Vesturland - 20.05.1944, Qupperneq 3
VESTURLAND
71
Sextugur:
Júlíus Geirmundsson
Atlastöðum.
Sextugur varð þ. 16. þ. m. Júlí-
us Geirmundsson bóndi á Atla-
stöðum í Fljótavík.
Július er fæddur í Stakkadal
í Aðalvík en hefur búið allan
sinn búskap á Atlastöðum.
Hefur hann búið þar hart nær
40 ár.
Júlíus Geirmundsson er
harðduglegur maður en hefur
þrátt fyrir örðugar aðstæður í
einni afskektustu byggð á Is-
landi, jafnan bjargast vel og
séð sér og sínum vel farborða.
Fljótavíkin er fiskisæl og á
þeim miðum hefur Júlíus oft
aflað notadrjúgs fengs. Hefur
liann jafnan sótt sjó samhliða
búskap sínum.
Júlíus er kvæntur Guðrúnu
Jónsdóttur, ættaðri úr Stranda-
sýslu. Hafa þau átt 12 börn, 6
sjrni og 6 dætur, myndarfólk,
sem nú er flest uppkomið.
Einn son vaxinn hafa þau
misst.
Júlíus Geirmundsson er
kjarnamaður. Þrek hans og
kjarkur er óbilandi. Hann er
léttur í lund og oft spaugssam-
ur í viðræðu.
Vesturland óskar honum
allra heilla í tilefni sextugsaf-
mælisins.
Vegavinnudeilunni lokið.
Samkomulag hefur nú tek-
ist milli ríkisstjórnarinnar og
Alþýðusambands Islands í
deilu þeirri sem staðið hefur
yfir s.l. þrjár vikur.
Verkföllum og boðuðum
samúðarverkföllum hefur ver-
ið afstýrt.
Férmingarbörn.
Á sunnudaginn kemur verða
þessi börn fermd í Isafjarðarkirkju:
Piltar:
Guðni Ásgeirsson. Hnífsdal.
Hákon Magnússon, Hnífsdal.
Halldór Benediktsson, Hnífsdal.
Sigurgeir Kristjánsson, Hnífsdal.
Salómon Sigurðsson, Hnífsdal.
Steinþór Kr. Þorleifsson, Arnard.
Torfi Ingólfsson, Hnífsdal.
Þórarinn Hjörleifsson, Hnífsdal.
Stúlkur:
Guðrún Jónasdóttir, Hnífsdal.
Hrefna Hannesdóttir, Hnífsdal.
Jóna Guðrún Jónsdóttir, Hnífsd.
Júlíana Ólöf Árnadóttir, Hnífsd.
Ragna Finnbogadóttir, Hnífsdal.
Þorgerður Sveinsdóttir, Arnardal.
Guðrún Thorsteinson, Arnardal.
Magnúsína Jónsdóttir, Engidal.
Leiðrétting.
I frásögn um 40 ára afmæli
Útibús Landsbankans hér á
Isafirði í síðasta blaði varð sú
skekkja að innlánsfé útibúsins
var talið kr. 7,348 þús. í árs-
lok 1943, átti að vera kr 9,950
þús. — níu miljónir, níu
hundruð og fimmtíu þúsund.
Þj óðaratkvæðagreiðslan
hefst kl. 10 í dag.
Fréttir frá I. S. f. í apríl:
Sendikennari 1. S. 1.
Kjartan Bergmann er nú í
Þingeyj arsýslu og heldur þar
glímunámskeið. Axel Andrés-
son er í Keflavík og Óskar
Ágústsson er á Þórshöfn. Marg-
ar beiðnir um sendikennara
liggja fyrir og verður ekki
hægt að sinna þeim öllum.
Fulltrúar í Skíðaráð
Reykjauíkur.
Nýlega hafa verið skipaðir
í Skiðaráð Reykjavíkur full-
trúar frá tveimur félögum.
Knattspyrnufélaginu Valur Jó-
hannes Bergsteinsson og 1-
þróttafélagi Hóskólans Gísli
Ólafsson.
Ný félög.
Ungmennasamband Borgar-
fjarðar hefur sótt um upptöku
i 1. S. 1. Félagsmenn eru 540
og sambandsstjóri er Björn
Jónsson, Deildartungu. Er ver-
ið að ganga frá smáatriðum í
sambandi við upptöku U. M.
F. B. í I. S. I.
Æfifélagar 1. S. 1.
Nýlega hefur Færeyingurinn
Sámal Daviðsson frá Thors-
liavn gerzt æfifélagi í 1. S. 1. og
eru nú æfifélagar 280 að tölu.
Námskeið fyrir dómara
í frj álsum íþróttum á vegum
1. S. I. hófst í lok þessa mán-
aðar og sér 1. R. R. um það,
Eru þátttakendur um tuttugu.
Iþróttaheimili 1. S. /.
Áheit að upphæð kr 500,00
hefur oss borist til lþrótta-
heimilis frá hr. Henry Aaberg,
rafvirkjameistara í Reykjavík.
Stjórnl. S. 1.
★
Samúel Jónsson
í Garðshorni varð áttræður
í fyrradag. Hann fluttist liing-
að til bæjarins 1904 og hefur
átt hér heima siðan. Hann er
maður vinsæll og vel látinn.
