Vesturland - 28.08.1943, Page 4
108
VESTURLAND
Nauðsyn nýrrar flokka-
skiptingar á Islandi.
Framh. af 1. síðu.
þingræðis þeirra hvilt á sömu
stoðum og hinna tveggj a engil-
saxnesku stórvelda er fyrr
voru nefnd.
Ruglingsleg flokkaskipting
— hrun lýðræðisins.
• 1 fjölmörgum löndum hefur
þingræðið og lýðræðið orðið
sjálfu sér að bana. Hin rugl-
ingslega flokkaskipting t. d. í
Þýzkalandi og Italiu ruddi ein-
ræðinu braut, skapaði upp-
lausn og öngþveiti. Svipuðu
máli gegndi um Frakkland,
sjálft móðurland lýðræðisins.
Flokkafjöldinn hafði í raun
réttri eyðilagt þingræðið. öll
framkvæmd stjórnarvaldsins
varð samræmislaus og glund-
i-oðakennd. Á hinn skjóti og
hörmulegi ósigur Frakklands
í styrjöldinni ekki hvað sízt
rætur sínar að rekja til þess
fádæma glundroða, er ríkt
hafði i innanríkisstjórnmálum
þjóðarinnar á árunum fyrir
striðið.
Islenzk flokkaskipting.
Islenzk flokkaskipting í dag
er á leiðinni að drepa hið alda-
gamla þingræði þjóðarinnar.
Enda þótt aðalflokkarnir séu
ekki fleiri en fjórir verður
þessi staðhæfing að teljast
staðreynd eftir atburði síðasta
árs.
En hvernig fær þj óðin bj arg-
að þingræði sínu, umbætt það
og skapað sér stjórnarfarslegt
öryggi?
Ef litið er á rikj andi flokka-
skiptingu í landinu verður
auðsætt, að hún er mjög los-
kennd og lítt mótuð. 1 landinu
eru þrír svokallaðir vinstri
flokkar, Kommúnistaflokkur,
Alþýðuflokkur og Framsókn-
arflokkur.
Fj órði f lokkurinn er svo
Sjálfstæðisflokkurinn. Ef fyrst
er litið á vinstri flokkana, upp-
byggingu þeirra og stefnumið,
verður fljótlega ljóst, að sá
flokkurinn sem i eðli sinu hef-
ur greinilegast markaða stefnu
og róttækasta er Kommúnista-
flokkurinn. Flokkurinn er yfir-
lýstur gj örbreytinga og bylt-
ingaflokkur enda þótt henti-
stefnumenn í forystuliði hans
bregði sér um kosningar i ým-
isleg gerfi.
Engu að siður fylgir þó
fjöldi borgaralega sinnaðra
manna þessum flokki'að mál-
um, fólk, sem upplausnaröldur
styrjaldartímanna hafa skolað
inn í áróðurssvelg kommún-
ismans.
Stefnumið Alþýðuflokksins
og Framsóknarl'lokksins eru
f jarri ]>ví að vera skýrt mörk-
uð. Báðir vilja þessir flokkar
telja sig nokkurskonar „milli-
flokka“, hefur Framsóknar-
flokkurinn einkum lagt á-
herzlu á sig sem slíkan. I báð-
Dráttarvextip
falla á þinggjöld í Isafjarðarkaupstað séu þau eigi
greidd fyrir 6. september næstkomandi.
Bæj arf ógeti.
TILKYNNING.
Ákveðið hefir verið að verð á sildarmjöli á innlendum
markaði verði kr. 51,15 pr. 100 kíló, fritt um horð ef mjölið
er greitt og tekið fyrir 14. september næstkomandi. — Sé
mjölið ekki greitt og tekið fyrir 15. september næstkomandi
bætast frá þeim tíma vextir og bruntryggingarkostnaður við
mjölverðið. — Sé hinsvegar mjölið greitt fyrir 15. september,
en ekki tekið fyrir þann tíma, þá bætist aðeins brunatrygg-
ingarkostnaður við mjölverðið. Ef kaupandi hefur ekki til-
kynnt síldarverksmiðj um rikisins fyrir þann tíma að hann
hafi sjálfur vátryggt á fullnægjandi hátt að dómi sildarverk-
smiðjanna gildir það ákvæði einnig fyrir það mjöl, sem ekki
er greitt né tekið fyrir 15. september næstkomandi.
Allt mjöl verður þó að vera pantað fyrir 30. september
næstkomandi og greitt að fullu fyrir 10. nóvember næstkomandi.
Siglufirði, 26. ágúst 1943.
Síldarverksmiðjur ríkisins.
Ellilaun og ðrorkubætur árið 1944
Umsækjendur ellilauna og örorkubóta i Isafjarðarkaup-
stað fyrir næsta ár skulu skila umsóknum sínum á bæjar-
skrifstofuna fyrir 15. september næstkomandi.
