Vesturland - 15.10.1949, Qupperneq 1
Lýsing kratanna á sjálfum sér:
Við erum
„Hækjulið í andstödu við j>jóðarviljann<É
Myndin sýnir hinn „einhuga“ fiokk, sem Finnur Jónsson talar um. Flokkurinn, sem einn allra fiokka „gengur heill og
óskiptur til kosninga“!! Flokkurinn sem segist berjast gegn gengisfellingu íslenzku krónunnar, þrátt fyrir það að
þessi sami flokkur var fyrir nokkrum vikum að fella krónuna um 30%. Þetta er flokkurinn sem eignar sér öll mál,
er samþykkt hafa verið á Alþingi og varða almennings heill. Alþýðuflokkurinn hefur aldrei haft meira en fimmta
hluta þingmanna, hvernig getur pínulitli flokkurinn eignað sér þessi mál, þetta auðvirðilega flokksskrípi íslenzkra
stjórnmála.
lsfirðingar! Þið hafið fengið nóg af Finni Jónssyni sem þingmanni. Ykkur vantar þingfulltrúa, sem vinnur að
hagsmunamálum bæjarins, sem Finnur hefur svikist um. Finnur Jónsson er bitlingasjúklingur, sem þarf að lækna,
bezta og öruggasta lækningin er, að senda hann burt úr þingsölunum.
Isfirðingar! Verið samtaka. Kjósið þann mann, sem þið megið treysta fyrir ykkar málum.
Kj ósið Kjartan lækni!