Vesturland

Árgangur

Vesturland - 28.05.1949, Blaðsíða 1

Vesturland - 28.05.1949, Blaðsíða 1
*3BR$) a/essrFwzxzffl sdúGFssœmsMmtm XXVI. árgangur Isafjörður, 28. maí 1949. Eimskipafélag íslands og strandsiglingarnar Eimskipafélagið fær engan styrk frá ríkissjóði til strandferða, enda hefur aðalhlutverk félagsins frá upp- hafi verið millilandasiglingar. Athugasemd frá Eimskip. Reykjavík, 30. marz, 1949 Herra ritstjóri, Dt af grein i heiðruðu l)laði yðar, sem kom út 10. marz um bættar samgöngur á sjó, vild- um vér biðja yður að birta ei't- irfarandi athugasemd. Eins og yður er kunnugt, var í fyrravetur kosin nefnd manna úr belztu kaupstöðum, til þess að fá frámgengt óskum manna úli á landi um bæít fyr- irkomulag innflutningsmál- anna og j afnframt að ræða við Eimskipafélagið um siglinga- málin, einkum að því er snert- ir flutning á vörum frá útlönd- um beint til hafna úti á landi. Eftir þær viðræður er nefnd- in átti við oss, þótti rétt að gera nokkuð ítarlega grein fyrir af- stöðu vorri til þessara mála, og skýra um leið ástæðurnar fyrir því, að ]>að fyrirkomulag, sem haft hefir verið á flutningum befir reynst óhjákvæmilegt vegna viðskiptaástandsins. Var þvi samin greinargerð um mál- ið í heild sinni, og í benni er svarað ítarlega þeim atriðum, er þér gerið að umtalsefni í grein yðar. Greinargerð þessi var síðan send öllum nefndarmönnum, og ennfremur þeim bæjai’- stjónium og hreppsnefndar- oddvitum, sem líklegt þótti að hefðu áhuga á þessum málum, sömuleiðis öllum afgi’eiðslu- mönnum félagsins og loks rit- stjói'um allra stj ói’nmálablað- anna. Þá var greinargerðin einnig prentuð sem fylgiskjal með ársskýrslu stjórnar l elags- ins 1948, en sú skýrsla er send afgreiðslumönnum félagsins um land allt, til þess að þeir af- hendi hana hverjum þeim senx óslcar að kynna sér skyrsluna. Það er því ckki í'étt að oss hafi ekki „fundist ómaksvert að skýra landsmönnum nauð- syn þessa fyrirkomulags“ eins og komist er að oi'ði í greininni og er þá átt við áð vörurnar skuli eigi vera fluttar beint frá útlöndum lil hafna úti á landi. Flest eða, öll hlöðin, sem fengu þessa gi'einai’gei'ð, gátu um aðalefni hennar, en að því er vér bezl getum séð, var greinargerðarinnar hiiisvegár ekki getið í „Vesturlandi.“ Með því að ástæðan til þess getur vei-ið sú að bréfið til yð- ar hafi misfai'ist á einhvern hátt, leyfum vér oss að senda, yður hérmeð eintak af grein- argerðinni, og þar eð allt sem þar er rætt um, er énn í fullu gildi, vildum vér vinsamlega hiðja yður að kynna yður efni greinargerðarinnar, og skýra lesendum yðar fx*á þeim atrið- um úr henni er þér teljið máli skifta, og snertir þau ati’iði er þér hafið gert að umtalsefni í umræddri grein yðar. Væntum vér þess, að við at- hugun þessarar greinargerðar voi'rar, fáið þér glöggan skiln- ing á afstöðu voi'ri, og komist að raun unx að það er vilji vor hér eftir, senx hingað til, að leitast við að gera það sem í voru valdi stendur til þess að auka og bæta samgöngur lands manna eftir því sem við verð- ur kornið og með sanngimi er hægt að krefjast. Bera hinar miklu og dýru skipabyggingar, sem félagið hefir ráðist í, eigi hvað sízt vott um, að félagið hefir ekki lmgsað sér að láta sitja við oi'ðin tóm í þessu efni. Virðingarfyllst, H.f. Eimskipafélag Islands. Guðm. Vilhjálmsson. I greinargerðinni um strand- siglingar