Umsóknir verður að skrifa á sérstök eyðublöð, sem fást
á bæjarskrifstofunni. Þar verður umsækjendum veitt aðstoð
og leiðbeiningar gefnar, eftir þvi sem þörf gerist og óskað
verður. Menn eru beðnir að kynna sér eyðublöðin i tæka tíð,
til þess að vera við því búnir að gefa allar þær upplýsingar,
sem krafist er, t. d. um eignir sinar, tekjur árið 1942 og það
sem af er þessu ári og um framfærzluskylda venzlamenn sína,
(börn, kjörbörn, foreldra, kjörforeldra og maka).
Umsækjendur um örorkubætur fyrir árið 1944, sem ekki
haía notið þeirra á þessu ári, verða að fá örorkuvottorð hjá
héraðslækninum á Isafirði. Verði nýs örorkuvottorðs krafist,
af núverandi örorkubótaþegum, verður þeim tilkynnt það siðar.
Isafirði, 27. ágúst 1943.
Bæjarstjóri.
um þessum flokkum er allmik-
ið af fólki, sem alveg eins á
heima í flokki kommúnista,
róttækum byltingasinnum, sem
fylla flokk kommúnista eða
Alþýðuflokkinn þegar þeir eru
í kaupstað, en Framsóknar-
flokkinn ef þeir komast á
gras.
Hinsvegar eru í bæði Al-
þýðuflokknum og Framsókn-
arflokloium mikið af borgara-
lega sinnuðu fólki, séreignar-
sinnuðum mönnum, sem
standa fjarri byltingastefnu
kommúnista. Ræðir hér eink-
um um ýmsa smærri framleið-
endur við sjávarsiðuna er
fylgja Alþýðuflokknum og
fjölda bænda í sveitum er
fylgja Framsóknarflokknum.
Flokkaskipting, sem hlýtur
að hverfa.
Af því, sem þegar hefur í
fám orðum verið sagt um þessa
fjóra flokka verður auðsætt að
slík flokkaskipting fær ekki til
lengdar staðist. Skoðanir fólks-
ins hljóta að leita frekara
jafnvægis í nýrri og eðlilegri
flokkaskiptingu. Hið borgara-
lega sinnaða fólk í Kommún-
istaflokknum, sem Rússagald-
ur og önnur stríðsfyrirbrigði
hafa skolað þangað, hlýtur að
skipa sér i aðra sveit. Sama
verður raunin á urn borgara-
lega sinnað fólk í hinum
vinstri flokkunum. Það fólk,
sem að þá verður eftir í hin-
um þremur vinstriflokkunum,
hlýtur síðan að mynda einn
sterkan, róttækan vinstriflokk.
Á hinu leytinu verður svo að
myndast annar sterkur frjáls-
lyndur borgaralega sinnaður
flokkur. Meginkjarni hans
verður S j álfstæðisflokkurinn.
Þessi flokkur byggir stefnu
sína á umbættu séreignar-
skipulagi og fullkomnara lýð-
ræði í stjórnmálum og at-
vinnumálum en nú er. Hann
hlýtur að verða flokkur allra
stétta en ekki einhliða stétta-
samtök einstakra ímyndaðra
hagsmunaheilda. Milli hinna
tveggja flokka hlj'tur svo bar-
áttan um stjórn landsins að
standa.
Til þess ber brýna nauðsyn
að íslenzk flokkaskipting þok-
ist í áttina til slíks forms, sem
hér hefur verið bent á. Og í
raun réttri lilýtur svo að fara.
1 heiminum eru nú fyrst og
fremst uppi tvær stefnur, sér-
eignastefnan og stefna einræð-
isins, kommúnismans og naz-
ismans.
Hinn nýi tími, sem upp renn-
ur í lolt styrj aldarinnar, hlýtur
að greina kjarnann frá hism-
inu og þá hljóta hugir manna
að leita áskapaðs jafnvægis í
eðlilegri flokkaskiptingu.
Má ]>á svo fara að það öng-
þveitisástand, sem nú ríkir í
landinu endist ]>jóðinni ekki
til varanlegrar ógæfu.
Prentstofan Isrún.
Nýkomið:
Saumur 1—6”.
Þaksaumur.
Pappasaumur.
Fyrirliggjandi:
Þakpappi.
Múrhúðunarnet.
Smiðaverkfæri, svo sem
Stanley-heflar.
Tommustokkar.
Skrúfjárn, margar teg.
og margt fleira.
Verzl. J. S. Edwald.
SKDR
til burtflutnings eða niður-
rifs er til sölu.
Högni Gunnarsson.
Fimmtugur
varð í gær Georg Jónasson
verkamaður.
Beztu þakkir
votta ég öllum þeim, sem
sýndu mér velvild og vináttu
á fimmtugsafmæli mínu þann
17. þ. m.
Kristján B. Sigurðsson.
Þakkarávarp,
Innilegar þakkir fyrir alla
samúð og vinsemd við fráfall
og útför litlu dóttur okkar,
óslúrðu.
Guðrún Árnadóttir.
Siguruin Veturliðason.
Unglingsstúlka
óskast í vist; — Sérherbergi,
gott kaup.
Auður Herlufsen.