Vesturland

Árgangur

Vesturland - 29.07.1949, Blaðsíða 1

Vesturland - 29.07.1949, Blaðsíða 1
Framkvæmdir í Norður-lsafjarðarsýslu Aukið fé til þjóðvega. Lendingar- bætur á sex stöðum. Frá leiðarþingum Sigurðar Bjarnasonar í Bolungarvík, Hnífsdal og Súðavík. Á leiðarþingum er þingmaður Norður-ísfirðinga, Sig- urður Bjarnason, hélt í Bolungavík, Hnífsdal og Súðavík síðari hluta júnímánaðar skýrði hann m. a. frá f járveiting- um til verklegra framkvæmda í héraðinu. Verður í sumar unnið að vegabótum fyrir nokkru meira fé en á s. 1. ári. Að lendingarbótum verður unnið á 5 eða 6 stöðum. Nýir þjóðvegir. Fjárveitingar til einstakra þjóðvega skiptist þannig: Bolungavíkurvegur 200 þús. kr. Súðavíkurvegur 100 - ögurvegur 30 - Ármúlavegur 35 - Samtals eru þannig veittar kr. 365 þús., til nýrra þjóðvega í sýslunni á þessu ái*i. Til nýrra brúa voru aðeins veittar 10 þús kr., til þess að í'ullgera brúna á Ósá. I sambandi við f j árveitingar til vegaframkvæmda skýrði þingmaðurinn frá því að hann hefði á siðasta Alþingi flutt l'rumvarp um að nokkrir nýir vegir í sýslunni yrðu teknir í þjóðvegatölu. Voi*u það þessir vegir:, Skálavíkurvegur, úr Bolungavík í Skálavik ytri, Fjarðavegur, úr Súðavík kring um Álftafjörð, Seyðisfjörð, Hestfjörð- og Skötufjörð í ög- ur, Staðarheiðarvegur úr Grunnavík um Staðai’heiði að Dynjanda, Skorarheiðarvegur um Skorarheiði í Furufjörð og Sandeyrarvegur frá Bæjum að Sandeyri. I samgöngumálanefndum þingsins hefði orðið samkomu- lag um það að opna ekki vega- lög að þessu sinni. Þessvegna hefði þetta frumvarp ekki orð- ið útrætt á síðasta þingi. En fullvíst væri að ýmsir þessara vega yrðu tcknir í þ jóðvega- tölu þegar að vegalögum yrði næst breytt. Vegir um sveitirnar. Sigurður Bjarnason lagði á- herzlu á þá skoðun sína að nú, þegar akvegasamband hefði skapast við héraðið og langt væri komið að tengja þorpin í sýslunni saman með akvegum, yrði að vinna ötullega að því að leggj a akvegi um sveitirnar. Fjarlægðirnar væru að vísu miklar hér við Djúp. En með aukinni tækni, notkun stór- virkra' véla, væri barnaskapur og þröngsýni að draga það í efa að rétt væri að leggja vegi t.d. um fj arðabyggðirnar við sunnanvert Djúpið. Sú tillaga hefði að visu komið fram, að réttara væri að leggja veg af Þorskaf j arðarheiði um Glárnu niður í Dýrafjörð eða Arnar- fjörð og skapa Isafjarðarlcaup- stað og þorpunum á Vestfjörð- um þannig beint akvegasam- band. Þetta væri að sinum dómi hreint óvit. I fyrsta lagi kæmi slikur vegur sveitunum að engu gagni. I öðru lagi yrði hann aðeins fær örlítinn hluta árs hvers. I þriðja lagi myndi það taka áratugi að byggja hann. Hina leiðina bæri þessvegna tvímælalaust að fara. Með veg um hana fengju sveitirnar samgöngubót og kaupstaður og þorp Vestfjarða beint akvega- samband. Hafnargerðir og lendingarbætur. Til hafnargerða og lendinga- bóta eru veittar í fjárlögum þessa árs þessar fjárvciting- ar: Til Brimbr. í Bolv. 100 þús. kr - Hnífsdalsbr 40 - - Súðavíkurbr. 15 - - Grunnav.br. 20 - - Vatnsfj.br. 20 - - - Reykjanesbr. 10 - Þar að auki eru veittar úr Hafnarbótasjóði 30 þús. kr. til Hníl'sdalsbryggj u og 20 þús. la*. til bryggjunnar í Súðayík. Samtals er veitt til hai'nar- gerðar og lendingabóta 250 þús. kr. Fyrir þetta fé verður unnið að endurbótum og leng- ingum á þeim hafnarmann- virkjum, sem nefnd voru. Þingmaðurinn ræddi nokkuð hina miklu þörf héraðsins fyr- ir lendingarbótum. Annarsveg- ar væri um að ræða þörf út- gerðarinnar í kauptúnunum, liins vegar þörfina fyrir hætt afgreiðslu skilyrði Djúpbátsins á hinum mörgu viðkomustöð- um hans. Símamál og fleira. Þingmaðurinn skýrði frá því að hann hefði átt ýtarlegar við- ræður við Póst- og símamála- stjórnina um úrbætur i sima- málum Vestfjarða. Ilefði nú verið gerð áætlun um gagngerar endurbætur á símásambandinu við Vestfirði. I sumar myndi verða unnið að endurbótum á þeim símalinum við Isafjarðardjúp, sem mest- ar bilanir hefðu orðið á s. 1. vetur. Þingmaðurinn kvað það skoðun sína, að ástandið í síma- málum hér við D júp og raun- ar í miklum hluta Vestfjarða væri algerlega óþolandi. Yrði að vinna að umbótum í þeim málum eftir fremsta megni. I sumar yrði loks lögð not- endasímalína í Mjóafjörð í Reykjarfjarðarhreppi en það hefði staðið til undanfarin ár. Samgöngur á sjó. Til Djúpbátsins væri veitt sama upphæð og í fyrra 215 þús. kr. Það væri að vísu lág upphæð vegna þess, að rekstur bátsins yrði stöðugt erfiðari Framliald á 4. síðu. Ríkisféhirðir. Georgía Neese Clark. Frú Georgía Neese Clark var fyrir skömmu útnefnd ríkisfé- hirðir Bandarikjanna. Er hún meðal liinna fyrstu kvenna, sem skipaðar eru í æðstu trú- naðarstörf þar í landi. ■ o « Héraðsmóf Sjálf- sfæðismanna. Héraðsmót Sj álfstæðismanna á Isafirði og i Djúpinu verða haldin 6. og 7. ágúst n. k. Verð- ur mótið á Isafirði laugardag- inn 6. ágúst en-í Reykjanesi sunnudaginn 7. ágúst. Á mótum þessum munu mæta og flytja ræður alþingis- mennirnir Gunnar Thoroddsen og Sigurður Bjarnason. Þá verður til Skemmtunar kvik- myndasýningar, sem Kjartan Ó. Bjarnason annast og Bryn- jólfur Jóhannesson, leikari, mun lesa upp og syngja gam- anvísur. Ennfremur verður dansað. Héraðsmót Sjálfstæðismanna eru orðin mjög vinsæl í hérað- inu, enda beztu og fjölbreytt- ustu samkomur, sem völ er þar á. Hafa þau jafnan verið mjög fjölsótt. Þarf ekki að efa að svo muni einnig verða, nú. I haust er ákveðið að halda hér- aðsmót í Bolungarvík og Hnífs- dal, en mótin, sem þar voru Haldin í fyrrahaust tókust prýðilega.

x

Vesturland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturland
https://timarit.is/publication/633

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.