Vesturland

Árgangur

Vesturland - 28.08.1943, Blaðsíða 1

Vesturland - 28.08.1943, Blaðsíða 1
VESTURLAND BLAÐ VEST FIRZKRA SJÁLFSTÆÐISMANNA ísafjöi'ður, 28. ágúst 1943. 27. tölublað. Nauðsyn nýrrar flokkaskipt- ingar á íslandi. Núverandi flokkaskipting er loskennd og óeðliieg. A tburðir þeir, sem gerst hafa í íslenzkum stjórnmál- um s.l. 12 mánuði sýna, að flokkaskiptingin í land- inu hefur veitt hinu aldagamla þingræði voru þung högg og stór. Alþingi hefur elcki reynst þess megnugt að framkvæma þá þingræðislegu skyldu sína að mynda ríkisstjórn. Þessvegna fer óþingræðisleg ríkisstjórn nú með völd í landinu. En hverjar eru orsakir þess að svo er komið og hvernig verður úr bætt? Hjálpar Kínverjum. XX. árgangur. Undip fölsku flaggi. Um jólaleytið s. I. ár fæddist sú kynlega kviksaga í höfuðborg ís- lands, að þekktur maður í borginni, docent í guðfræði við Háskóla Islands, hefði hengt sig á aðfangadags- kvöld í hinni fögru kapellu Háskólans. Saga þessi flaug um borg- ina eins og eldur í sinu. En örlög sín fékk þessi kvik- saga ekki umflúið, fremur en aðrar slúðursögur, þau, að reynast markleysa og tilhæfulaus þvættingur frá upphafi til enda. Fór því svo að brátt var þessi reykvíska jólasaga dauð og gleymd. En þótt furðulegt sé, fannst þó sá maður, sem fannst þessi miður smekk- lega jólasaga verðskulda frekari frægð og lengra líf. Og það furðulegasta af öllu furðulegu var það, að sá maður var sjálfur hinn ógæfusami docent henging- arsögunnar. Téður docent tók sig nú til og skrifaði 12 blaðsíðna langa ritg. í eitt víðlesnasta tímarit lands- ins, Helgafell, um hina meintu hengingu sína fyrir háaltari Háskólakapellunn- ar. Mun furðulegri ritsmíð sjaldan hafa verið léð rúm í íslenzku tímariti. Lepur höfundar hennar þar fjöl- margar útgáfur hinnar ó- þriflegu slúðursögu, smjatt- ar á þeim með mærðar- kenndum fjálgleik, fléttar inn í þær nýjar slúðursögur um aðra menn og lýkur síð- an ritsmíð sinni í einskærri botnleysu. öll ber ritsmíð þessi með sér hina sérkenni- legustu ósmekkvísi og yfir- borðshátt er nálgast sefa- sjúkt rugl. ★ Þennan höfund hinnar furðulegu tímaritsgreinar hefur Alþýðuflokkurinn á Framh. á 2. síðu. Orsakir. Ef litið er á orsakii’nar er þar fyrst til að taka að enginn einn flokkur hefur meirihluta á Alþingi og þarmeð mögu- leika til þess að mynda einn ríkisstjórn. — Flokkaskipting- unni og sjálfx’i hinni pólitísku baráttu er hinsvegar þannig háttað að í bili virðist sam- vinna þingflokka, tveggj a, þi-iggja eða fögra, vera ókleif. Þannig var þetta á s.l. veti’i og allar líkur eru tif að svo sé enn. Þegar þessir þrengingartím- ar íslenzk þingræðis eru at- liugaðir er athyglisvert að líta til þeirra þjóða er þroskaðast þingræði eiga, svo sem Breta og Bandarikjamanna. Tveir flokkar. Með þessum þjóðum hefur styrkleiki þingræðisins allan þess aldur byggst á því, að ein- ungis hefur verið um að ræða tvo meginflokka í landinu. 