Vesturland

Årgang

Vesturland - 17.03.1945, Side 4

Vesturland - 17.03.1945, Side 4
24 VESTURLAND Erling Ellingsen ilngmáiastjóri. Erling Ellingsen verkfx-æð- ingur hefur verið skipaður flugmálastjóri. Jafnframt fell- ur niður starf flugmálai’áðu- nauts í’íkísins, en þvi stai’fi hefur Agnar Kofoed Hansen lögreglustjói'i gegnt til þessa. 1 lögum, sem síðasta Alþingi sairxþykkti, var kveðið á um stofnun embættis flugmála- stjóra. Skal hann hafa yfirum- sjón með framkvæmdum í flugmálum, byggingu flug- valla, flugskýla, dráttarbrauta og þráðlausra talstöðva í þágu flugsamgangnanna. Væntan- lega verður nú liafizt handa um býggingu hinnar marg- ráðgerðu dráttarbrautar fyrir sjóflugvélar hér á Isafirði. Eins og áður hefur vei’ið skýi-t frá hér i blaðinu hefur nú vei’- ið útvegað fé, 100 þús. kr., til þessai’ar framkvæmdar. -------------o------- Styrjöldin. Framh. af 1. síðu. kringt stói'borgina Breslau og er nú barist í úthverfum henn- ar. Borgirnar Danzig og Stettin virðast munu falla þá og þeg- ar. Mikill hluti Austur-Prúss- lands er nú á valdi Rússa og nær allt Pólland. 1 Ungverjalandi verjast Þjóð- verjar af miklu kappi og hef- ur fx-amsókn Rússa verið rnjög hæg þar um skeið. Vii’ðist þýzka herstjórnin ætla sér að koma í veg fyrir að Rússar komist bakdyramegin, þ. e. um Austuri’íki inn í Suður-Þýzka- land. Annai’s virðist Berlín vera í yfirvofandi hættu af framsókn Rússa frá Póllandi. Hundruð þúsunda flóttamanna hafa. streymt til borgarinnar, sem vei’ið hefur undir stöðug- um loftárásum Breta og Bandarík j amanna. Við Kyrrahaf. Þar eru Bandax'íkj amenn í mikilli sókn. Hafa þeir tekið Manilla, höfuðborg Philipps- eyja og hrakið Japana úr einu vígi þeii-ra á fætur öðru. Loftsókn er hafin gegn sjálf- um Japanseyjum og hafa verið gerðar stórárásir á stæi’stu borgirnar Tokio, sem hefur yfir 4 milj. íbúa og Osaka, sem hefur yfir 3 milj. íbúa. Hafa Bi-etar nú sent mikinn hluta flota síns til aðstoðar Bandaríkjaflotanum á Kyi’ra- hafi. Hafa nú Bandamenn al- ger yfirtök á sjó og í Iofti aust- ur þar. I Japan hefur herinn tekið öll völd í sínar hendur svo auðsætt er að „sonunx sólarinn- ar“ sýnist hagur sinn uggvæn- legur. HNAKKUR óskast til kaups. Upplýsingar í prentstofunni. 50 ára starfsafmæli: Steinn Ólafsson bakarameistari, Þingeyri. Þann 15. þ. m. voru 50 ár liðin síðan Steinn Ólafsson hóf bakax-astöi’f hér á Isafirði. Stundaði hann fyrst nám í bak- aríi F. Thordai’sonar konsúls og stai’faði þar um margra ára skeið, lengstum sem yfii’bak- ari. En þá gex’ðist ha.nn aðal- hvatamaður að stofnun Félags- bakarísins og veitti því for- stöðu unx nokkurt skeið unz liann flutti til Þingeyrar og setti þar upp eigið bi’auðgei’ða- hús, sem hann hefir rekið sið- an af dugnaði og fyrirhyggju. Siðari árin hefir liann einnig rekið þar gistihús og matsölu. Steinn er kvæntur Jóhönnu Guðmundsdóttur, Natanaels- sonar frá Kirkjubóli í Dýra- firði. Er heimili þeirra mesta fyrirmyndarheimili og þau hjónin mjög samlient um rausn og myndarskap. Steinn er vinsæll maður og vinfastur og í alla staði hinn bezti drengur. Vesturland ósk- ar honum allra heilla í tilefni þessa starfsafmælis hans. ------o------- Byggingarmál. Svohljóðandi tillögu, sem Bjarni Benediktsson flutti fyr- ir hönd Sjálfstæðisflokksins, samþykkti Alþingi nokkru áð- ur en þvi sleit: „Alþingi ályktar að fela rík- isstjórninni að láta athuga og gera tillögur um, með hverjum hætti bezt verði af opinberri hálfu greitt fyrir byggingu í- búðarhúsa