Vesturland

Ukioqatigiit

Vesturland - 28.08.1943, Qupperneq 4

Vesturland - 28.08.1943, Qupperneq 4
108 VESTURLAND Nauðsyn nýrrar flokka- skiptingar á Islandi. Framh. af 1. síðu. þingræðis þeirra hvilt á sömu stoðum og hinna tveggj a engil- saxnesku stórvelda er fyrr voru nefnd. Ruglingsleg flokkaskipting — hrun lýðræðisins. • 1 fjölmörgum löndum hefur þingræðið og lýðræðið orðið sjálfu sér að bana. Hin rugl- ingslega flokkaskipting t. d. í Þýzkalandi og Italiu ruddi ein- ræðinu braut, skapaði upp- lausn og öngþveiti. Svipuðu máli gegndi um Frakkland, sjálft móðurland lýðræðisins. Flokkafjöldinn hafði í raun réttri eyðilagt þingræðið. öll framkvæmd stjórnarvaldsins varð samræmislaus og glund- i-oðakennd. Á hinn skjóti og hörmulegi ósigur Frakklands í styrjöldinni ekki hvað sízt rætur sínar að rekja til þess fádæma glundroða, er ríkt hafði i innanríkisstjórnmálum þjóðarinnar á árunum fyrir striðið. Islenzk flokkaskipting. Islenzk flokkaskipting í dag er á leiðinni að drepa hið alda- gamla þingræði þjóðarinnar. Enda þótt aðalflokkarnir séu ekki fleiri en fjórir verður þessi staðhæfing að teljast staðreynd eftir atburði síðasta árs. En hvernig fær þj óðin bj arg- að þingræði sínu, umbætt það og skapað sér stjórnarfarslegt öryggi? Ef litið er á rikj andi flokka- skiptingu í landinu verður auðsætt, að hún er mjög los- kennd og lítt mótuð. 1 landinu eru þrír svokallaðir vinstri flokkar, Kommúnistaflokkur, Alþýðuflokkur og Framsókn- arflokkur. Fj órði f lokkurinn er svo Sjálfstæðisflokkurinn. Ef fyrst er litið á vinstri flokkana, upp- byggingu þeirra og stefnumið, verður fljótlega ljóst, að sá flokkurinn sem i eðli sinu hef- ur greinilegast markaða stefnu og róttækasta er Kommúnista- flokkurinn. Flokkurinn er yfir- lýstur gj örbreytinga og bylt- ingaflokkur enda þótt henti- stefnumenn í forystuliði hans bregði sér um kosningar i ým- isleg gerfi. Engu að siður fylgir þó fjöldi borgaralega sinnaðra manna þessum flokki'að mál- um, fólk, sem upplausnaröldur styrjaldartímanna hafa skolað inn í áróðurssvelg kommún- ismans. Stefnumið Alþýðuflokksins og Framsóknarl'lokksins eru f jarri ]>ví að vera skýrt mörk- uð. Báðir vilja þessir flokkar telja sig nokkurskonar „milli- flokka“, hefur Framsóknar- flokkurinn einkum lagt á- herzlu á sig sem slíkan. I báð- Dráttarvextip falla á þinggjöld í Isafjarðarkaupstað séu þau eigi greidd fyrir 6. september næstkomandi. Bæj arf ógeti. TILKYNNING. Ákveðið hefir verið að verð á sildarmjöli á innlendum markaði verði kr. 51,15 pr. 100 kíló, fritt um horð ef mjölið er greitt og tekið fyrir 14. september næstkomandi. — Sé mjölið ekki greitt og tekið fyrir 15. september næstkomandi bætast frá þeim tíma vextir og bruntryggingarkostnaður við mjölverðið. — Sé hinsvegar mjölið greitt fyrir 15. september, en ekki tekið fyrir þann tíma, þá bætist aðeins brunatrygg- ingarkostnaður við mjölverðið. Ef kaupandi hefur ekki til- kynnt síldarverksmiðj um rikisins fyrir þann tíma að hann hafi sjálfur vátryggt á fullnægjandi hátt að dómi sildarverk- smiðjanna gildir það ákvæði einnig fyrir það mjöl, sem ekki er greitt né tekið fyrir 15. september næstkomandi. Allt mjöl verður þó að vera pantað fyrir 30. september næstkomandi og greitt að fullu fyrir 10. nóvember næstkomandi. Siglufirði, 26. ágúst 1943. Síldarverksmiðjur ríkisins. Ellilaun og ðrorkubætur árið 1944 Umsækjendur ellilauna og örorkubóta i Isafjarðarkaup- stað fyrir næsta ár skulu skila umsóknum sínum á bæjar- skrifstofuna fyrir 15. september næstkomandi. Umsóknir verður að skrifa á sérstök eyðublöð, sem fást á bæjarskrifstofunni. Þar verður umsækjendum veitt aðstoð og