Iijúskapur.
Þann 14. jæssa mánaðar
voru gefin saman í hjónaband
Fanney Sigurbaldadóttir og
Bergvin Jónsson verkamaður í
Reykj avík.
Starfsstúlka
óskast til skólastjórans í
Reykjanesi frá næstu mánaða-
mótum. Gott kaup. — Nánai’i
upplýsinga í síma 69, Isafirði.
Þakkarávarp.
Oltkar innilegasta þakklæti
vottum við öllum þeim, sem
veitt hafa okkur stuðning með
lieningagjöfum og öðru á
liðnum vetri. Óskum við þeim
öllum gleðilegs sumars og alls
góðs.
Aðalheiður Tryggvadóttir.
Sigurður Sv. Guðmundsson,
Hnífsdal.
Ávarp
frá Landsnefnd lýðveldiskosninganna.
Landsnefnd kosninganna um niðurfall sambandslaga-
samningsins frá 1918 og samþykkt lýðveldisstjórnarskrár Is-
lands finnur sér skylt að beina til yðar, íslenzki kjósandi, þess-
ari orðsending:
Á þessum dögum eru komin yfir þjóð vora hin merkileg-
ustu og afdrifaríkustu timamót, sem henni hafa nokkru sinni
að höndum borið. Aldrei hefir þjóðinni verið jafnbrýn nauð-
syn á, að sérhver fullveðja maður, karl og kona, ungur sem
gamall leggist á eitt að gera skyldu sina til þess að hún fái
nú endurheimt að fullu frelsi sitt og fullræði að nýju, eftir
margra alda þjökun erlends valds, sem þjóðin hefir jafnan
þráð að fá af sér hrundið.
Alkunnugt er, hversu allur hagur þjóðarinnar hefur
smám saman snúist í átt til hagsældar síðan á fyrri hluta 19.
aldar, er forvígismenn vorir tóku að losa um helgreipar hins
erlenda valds, og hversu loks hafðist fram viðurkenning í lok
fyrri heimsstyrjaldar um rétt vorn til fullveldis, svo að oss
var í sjálfsvald sett að losna úr öllum böndum eftir 25 ár,
eða þegar úr árslokum 1943.
Allir flokkar á Alþingi hafa síðan marglj'st yfir, að þeir
ætli að nota uppsagnarréttinn, og hefir síðasta Alþingi af-
greitt það mál af sinni hálfu til þjóðarinnar.
Nær því öll bæjarfélög, sýslufélög og fjölmörg félagasam-
bönd víðsvegar um land, svo og smá og stór félög og stofn-
anir hvarvetna, hafa lýst einróma fylgi við málið.
Atkvæðagreiðslan skal fram fara á öllum kjörstöðum í
landinu dagana 20.—23. þessa mánaðar, og er þegar hafin
fyrir þá, sem fjarverandi kunna að verða kjörstöðum sínum
þessa daga, veikir eða forfallaðir á annan hátt.
Nú eru úrslit málsins lögð undir atkvæði alþjóðar. Nú
eru úrslitin um frelsi þjóðarinnar komin yður í hendur, ís-
lenzki kjósandi, hverjum yðar um sig og öllum saman.
Aldrei hefir j afnmikilvægt og þjóðheilagt mál verið lagt
undir yðar atkvæði eða nokkurs íslenzks kjósanda síðan land
byggðist. Nú býðst yður það háleita tækifæri, sem aldrei hefir
áður boðizt og mun aldrei bjóðast framar, að þér sjálfir fáið
lagt yðar mikilvæga hlut í vogarskálina til þess að ná sam-
stundis því takmarki, sem þjóðin hefir þráð um aldir, en
saknað og farið á mis við, illu heilli, um nær því sjö alda
skeið.
Ef þessi óskastund þjóðarinnar væri vanrækt nú, þá er
ólíklegt að hún komi nokkru sinni aftur.
Höldum því saman rakleitt að settu marki. Allir eitt.
Islenzki kjósandi.
I samærmi við það, sem hér er á drepið, viljum vér
eindreigð beina því til yðar, að þér látið einskis ófreist-
að til þess að neyta atkvæðisréttar yðar í tíma og
tryggja þar með og treysta, að þjóðarþráin rætist nú á
þessu vori undir hækkandi sól með stofnun hins ís-
lenzka lýðveldis.
Hvetjið aðra kjósendur og veitið þeim atbeina til
sömu dáða. Þá mun þjóð vor mega líta með fögrum von-
um og vaxandi sjálfstrausti til ókominna tíma.
Munið, að stofnun lýðveldis verður að fylgja niður-
felling sambandslaganna. — Gætið þess, að kjósandi
að sýna samþykki sitt með því að setja merkja kross á
TVEIM stöðum á atkvæðaseðlinum, ANNAN til já-
kvæðis niðurfellingar sambandslagasamningsins, HINN
til jákvæðis stofnun lýðveldisins. Er þá kross fyrir
framan hvort já.
Landsnefnd lýðveldiskosninganna.
Kosningaskrifstofa lýðveldiskosninganna á Isafirði
er á Uppsölum.
Veitir allar upplýsingar og aðstoð. Sjálfboðaliðar
gefi sig fram við skrifstofuna til aðstoðar.