í kaupstöðum, kauptúnum og sveitum lands- ins. Skal stjórnin svo fljótt sein kostur er láta afla gagna um þá tækni í húsabyggingum er- lendis, sem þar hefur rutt sér til rúms hin síðari ár og líkur væri til að okkur mætti að haldi koma. Þá sþal stjórnin og leita á- lits og tillagna byggingar- fróðra manna hér á landi um nýja tilhögun við húsagerð, er leiða mætti til þess að bygging- um skilaði fljótar áfram og drægi jafnframt úr kostliaðin- um. Ennfremur skal ríkisstjórnin láta taka til endurskoðunar löggjöf þá, sem nú gildir um byggingarmál í landinu. Verði athugun þessa máls sem mest, svo að stjórnin geti sem fyrst lagt fram álit og til- lögur um málið“. Hér er um hið mesta nauð- synjamól að ræða og verður að vænta þess að ríkisstj órnjn láti ekki undir höfuð leggjast að framkvæma ráðstafanir þær, sem tillagan fjallar um. Prentstofaa lsrún h.f. Guðjón Sigmundsson látinn. Nýlátinn er i Reykjavík i hárri elli Guðjón Sigmundsson, faðir Jóns Guðjónssonar bæj- arstjóra hér á ísafirði. Guðjón dvaldi lengi i ön- undarfirði og var hinn mesti sómamaður. -------0------ Nýr norskur sendiherra á Islandi. Nýkominn er liingað til lands nýr norskur sendiherra. Heitir sá Andersen Ryst. Es- mark sá, er hér var áður, er nú sendiherra Norðmanna i Stokkhólmi. -------o------ Inneignir íslendinga erlendis. Inneign Islendinga i erlend- um bönkum námu í lok janú- ar s. 1. 567 milj. kr. Á sama tima námu innlán í islenzkum bönkum tæplega 600 milj. kr. -------0------ Skíðamóti Vestfjarða lýkur væntanlega á morgun. Keppt hefur verið í göngu og bruni. I göngunni sigraði Bjarni Halldórsson, Ármanni, en í bruninu varð fyrstur Guð- mundur Benediktsson, Ár- manni. Heildarúrslita inótsins verð- ur getið í næsta blaði. Karitas Hafliðadóttir kennslukona var jarðsungin í dag. Var jarðarför hennar afar- fjölmenn. Búnaðarþingi lýkur í dag. Hefur það staðið yfir á annan mánuð. Héðan frá Djúpi sat Páll Pálsson bóndi í Þúf- um þingið, en úr Vestur-lsafjarðar- sýslu, Jóhannes Davíðsson í Hjarð- ardal. ÁRABÁTUR í góðu standi með seglum og öðru tilheyrandi til sölu með eða án veiðarfæra. Helgi Salómonsson, Hnifsdal. HUS TIL SÖLU. Húseign mín á Atlastöðum i Fljótavík er til sölu. Húsið er nýbyggt úr thnbri og járnvar- ið. I húsinu eru 3 herbergi. — Stærð hússins 4X9 og hlaða 4X9. Allar nánari upplýsingar i síma 62, Isafirði Geirmundur Júlíusson. Þakkarávarp. Hjartanlega þakka ég öllum þeim, er hafa glatt mig í veik- indum minum, með heimsókn- um og gjöfum. Sérstaklega vil ég þakka Kvenfélaginu Hlif og Kvenfélaginu Ósk, Isafirði, fyr- ir peningagjöf, er þau færðu mér. Guð blessi ykkur. Helga Veturliðadóttir, Sjúkrahúsi ísafjarðar. Auglýsing um útsvör. Utsvarsgreiðendur í Isafjarðarkaupstað, sem enn hafa ekki lokið fyrstu útsvarsgreiðslu sinni, fyrir árið 1945, sem féll í gjalddaga 1. þ. m., eru vinsamlegast á- minntir um að draga það ekki lengur. Þeir atvinnurekendur, og aðrir kaupgreiðendur, sem hafa ekki gert bæjarsjóði skil á fyrstu útsvarsgreiðslu starfsmanna sinna, samkvæmt auglýsingu frá skrifstofu bæjarstjóra, eru einnig áminntir um að gera skil á greiðslum þessum án frekari dráttar. Utsvarsgreiðslunum ber að skila í skrifstofu bæjar- gjaldkera. Isafirði, 16. marz 1945. SKRIFSTOFA BÆJARSTJÓRA ■ ■ S Bolvíkingar og aðrir héraðsbúar! | | S Sel allar matvörur. S s ■ ■ Matur er mannsins meginn. B & I ■ Verzlun Eínars Guðfinnssonar S S S Bolungarvík.

x

Vesturland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.