Vesturland

Årgang

Vesturland - 24.06.1949, Side 1

Vesturland - 24.06.1949, Side 1
<2£fíg> QfessrFMZx&n 8dú£FS3œ$»sMmam XXVI. árgangur Isafjörður, 24. júní 1949. 17. tölublað ¥erzln£iaroreiðan mndir sfjérn krataráðlierrans Emils Jónssonar. Einstakf ranglæfi gagnvarf almenningi út um land. Dæmi um áætlunairbúskap kratamia. Það inun ekki oí' mælt að ástandið í verzlunar- og' við- skiptamálum hafi aldrei orðið verra en nú undir stjórn krataráðherrans, Emils Jónssonar, sem fer með yfirstjórn þessara mála. Sérstaklega er það áberandi, hversu almenningur í sveitum, kaupstöðum og sjávar- þorpum verður hart úti vegna ofurvalds nefnda þeirra og ráða, sem framkvæma eiga „áætlunarbúskap“ Alþýðu- flokksins. Sá áætlunarbúskapur virðist raunar fyrst og fremst felast í því að gera einstaklingunum eins erfitt fyrir og frekast er unnt, tefja allar framkvæmdir þeirra eða koma algerlega í veg fyrir þær. Verða að hafa umboðs- mann í Reykjavík. Svo er nú komið að hver einasti maður, sem vill byggja sér bús, hrey ta húsakynnum sínum eða lagtæra þau, þarf að bafa umboðsmann fyrir sig í Reykjavík til þess að kné- krjúpa þar nefndum og ráð- um. Þessir umboðsmenn þurfa að sitja fyrir hinum báttvirtu ráðsmönnum eins og grenja- skyttur við tófugren að vor- lagi. Er þó mjög undir hælinn lagt að hægt sé að ná af þeim tali. En þótt tekist hafi að herja út svolcallað fj árfestitígarleyfi íijá Fjárhagsráði, þá er björn- inn ekki ])armeð unninn. „Á- ætlfinarbúskapurinn“ er nefni- lega ekki vísindalegri en svo, að fjárfestingarleyfi þýðir ekki innflutnings- og gjaldeyris- leyfi fyrir nauðsynlegu efni til hinna leyfðu framkvæmda. Þessvegna hefst nú nýtt kapp- hláup og nýjar yfirlegur yfir Viðskiptanefnd, sem úthlutar .islíkum leyfum. Öþolandi ástand. Þetta ástand er gjörsamlega óþolandi orðið. Seinagangur- inn og skriffinskan á skrif- stofum þessara ráða bitnar nú svo þunglega á athafnalífinu og einstaklingum fyrst og fremst utan Reyltjavíkur að segja má að nær ókleyft sé að koma verki í framkvæmd, hversu nauðsynlegt sem það er. Til þess að sýna livernig J)essu raunverulega er háttað má nefna örfá dæmi: Einstaklingur hér á Isafirði sækir um að fá að byggj a íbúð- ir fyrir fjölskyldu sína. Hann fær synjun frá Fjárhagsráði. Einstaklingurinn vill ekki við þá synjun una og snýr til þing- manns, sem staddur er í Reykjavík. — Þingmaðurinn nuddar um skeið í Fjárhags- ráði og eftir allmikið þóf er fj árfestingarlcyfið veitt. En þá er orðið svo áliðið vors að hæpið er að nauðsynlegt bygg- ingarefni fáist. Annað dæmi: Hreppsnefnd Bolungarvíkur sækir um að fá leyfi til þess að byggja læknis- bústað i þorpinu. Nýr læknir er kominn á staðinn og hann hefur ekkert húsnæði og verð- ur að búa á sveitabæ utan við þorpið. — Fjárhagsráð neitar hreppnum um byggingarleyfi og við borð liggur að hinn ungi læknir verði að hrökklast burtu úr þorpinu. Þá er gerð ný atlaga að ráðinu. Um ár- angur hennar er enn ekki vit- að. Bændur sælcja um leyfi til þess að ía að byggja við liús sín vegna þess að þeir hafi ekki rúm fyrir starfsfóllc sitt. Þeir verða að biða eftir svari fleiri mánuði. öll þessi dæmi eru béðan úr héruðunum. Mætti nefna mörg fleiri. Fyrirheitna landið. Þetta er sá „áætlunarbú- skapur,“ sem Alþýðuflokkur- inn íslenzki telur hið fyrir- heitna land sitt. Ofurvald stjórnskipaðra nefnda og ráða yfir öllum athöfnum ein- staklinganna, botnlaus skrif- finska í hálflokuðum skrif- stofubáknum í höfuðborg landsins. Það er óliætt að fullyrða að ekkcrt á jafn ríkan þátt í að örva hinn óheillavænlega straum fólksins utan úr sveit- um, kaupstöðum og sjávar- þorpum til Reykjavíkur, og þau ókjör, sem almetíningur út á landi á nú við að búa í verzlunarmálum og hin fá- dæma erfiða aðstaða til allra byggingai'framkvæmda og lag- færinga í húsnæðismálum. Alþýðuflokkurinn og landbúnaðurinn. Það er fyrir löngu kunnugt að viðskiptamálaráðherra krat anna gerði á siðasta þingi allt, sem hann gat til þess að vinna gegn tillögum Sjálfstæðis- manna um innflutning land- búnaðarvéla og jeppabifreiða. Þrátt fyrir það voru samþykkt- ar þingsályktunartillögur, sem létu í ljós skýlausan vilja þingsins um meiri innflutning þessara nauðsynlegu tækja. I samræmi við það tók Fjár- hagsráð upp nokkra upphæð, 3 millj. kr., í innflutningsáætl- un sína fyrir árið 1949, er var- ið skyldi til kaupa á jeppabif- reiðum, en eftir þeim tækjum er gífurleg eftirspurn frá bænd um um land allt. Allar líkur benda til þess að Emil Jónsson muni ætla að halda fast við þær hótanir sínar að koma í veg fyrir innflutning þessara tækja, enda stóð allur þing- flolckur Alþýðufloklvsins ein- huga gegn innflutningi þeirra á þingi. I þessu sambandi ber einnig að geta þess að síðan að Emil Jónsson varð viðskiptamála- ráðherra liefur verið haldið á- fram innflutningi amerískra luxusbifreiða út á gömul gj ald- eyrisleyfi á sarna tíma, sem leyfi er gefin höfðu verið út fyrir jeppabifreiðum liafa ver- ógilt. Sýnir þetta greinilega skilning krataráðherrans á þörfum landbúnaðarins. Margir höfðu gert sér vonir um að landbúnaðurinn gæti fengið bæði jeppa og ýms önn- ur tæki fyrir Marshallfé. En undir stjórn Emils Jónssonar virðist þetta ætla að fara á aðra lund. Er þó ekki séð fyrir end- an á því ennþá. Stefna Sjálfstæðis- manna. Kratarnir munu sennilega svara þvi til í þessum málurn að formaður Fjárliagsráðs og Viðskiptanefndar séu Sjálf- stæðismenn og Sjálfstæðis- flokkurinn beri því mesta á- byrgð á þyí öngþveitisástandi, sem nú ríkir hér í verzlunar-, viðskipta- og fjárfestingarmál- um. Því er þar til að svara að Sj álfstæðismenn eru í minni- hluta í báðum þessum nefnd- um. Kratar og Framsókn hafa þar yfirleitt nána samvinnu og móta stefnu þeirra. Yfir vötn- um þeirra svífur svo andi við- skiptamálaráðherrans, Hafn- Framhald á 4. síðu.

x

Vesturland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.