1 Bandaríkjunum hafa demo- kratar og republikar farið með völdin á víxl, en i Englandi Toryar og Wiggar. Síðar hefur flokkaskipting Englendinga haldist á hinum gamla grund- velli en baráttan staðið milli íhaldsmanna, sem lengstum hafa farið þar með völd, og verkamannaflokksins, . sem einnig hefur verið sterkur flokkur. I báðum þessum lönd- um hefir þingræðið staðið mjög föstum fótum og þarf ekki að fara í neinar grafgöt- ur um það, að orsök þess er fyrst og fremst flokkaskipting- in og hið fasta og örugga form hennar. Á Norðurlöndum, sem einn- ig hjuggu fyrir stríð við þrosk- að þingræði, hefur flokkaskipt- ingin að vísu ekki verið í jafn föstu sniði þótt segja megi að i meginatriðum hafi öryggi Framh. á 4. síðu. Leiðarþingum í Norður-ísafjarðar- sýslu lokið. eiðai’þing hefur þingmað- ur Norður-Isfirðinga, Sig- urður Bjai-nason frá Vigur haldið i sumar í öllum hrepp- um sýslunnar. Er þeim nýlok- ið í þorpunum. Var hið sein- asta í Súðavík s.l. sunnudag. Hefur sú ráðabreytni mælst rnjög vel fyrir i héraðinu, en eins, og kunnugt er vanrækti fyrrverandi þingmaður sýsl- unnar, alþýðuflokksmaðurinn, sem hvarf, með öllu allt slíkt samband og samvinnu við hér- aðsbúa. Þi'átt fyrir mikið annríki á sjó og landi lxafa þessi leiðai’- þing verið mjög sæmilega sótt og sumstaðar ágætlega. Er það ætlan þingnlannsins að lialda slík leiðarþing í kj ör- dæminu framvegis, helzt ekki sjaldnar en annað hvort ár. Alþýðuhlaðið og Skutull liafa undanfarið í'eynt að telja sér trú um það að þessi leiðarþing liafi ýmist vei’ið mjög fásótt eða fallið niður vegna lélegrar aðsóknar. Verður ekki annað sagt en að kratarnir gripi nú orðið til ofur harnalegra hug- hreystinga í þeirri limafalls- sýki sem nú hrjáir flokks- skrifli þeirra. Norðux’-Isfirð- ingar og þingmaður þeirra munu liinsvegar halda áfram að treysta sem bezt samvinnu sína um hiri fjölmörgu fram- fara- og umbótamál, senx úr- laúsnar bíða í hinu viðlenda og fagra héraði þeirra. Glefs og gems Alþýðublaðsins og Skutuls megnar á engan hátt að torvelda þá samvinnu né það mark og mið, sem að er stefnt með henni. Stilwell hershöföingi andamenn láta sig nú ■*“* Kínastyrjöldina varða i vaxandi rnæli. Var nýlega skýrt frá því að Bandaríkja- menn hefðu sent þangað mik- inn liðsauka til aðstoðar Chi- ang Kai-shek stj órninni í hinni löngu styrjöld við Japana. Yfirstjói'nandi Bandaríkja- hersins á Kína er Joseph W. Stilwell hershöfðingi, sem myndin er af hér að ofan. Óeirðir í Danmörku. p regnir bei’ast nú stöðugt um vaxandi óeirðir í Danmörku. Hefur víða komið til uppþota og áreksti’a milli þýzka hersins og vopnaðra Dana. Henndai’verkastarfsemi hefur ve.rið mikil á jórnbraut- um og öðrum samgöngutækj- um. Er það talið spretta af því að Þjóðverjar hafa upp á síð- kastið flutt herlið til Noregs yfir Danmörku síðan að Svíar neituðu þeim slika umferð uin land sitt. Nýjustu síldarfréttir: I morgun höi'ðu Samvinnu- félagsbátarnir aflað sem liér segir: Ásbjörn 5600 mál og 487 tunnur Gunnbjörn 8050 mál og 1047 tunnur Sæbjörn 9097 mál og 1.220 tunnur Valbjörn 7980 mál og 572 tunnur Vébjörn 3184 rnál og 3900 tunnur Gunnap Juul látinn Gunnar Juul lyfsali varð bráðkvaddur að lieimili sínu hér á Isafirði í gær.

x

Vesturland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.