Vesturland - 31.07.1948, Síða 3
t
VESTURLAND
3
í skoðunum og sá vítt út yfir
liið daglcga þras og deilur, sem
liann oft tók nauðugur þátt í.
En á einum sólbjartasta degi
þessa sumars, barst fregnin
um það, að hann vœri látinn
í fjarlægu landi. Islenzka þjóð-
in liafði misst einn þeirra
manna, sem liafði unnið henni
bezt og af mestum heilindum
og réttsýni, en átti þó miklu
verki ólokið. Þeir, sem báru
gæfu til þess að kynnast hon-
um og starfa með honum í
lengri eða skemmri tíma,
sakna sárlega vinar i stað. En
minningin um vammlaust líf
lians og þjóðnýt störf, mun lifa
áfram með ókomnum kynslóð-
um þjóðar hans, löngu eftir að
hávaðinn af vopnabraki sam-
tíðarinnar er dofnaður út í
viddir rúnis og tíma.
Sigurður Bjarnason
frá Vigur.
------0-------
JONiNÓTT
Ljósfögur langdegisnóttin
lækjanna hlustar á klið.
Fossarnir la í sig þróttinn
og falla með vaxandi nið.
Hæglátur háf j allasvalinn
heilsar frá suðrænni átt.
Ljósálfar dansa um dalinn
við dynjandi hljóðfæraslátt.
ISLENZKA KRÓNAN
Hrapar fengur — happi þá
hrósar enginU sinu —
skapist lengur lækkun á
látúns gengi þinu.
VÞEGAR SKIPT VAR UM
NAFN A KAUPAKONUM
Taðan má nú maðka í ljá;
margur litið heyjar.
Látið sjá, nú liggur á,
landbúnaðarmeyj ar.
Hreiðar E. Geirdal.
LOFTLEIÐIR H.F.
AÐALFUNDUR
I
Aðalfundur Loftleiða h.f. verður haldinn i Tjarnarcafé uppi
mánudaginn 16. ágúst kl. 4 e.h.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Hluthafar vitji aðgöngumiða að fundinum á skrifstofu fé-
lagsins, Lækjargölu 2.
LOFTLEIÐIR H.F.
Laus staða
Vélamann vantar að Fossárstöðinni. Laun samkvæmt
launasamþykkt bæjarins. Staðan veitist frá 15. sept.
n. k. Umsóknarfrestur til 15. ágúst.
RAFVEITA ISAFJARÐAR
Auglýsing
nr. 24, 1948, frá slcðmmtunarstjóra,
Viðskiplanefndin hefur samþykkt að heimila skömmtunar-
skrifstofu ríkisins að veita nýja úthlutun á vinnufatnaði og
vinnuskóm.
Bæj ai’stj óruni og oddvitum hafa nú verið sendir sérstakir
skömmtunarseðlar í þessu skyni, og eru þeir auðkenndir sem
vinnufatastofn nr. 3, prentaðir með brúnum lit.
Heimilt er að úthluta þessum nýju vinnufataseðlum til þeirra,
sem skila vinnufatnaðarstofni nr. 2, svo og til annara, er þurfa
ó sérstökum vinnul'atnaði eða vinnuskóm að halda, vegna vinnu
sinnar. Um úthlutanir til þeirra, er ekki hafa í höndum vinnu-
fatnaðarstol'n nr. 2, skal að öllu leyti farið eftir því, sem fyrir
er lagt í auglýsingu skönnntunarstjóra nr. 21, 1947, og gilda að
öðru leyti ákvæði þeirrar auglýsingar, eftir því sem við á.
Heimilt er að úthluta þessum nýju vinnufatnaðarseðlum á
tímabilinu frá 1. júlí til 1. nóv. 1948, og skulu þeir vera lögleg
innkaupaheimild á þvi timabili.
Bæjarstjórmn og oddvitum skal sérstaklega á það bent að
klippa frá og halda cftir rcitunum fyrir vinnuskónum, ef þeir
telja, að umesækjandinn liafi ekki brýna þörf fyrir nýja vinnu-
skó á umræddu timabili.
Jafnframt skal það tckið fram, að vinnufatnaðarseðlar þeir,
sem auðkenndir ern scm vinnufatastofn nr. 2, prentaðir með
rauðum lit, falla úr gildi sem lögleg innkaupaheimild frá og
með 1. ógúst 1948.
Reykjavík, 5. júlí 1948.
Arður til hluthafa
SKÖMMTUN ARST J ÖRI
Auglýsing
nr. 24, 1948, frá skðmmtunarstjóra.
Á aðalfundi félagsins 5. júní, var samþykkt að greiða 4%
— fjóra af hundraði — i arð til hlutliafa fyrir árið 1947.
Arðmiðar verða innleystir í aðalskrifstofu félagsins í
Reykjavik, og hjá afgreiðslumönnum félagsins um allt
land.
Athygli skal vakin á því, að samkvæmt 5. gr. samþykkta
félagsins er arðmiði ógildur, hafi ekki verið krafizt greiðslu
á honum áður en 4 ár eru liðin frá gjalddaga hans. Skal
hluthöfum því bent á, að draga ekki að innleysa arðmiða
af. hlutabréfum sinum, svo lengi að hætta sé á, að þeir
verði ógildir. Nú eru í gildi arðmiðar fyrir árin 1943—1947,
að báðum áruin meðtöldum, en eldri arðmiðar eru ógildir.
Þá skal ennfremur vakin athygli á því, að enn eiga all-
margir hluthafar eftir að sækja nýjar arðmiðaarkir, sem
afhentar eru gegn stofni þéim, sem festur er við hluta-
bréfin. Eru þeir hluthafar, sem enn eiga eftir að skipta
á stofninum og nýrri arðmiðaörk, beðnir að gera það sem
fyrst. Afgreiðslumenn félagsins um land allt, svo og aðal-
skrifstofan í Reykjavík, veita stofnunum viðtöku.
H.f. Eimskipafélag Islands.
Samkvæmt heimild í 3. gr. reglugerðar frá 23. september 1947
um vöruskönnntun, takmörkun á sölu, dreifingu og afhendingu
vara hefur viðskiptanefndin ákveðið, að skömmtunarreiturinn í
skömmtunarbók nr. 1 með áletruninni SKAMMTUR 6 skuli vera
lögleg innkaupaheimild fyrir einu kg. af skömmtuðu smjöri á
tímabilinu frá 18. júlí 1948 og þangað til annað verður auglýst.
Jafnframt hefur verið ákveðið, að skömmtunarreiturinn i
skömmtunarbók nr. 1 með áletruninni SKAMMTUR 5 skuli hinn
1. ágúst næstkomandi falla úr gildi sem lögleg innkaupaheimild
fyrir skömmtuðu smjöri. Verða þeir, sem eiga þennan skömmt-
unarreit (skammt 5) að gæta þess að nota hann fyrir 1. ágúst.
Reykjavik, 17. júlí 1948.
SKÖMMTUN ARST J ÖRI