leiðbeiningar gefnar, eftir þvi sem þörf gerist og óskað verður. Menn eru beðnir að kynna sér eyðublöðin i tæka tíð, til þess að vera við því búnir að gefa allar þær upplýsingar, sem krafist er, t. d. um eignir sinar, tekjur árið 1942 og það sem af er þessu ári og um framfærzluskylda venzlamenn sína, (börn, kjörbörn, foreldra, kjörforeldra og maka). Umsækjendur um örorkubætur fyrir árið 1944, sem ekki haía notið þeirra á þessu ári, verða að fá örorkuvottorð hjá héraðslækninum á Isafirði. Verði nýs örorkuvottorðs krafist, af núverandi örorkubótaþegum, verður þeim tilkynnt það siðar. Isafirði, 27. ágúst 1943. Bæjarstjóri. um þessum flokkum er allmik- ið af fólki, sem alveg eins á heima í flokki kommúnista, róttækum byltingasinnum, sem fylla flokk kommúnista eða Alþýðuflokkinn þegar þeir eru í kaupstað, en Framsóknar- flokkinn ef þeir komast á gras. Hinsvegar eru í bæði Al- þýðuflokknum og Framsókn- arflokloium mikið af borgara- lega sinnuðu fólki, séreignar- sinnuðum mönnum, sem standa fjarri byltingastefnu kommúnista. Ræðir hér eink- um um ýmsa smærri framleið- endur við sjávarsiðuna er fylgja Alþýðuflokknum og fjölda bænda í sveitum er fylgja Framsóknarflokknum. Flokkaskipting, sem hlýtur að hverfa. Af því, sem þegar hefur í fám orðum verið sagt um þessa fjóra flokka verður auðsætt að slík flokkaskipting fær ekki til lengdar staðist. Skoðanir fólks- ins hljóta að leita frekara jafnvægis í nýrri og eðlilegri flokkaskiptingu. Hið borgara- lega sinnaða fólk í Kommún- istaflokknum, sem Rússagald- ur og önnur stríðsfyrirbrigði hafa skolað þangað, hlýtur að skipa sér i aðra sveit. Sama verður raunin á urn borgara- lega sinnað fólk í hinum vinstri flokkunum. Það fólk, sem að þá verður eftir í hin- um þremur vinstriflokkunum, hlýtur síðan að mynda einn sterkan, róttækan vinstriflokk. Á hinu leytinu verður svo að myndast annar sterkur frjáls- lyndur borgaralega sinnaður flokkur. Meginkjarni hans verður S j álfstæðisflokkurinn. Þessi flokkur byggir stefnu sína á umbættu séreignar- skipulagi og fullkomnara lýð- ræði í stjórnmálum og at- vinnumálum en nú er. Hann hlýtur að verða flokkur allra stétta en ekki einhliða stétta- samtök einstakra ímyndaðra hagsmunaheilda. Milli hinna tveggja flokka hlj'tur svo bar- áttan um stjórn landsins að standa. Til þess ber brýna nauðsyn að íslenzk flokkaskipting þok- ist í áttina til slíks forms, sem hér hefur verið bent á. Og í raun réttri lilýtur svo að fara. 1 heiminum eru nú fyrst og fremst uppi tvær stefnur, sér- eignastefnan og stefna einræð- isins, kommúnismans og naz- ismans. Hinn nýi tími, sem upp renn- ur í lolt styrj aldarinnar, hlýtur að greina kjarnann frá hism- inu og þá hljóta hugir manna að leita áskapaðs jafnvægis í eðlilegri flokkaskiptingu. Má ]>á svo fara að það öng- þveitisástand, sem nú ríkir í landinu endist ]>jóðinni ekki til varanlegrar ógæfu. Prentstofan Isrún. Nýkomið: Saumur 1—6”. Þaksaumur. Pappasaumur. Fyrirliggjandi: Þakpappi. Múrhúðunarnet. Smiðaverkfæri, svo sem Stanley-heflar. Tommustokkar. Skrúfjárn, margar teg. og margt fleira. Verzl. J. S. Edwald. SKDR til burtflutnings eða niður- rifs er til sölu. Högni Gunnarsson. Fimmtugur varð í gær Georg Jónasson verkamaður. Beztu þakkir votta ég öllum þeim, sem sýndu mér velvild og vináttu á fimmtugsafmæli mínu þann 17. þ. m. Kristján B. Sigurðsson. Þakkarávarp, Innilegar þakkir fyrir alla samúð og vinsemd við fráfall og útför litlu dóttur okkar, óslúrðu. Guðrún Árnadóttir. Siguruin Veturliðason. Unglingsstúlka óskast í vist; — Sérherbergi, gott kaup. Auður Herlufsen.

x

Vesturland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.