
munu liinsvegar halda áfram
að treysta sem bezt samvinnu
sína um hiri fjölmörgu fram-
fara- og umbótamál, senx úr-
laúsnar bíða í hinu viðlenda
og fagra héraði þeirra. Glefs
og gems Alþýðublaðsins og
Skutuls megnar á engan hátt
að torvelda þá samvinnu né
það mark og mið, sem að er
stefnt með henni.
Stilwell hershöföingi
andamenn láta sig nú
■*“* Kínastyrjöldina varða i
vaxandi rnæli. Var nýlega
skýrt frá því að Bandaríkja-
menn hefðu sent þangað mik-
inn liðsauka til aðstoðar Chi-
ang Kai-shek stj órninni í hinni
löngu styrjöld við Japana.
Yfirstjói'nandi Bandaríkja-
hersins á Kína er Joseph W.
Stilwell hershöfðingi, sem
myndin er af hér að ofan.
Óeirðir í Danmörku.
p regnir bei’ast nú stöðugt
um vaxandi óeirðir í
Danmörku. Hefur víða komið
til uppþota og áreksti’a milli
þýzka hersins og vopnaðra
Dana. Henndai’verkastarfsemi
hefur ve.rið mikil á jórnbraut-
um og öðrum samgöngutækj-
um. Er það talið spretta af því
að Þjóðverjar hafa upp á síð-
kastið flutt herlið til Noregs
yfir Danmörku síðan að Svíar
neituðu þeim slika umferð uin
land sitt.
Nýjustu síldarfréttir:
I morgun höi'ðu Samvinnu-
félagsbátarnir aflað sem liér
segir:
Ásbjörn 5600 mál og 487 tunnur
Gunnbjörn 8050 mál og 1047 tunnur
Sæbjörn 9097 mál og 1.220 tunnur
Valbjörn 7980 mál og 572 tunnur
Vébjörn 3184 rnál og 3900 tunnur
Gunnap Juul
látinn
Gunnar Juul lyfsali varð
bráðkvaddur að lieimili sínu
hér á Isafirði í gær.