Ehnskipafélagsins kemur þetta fx’am m.a.: Fyrir stríð hélt félagið uppi fastri áætlun frá ýmsum höfn- um ex’lendis og flutti vörur heint til hafna úti á landi, án umhleðslu í Reykjavík eða annarsstaðar. Þetta breyttist í stríðinu. Fyrirkomulagið um innkaupin breyttuSt. Innflytj- endasamhandið, sem kaup- menn stofnuðu og Samlx. ísl. samvinnufélaga, önnuðust og amxast enn innflutninginn. Inn flutningsleyfum var hagað í sami’ænxi við það. Skömmtun- arfyrix’komulagið gerir og unx- hleðslu í Reykjavík nauðsyn- lega. Umhleðslukostnaðiixn tók Einxskipafélagið að sér að greiða að mestu, nema upp- skipun og vörugjald til Reykja víkurhafnar. Þannig greiddi það geymslukostnað og akstur úr vöruskemmu,. útskipun, vörugjald og flutningsgjald frá Reykj avík til ákvörðunar- staðar. Vörur sem skrásettar voru beint til þeirra hafna, senx þær áttu að fara á voru hins- vegar sendar viðtakanda algei'- lega að kostnaðarlausu. Vegna skipaskorts á stríðsár- ununx fækkaði ferðunx l'élags- ins út á land. Leiguskipin voru og einnig flest of stór og auk þess fékkst ekki lej'fi eigenda þeii’ra, til strandsiglinga. Fyrir stríð naut Eimskip styrks frá ríkissjóði til strand- ferða. Þrátt fyrir það var stór- kostlegur halli á strandferðum. Síðan 1945 hefur félagið engan styrk fengið frá ríkinu. Ríkið hefur síðan stóraukið skipa- kost sinn til strandferðanna og rekur þær nxeð miljóna lialla. Viðkonxur skipa félagsins á höfnum úti á landi voru 900 1000 á ári fyrir stríð og tapið frá 600—900 þús. kr. Síðan hefur reksturskostnaður skip- anna a.nx.k. 5—6 faldast, en flutningsgjöld liækkað nokkuð. Við konxur skipa félagsins á lxafnir úti á landi lxafa síðustu 15. töluhlað. ár verið þannig: 1944 304, 1945 364, 1946 619 og 1947 um 500. Þá er á það bent, að inn- flutningsmagnið sem skráð er beint út á land, sé of lítið til að komast hjá umhleðslu í Reykjavík í niörgum tilfellum. Það var 1945 7,4%, 1946 11,2% og 1947 17% af heildarinn- flutningnunx til landsins. Ef fyrirkomulagi á veitingu gj ald- eyi'islcyfa verða hreytt og sömuleiðis skönxnxtun á nauð- synjavörum, þannig að nxeii’a af vörurix yrði ski’ásett beint út á land, væri nxögulegt að haga hleðslu skipanna þannig að hægt væiá að afferma vör- urnar á þeirri höfn, sem þær ættu að fara til, án þess að umhlaða þeim. Þegar festa kænxist á þetta, er von til að hægt sé að taka upp fastaáætl- un til hafna úti á landi. .......O....-.... K. s. f. Hörður 30 ára. Knattspyrnufélagið Hörður átti 30 ára afnxælj í gær. Vegna þi'engsla í blaðinu var ekki liægt að minnast félagsins, en það verður gert í næsta hlaði. -------O-------- Fermingarbörn í Isafjarð- arkirkju sunnudaginn 29. maí 1949. ísafjörður: Stúlkur: Ásgeir Rögnvaldur Helgason Brynjar Gunnai'sson Einar Hjörtur horsteinsson Elías Gunnar Helgason Guðbjörn Kristmannsson Guðjón Gísli Ebbi Sigtryggsson Guðmundur Agúst Kristjánsson Guðmundur Maríasson Kristján Guðbjörn Jónsson Óli Norðmann Olsen Sigurður Jörundur Sigurðsson Svavar Gunnar Sigurðsson Vignir örn Jónsson Piltar: Ástríður Kristín Arngrímsdóttir Betty Marzelíusdóttir Elsa Guðmundsdóttir Gróa Árnadóttir Guðlaug Brynja Guðjónsdóttir Hansína Ásborg Briet Jónsdóttir Jóhanna Ingibjörg Hermannsd. Jóna Valgerður Kristjánsdóttir Jónasína Porey Guðnadóttir Sigrún Sigurgeirsdóttir.

x

Vesturland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.