Vesturland - 22.10.1949, Side 1
XXVI. árgangur
Isafjörður, 22. olctóber 1949.
33. tölublað.
Kjartan læknir á þing.
Isfirðingar!
1 ársbyrjun 1946 hrunduð
þið meirihluta kratanna í
bæjarstjórn. Ungir og á-
hugasamir menn tóku við
völdum í bænum. Stórfelld-
ar framfarir og umbætur
hafa síðan átt sér stað,
þrátt fyrir mjög erfitt ár-
ferði. Enn er margt eftir ó-
gert. Stæi*stu hagsmunamál
bæjarfélagsins, uppbygging
atvinnulífsins á sjó og í
landi og samhliða því stór-
aukin raforka til vinnslu
sjávarafurða og annars iðn-
aðar, bíður úrlausnar. Því
miður hefur ekki tekizt að
leysa þessi mál hér, enda
þótt flestir aðrir útgerðar-
bæir landsins hafi fengið
tækifæri til að koma þessum
málum í gott horf, eins og
Vestmannaeyjar, Keflavík
og Akranes, sem hafa Sjálf-
stæðisþingmenn. Þetta staf-
ar af því, að ísfirðing-
um sást yfir það. að skipta
um þingmann sumarið 1946.
Það er staðreynd, að Finnur
Jónsson hefur unnið leynt
og Ijóst gegn hagsmunamál-
um bæjarins innan þings og
utan. Hann hefui ekki get-
að borið það af sér. Þetta
bitnar að sjálfsögðu ekki
eingöngu á bæjarstjórninni
heldur öllum bæjarbúum.
Á morgun eigið þið að
velja þingmann fyrir næstu
4 ár. Finni er ekki að
treysta — það hefur hann
sýnt. Á morgun veljið þið
ykkur nýjan þingmann, —
Kjartan lækni, sem allir
bæjarbúar þekkja og vita að
hefur áhuga og dugnað til
að vinna að velferðar- og
hagsmunamálum þessa bæj-
ar, sem hann þekkir manna
bezt.
Kjartan er frambjóðandi
stærsta og frjálslyndasta
stjórnmálaflokksins á Is-
landi og hefur því betri skil-
yrði en fulltrúi „pínulitla
flokksins“ til að koma mál-
um Isfirðinga fram.
Allir ísfirðingar verða
þessvegna að sameinast um
kosningu Kjartans og veita
með því Finni verðskuldaða
ráðningu fyrir svikin _og
dugleysið. Atkvæði á komm
únista- og framsóknarfram-
bjóðendurna stuðla ein-
göngu að kosningu Finns
Jónssonar. Allir andstæð-
ingar Finns verða því að
sameinast um Kjartan
ísfirðingar!
Gerið sigur Sjálfstæðis-
flokksins glæsilegan, trygg-
ið ykkur ungan og áhuga-
saman fulltrúa á Alþing Is-
lendinga.
Kjartan læknir á þing!